Laun Infantino meira en þrefaldast á áratug Valur Páll Eiríksson skrifar 1. maí 2026 22:21 Infantino er hér ásamt Donald Trump Bandaríkjaforseta. Náið samband þeirra hefur sætt gagnrýni víða. Alex Grimm/Getty Images Laun Gianni Infantino, forseta FIFA, námu um 740 milljónum króna á síðasta ári auk fríðinda sem ekki eru gefin upp. Laun forsetans hafa meira en þrefaldast á áratug.
Greint er frá á danska miðlinum Politiken. Þar er rætt við Stanis Elsborg, forráðamanna samtakanna Play The Game, sem ætlað er að ýta undir lýðræði og gagnsæi innan íþrótta. Elsborg hefur oft gagnrýnt stjórnarhætti FIFA í forsetatíð Infantino en forsetinn tilkynnti á ársþingi FIFA í Vancouver í vikunni að hann hygðist bjóða sig fram til endurkjörs í forsetakosningum á næsta ári. Infantino tók við forsetastólnum af Sepp Blatter sem fór með skömm eftir mikið hneyksli sem skók sambandið árið 2015, þar sem allir hæstráðendur þess voru ýmist ákærðir eða sakaðir um mútuþægni og önnur brot í starfi. FIFA fór í naflaskoðun í kjölfarið og fjölmargar breytingar hafa verið gerðar á stjórnarháttum þess, í það minnsta á blaði. Infantino hefur aftur á móti verið sakaður um að vinda hægt og rólega ofan af öllum bótum þann áratug sem hann hefur setið á forsetastóli síðan. Elsborg bendir á að laun Infantino hafi þrefaldast í forsetatíð hans og nemi átta milljónum Bandaríkjadala á ári, um 740 milljónum króna, og ofan á það bætist margskoar fríðindi sem ekki eru gefin upp. Gagnsæið sé ekki meira en svo. Launin séu rúmlega þrefalt hærri en þegar Infantino tók við sem forseti fyrir áratug og séu tvöfalt hærri en árslaun forseta Knattspyrnusambands Evrópu, Aleksandr Ceferin, sem fái um fjórar milljónir dala í laun. „Hvar endar þetta?“ spyr Jules Boykoff, prófessor í stjórnmálafræði, í grein Politiken. „Spurning mín til hans er, hvenær hættir hann að þurfa meiri peninga? Hvenær hættir hann að þurfa launahækkanir? Og hvenær mun hann í staðinn gefa þessa peninga til grasrótarhópa sem spila og styðja fótbolta?“ bætir Boykoff við.
FIFA Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira