Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Freyja Þórisdóttir skrifar 2. maí 2026 10:42 Björn Brynjúlfur Björnsson tók við starfi Framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs þann 1. maí árið 2024. Hann er hagfræðingur að mennt með meistaragráðu frá Oxford háskóla. Vísir/Vilhelm Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs segir verkalýðsfélög vera tímaskekkju og að þau hefði mátt leggja niður um síðustu aldamót. Enginn myndi kjósa það að vera launþegi í Portúgal fram yfir Sviss þrátt fyrir betri stöðu verkalýðsfélaga.
Björn Brynjúlfur Björnsson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs og Andrea Sigurðardóttir blaðamaður Morgunblaðsins eru nýjustu gestir í hlaðvarpinu Þjóðmál. Þátturinn, sem kom út í gær, hefst með spilun á laginu Internalsjónalinn. Í kjölfarið ber Gísli Freyr Valdórsson, stjórnandi þáttarins, upp spurninguna hvort dagurinn hafi sérstaka þýðingu fyrir þau, þá tekur Björn af skarið og segist, í gríni, ætla að byrja jákvæður. „Mér finnst þessi dagur vera ákveðin tímaskekkja,“ segir Björn og uppsker hlátur í upptökuverinu. Hann bætir því þá við að honum finnist „verkalýðsfélög vera hugmyndafræðilegt fyrirbæri sem séu bara orðin svolítið úrelt“. Hefði mátt leggja þau niður árið 2000 Þá talar hann næst um að hafa nýlega farið til bæði Sviss og Portúgal og að þrátt fyrir að í því síðarnefnda séu „miklu sterkari réttindi verkafólks“ þá sé miklu betra að vera launþegi í Sviss. „Ekki nokkur maður myndi vilja vera með vinnu í Portúgal. Það er miklu betra að vera launþegi í Sviss frekar en í Portúgal þrátt fyrir að verkalýðsfélögin séu veikari,“ segir Björn. Hann kveðst telja að verkalýðsfélögin hafi gert góða hluti á tuttugustu öldinni en að „á árþúsundamótunum hefði mátt láta leggja þau niður“ en Gísli segist þá ekki hafa áhuga á að mótmæla honum. Andrea segist aftur á móti vera dóttir verkalýðsleiðtoga og að dagurinn hafi alla tíð verið mikill hátíðardagur á hennar heimili og í hennar uppeldi. „Við segjum bara áfram verkalýðurinn,“ segir Andrea.
Verkalýðsdagurinn Stéttarfélög Kjaramál Tengdar fréttir Björn Brynjúlfur nýr framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Björn Brynjúlfur Björnsson er nýr framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands. Gengið hefur verið frá ráðningu Björns og hefur hann störf þann 1. maí næstkomandi. 6. mars 2024 14:30 Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira
Björn Brynjúlfur nýr framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Björn Brynjúlfur Björnsson er nýr framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands. Gengið hefur verið frá ráðningu Björns og hefur hann störf þann 1. maí næstkomandi. 6. mars 2024 14:30