Uppbygging íþróttamannvirkja á Akureyri - hugsum lengra Sindri S. Kristjánsson skrifar 4. maí 2026 09:15 Engum dylst mikilvægi íþrótta fyrir samfélagið. Öflugt íþróttastarf er lýðheilsu- og heilbrigðismál, mikilvæg forvörn fyrir börn og ungmenni, en íþróttastarfið er ekki síður drifkraftur fyrir efnhagslíf bæjarins. Nýliðin helgi hérna í bænum er til marks um þetta, en hér fóru fram þrjú stór íþróttamót - Öldungur í blakinu, Hængsmótið og IceCup, stórt alþjóðlegt mót í krullu. Þúsundir gesta heimsækja bæinn okkar allan ársins hring til að stunda hér íþróttir með tilheyrandi atvinnusköpun og tekjuöflun fyrir fyrirtæki bæjarins. Án þessa mótahalds getum við ekki verið. Kröftug uppbygging íþróttamannvirkja, sem er forsenda alls þessa mikilvæga starfs, hefur staðið yfir hérna í bænum undanfarin ár. Við þessa uppbyggingu hefur Samfylkingin á Akureyri stutt með ráðum og dáðum úr sæti minnihlutans í bæjarstjórn. Atkvæðagreiðsla fulltrúa okkar í ráðum bæjarins og bæjarstjórn bera þessu vitni, en Samfylkingin hefur greitt atkvæði með ákvörðunum um áframhaldandi uppbyggingu hjá bæði KA og Þór á kjörtímabilinu. Í stefnu Samfylkingarinnar á Akureyri fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 2026 erum við afar skýr. Við leggjum alla áherslu á að klára þá uppbyggingu sem hafin er. Að sjálfsögðu er átt við framkvæmdirnar hjá KA, en við lítum jafnframt svo á að með undirritun samkomulags milli Ásthildar Sturludóttur bæjarstjóra og Nóa Björnssonar, formanns íþróttafélagsins Þórs, þann 22. febrúar sl. sé það framkvæmdaferli hafið. Þá framkvæmd á að klára með sóma, og eins hratt og hægt er. Við í Samfylkingunni erum raunsæ í okkar bæjarpólitík. Framkvæmdirnar sem hafnar eru hjá KA og þær sem framundan eru hjá Þór eru afar metnaðarfullar og munu taka upp mest af því framkvæmdafé sem skynsamlegt er að verja til uppbyggingar íþróttamannvirkja næstu árin. Þó að framkvæmdafé sé eyrnamerkt næsta kjörtímabil þýðir það ekki að ómögulegt sé að undirbúa næstu verkefni, sem koma svo í kjölfarið. Síðasta íþróttamannvirkið verður seint byggt á Akureyri. Þess vegna höfum við sett á okkar stefnuskrá að hefja undirbúning við byggingu 50 metra innisundlaugar á kjörtímabilinu, verkefni sem hefur verið boðað ítrekað en jafnoft frestað af meirihluta bæjarstjórnar á kjörtímabilinu. Þetta er uppbygging sem réttilega hefur verið kallað eftir í u.þ.b. 30 ár og ekki nema sanngjarnt að leggjast í þá undirbúningsvinnu sem nauðsynlegt er. Málefni íþróttanna í bænum eru eru sérstakt áherslumál Samfylkingarinnar á Akureyri fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 2026. Við munum halda áfram að styðja við þá uppbyggingu sem hafin er og sjá til þess að framkvæmdirnar hjá KA og Þór verði kláraðar með sóma og í öruggum skrefum. En við getum leyft okkur að hugsa lengra en komandi kjörtímabil. Með framsýni og góðum undirbúningi getum við samtímis framkvæmt það sem þegar hefur verið ákveðið ásamt því að skipuleggja næstu stórverkefni. Akureyringar verðskulda framsýna og ábyrga stjórnun íþróttamála í bænum. Það er nálgunin sem Samfylkingin á Akureyri býður upp á. Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Akureyri Íþróttir barna Sindri S. Kristjánsson Mest lesið Stjórnun gervigreindar og öryggi Marinó G. Njálsson Skoðun Hvað breyttist þegar þjóðin sagði nei? Hilmar Kristinsson Skoðun Hvað merkir íslenskt nei? Erna Bjarnadóttir Skoðun Fimm mínútur sem geta skipt sköpum í neyð Birna G. Magnadóttir Skoðun Meðaltalið borgar ekki húsaleiguna Finnbjörn A. Hermannsson Skoðun Umferð í Reykjavík og samgönguásar höfuðborgarsvæðisins Elías B Elíasson Skoðun Um helmingur lækna á Landspítala í fullu starfi Sigurður Helgi Pálmason Skoðun Geta stofnanir sparað og bætt þjónustuna? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Ferðaþjónustan gerir Ísland skemmtilegra Ragnhildur Ágústsdóttir Skoðun Hvenær verður nóg nóg? Borgar Antonsson (Boggi Tona) Skoðun Skoðun Skoðun Hvað breyttist þegar þjóðin sagði nei? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Stjórnun gervigreindar og öryggi Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Hafrannsóknastofnun vissi af gloppunni en gerði ekkert Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Reikningurinn sem svefninn getur ekki borgað Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Er þetta allt sama tóbakið? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Danski bærinn Akureyri Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Píeta samtökin í 10 ár Hildur Eir Bolladóttir skrifar Skoðun Fimm mínútur sem geta skipt sköpum í neyð Birna G. Magnadóttir skrifar Skoðun Hvenær verður nóg nóg? Borgar Antonsson (Boggi Tona) skrifar Skoðun Hvað merkir íslenskt nei? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Meðaltalið borgar ekki húsaleiguna Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Geta stofnanir sparað og bætt þjónustuna? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver ber kostnaðinn þegar landinu er lokað? Friðrik Árnason skrifar Skoðun Dýnamík hópeineltis, hóphegðun fína og ófína fólksins Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Gervigreindin og ragnarök: Raunveruleg hætta eða mesta svikamylla sögunnar? Hólmfríður Gísladóttir skrifar Skoðun Umferð í Reykjavík og samgönguásar höfuðborgarsvæðisins Elías B Elíasson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: Hvar liggja mörk sjálfræðis? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Ferðaþjónustan gerir Ísland skemmtilegra Ragnhildur Ágústsdóttir skrifar Skoðun Um helmingur lækna á Landspítala í fullu starfi Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Erum við í hættu? Ólgan kringum gervigreind Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin og ragnarök: Raunveruleg hætta eða mesta svikamylla sögunnar? Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar