Britney ákærð fyrir ölvunarakstur Agnar Már Másson skrifar 30. apríl 2026 21:11 Britney Spears er farin í meðferð. Axelle/Bauer-Griffin/FilmMagic Saksóknari í Kaliforníu hefur lagt fram ákæru á hendur poppstjörnunni Britney Spears vegna meints ölvunaraksturs.
Í apríl tilkynnti hin 44 ára Spears að hún hefði ákveðið að fara í meðferð eftir að hafa verið handtekin í mánuðinum áður vegna gruns um að keyra undir áhrifum áfengis og annarra vímuefna. Samkvæmt ákæru á Spears yfir höfði sér ákæru vegna meints ölvunaraksturs hinn 4. mars, þegar hún var handtekin fyrir að aka reikult á miklum hraða, að því er fram kemru í frétt BBC. Talsmenn hennar hafa kallað atvikið algjörlega óforsvaranlegt. Málið er á dagskrá dómstóla næsta mánudag, en óvíst er hvort hún mæti í eigin persónu. „Hvort frú Spears muni mæta við fyrirtökuna verður ákvörðun sem tekin verður af henni og lögmanni hennar,“ sagði í ákærunni, sem var lögð fram á fimmtudag af hálfu saksóknaraembættisins í Ventura-sýslu í Kaliforníu. Þetta var ekki í fyrsta skipti sem Britney fór í meðferð. Mikið var fjallað um það þegar hún gerði það síðast árið 2007 eftir að hafa fengið hálfgert taugaáfall og rakað af sér allt hárið. Sjá einnig: Fréttir af Britney Spears Síðustu tuttugu ár hafa verið Britney erfið. Faðir söngkonunnar, Jamie Spears, var með forræði yfir dóttur sinni í þrettán ár, þangað til 2021, eftir að dómstóll í Los Angeles felldi niður forræði annarra yfir Spears og skipaði sérfræðing til að halda utan um líf hennar. Britney á tvo syni, Sean Preston og Jayden James, með fyrrverandi eiginmanni sínum, Kevin Federline, og hefur hún reynt að efla sambandið við strákana síðustu ár. Á sama tíma hefur Britney valdið aðdáendum sínum og ástvinum miklum áhyggjum vegna undarlegrar hegðunar á samfélagsmiðlum, skrítinna dansmyndbanda og furðulegra yfirlýsinga.
Sjálfræðisbarátta Britney Spears Hollywood Bandaríkin Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Glee snýr aftur Bíó og sjónvarp Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Fleiri fréttir Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Sjá meira