Græna, græna byltingin Ómar H. Kristmundsson skrifar 4. maí 2026 10:30 Fyrr á þessu ári var ég eins og stundum áður á gangi á stígnum í Skerjafirði að njóta náttúrunnar og veðurblíðunnar. Þótt túristaþyrlur séu stundum truflandi ásamt drunum einkaþotna tekst þeim jafnan ekki að eyðileggja þá miklu náttúruupplifun sem ströndin býður upp á. En nú hafði bæst í hljóðmyndina. Úr fjarska heyrðust þung og mikil högg sem voru greinilega ekki hljóðin úr loftbyssunum sem notaðar eru til að stugga við of heimakomnum gæsum á flugvallarsvæðinu. Ég gekk á hljóðið og sá stríðan straum vörubíla af stærri gerðinni tæma farma sína. Niður féll stórgrýti með tilheyrandi skellum og drunum. Í stað kyrrðar og fuglasöngs fannst mér ég vera staddur á miðju framkvæmdasvæði á einum af hinum fjölmörgu þéttingarreitum Reykjavíkur. Um leið og ég horfði á þessar stórvirku vinnuvélar sem voru í gríð og erg að ryðja landfyllingarefni út á hina ósnortnu fjöru horfði ég á tjaldana sem hafa haft búsetusvæði á strandlengjunni í gegnum tíðina forða sér í ofboði, eiga vængjum sínum fjör að launa. Landfylling þessi er væntanlega hluti af sjóvarnargarði Fossvogsbrúar sem aftur er liður í framkvæmd samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Ég hafði ekki gert mér grein fyrir að með byggingu Fossvogsbrúar væri ætlunin að raska ósnortinni fjöru og fórna skika af fuglaparadís Skerjafjarðar. Vonandi er þetta ekki fyrirboði þess hvernig framkvæmdir samgöngusáttmálans muni ganga á náttúru höfuðborgarinnar, þvert á það sem þegar hefur verið gert með umbreytingu óbyggðra svæða í steinsteypu. Eftir þessa dapurlegu upplifun fór ég ósjálfrátt að velta því fyrir mér, nú þegar kosningar nálgast hvort ekki væri von á nýjum áherslum þar sem hugað yrði að því að efla náttúru höfuðborgarinnar. Ég fór því spenntur í gegnum stefnuskrár þeirra flokka sem bjóða sig fram í Reykjavík. Með fyrirvara um að eitthvað hafi farið fram hjá mér olli það mér talsverðum vonbrigðum hversu náttúran fékk lítið rými í þessum plöggum og því liggur beint við að álykta að áfram verði haldið á sömu braut. Í minningunni var umræða um náttúruvernd í borgarlandinu í fyrri tíð meiri, en vera má að mig misminni. Eftir einni stefnu man ég lítillega frá því ég var á unglingsaldri, en það var „Græna byltingin“, stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 1974. Má vera að ég muni eftir stefnunni vegna samnefnds lags á hinni grænu plötu Spilverks þjóðarinnar. Með því að skoða dagblöð á timarit.is má víða finna upplýsingar um stefnuna sem óhætt er að segja að hafi verið framsækin fyrir sinn tíma og væri það raunar enn í dag. Hér á eftir fara nokkur dæmi um aðgerðir sem finna má í stefnunni: Áhersla lögð á náttúruvernd, vistvænt umhverfi og útivist. Athygli beint að eflingu ósnortinna útivistarsvæða. Unnið í auknum mæli að skógrækt í borgarlandinu. Fjármagn sett í líffræðilegar rannsóknir til að kanna og bæta lífsskilyrði fiska í ám og vötnum. Hjólreiða- og göngustígakerfi byggt upp. Stígarnir verði samgöngubót, sem tengi íbúðahverfi við útivistarsvæði. Hér eru sérstaklega nefndir stígar frá Ægissíðu meðfram sjónum um Fossvogsdal, Elliðaárdal og alla leið upp í Heiðmörk. Ég minni á að þessi stefnuskrá var lögð fram fyrir rúmri hálfri öld síðan. Sum markmiðanna urðu að veruleika, önnur ekki. Til upprifjunar var Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta og missti hann ekki fyrr en löngu síðar. Flokkurinn hafði því góðan tíma til að koma stefnunni í framkvæmd. Sú gagnrýni kom fram að stefnan hefði verið góð en henni hefði ekki verið fylgt nægjanlega vel eftir eins og sjá má í texta Spilverksins: „Það eru margar nefndirnar/hvurnig er með efndirnar/ sem sumur lofuðu sumum.“ Og „Setjum nú upp húfurnar/því hún er farin út um þúfurnar/græna – græna byltingin.“ Inntak þessarar stefnu er enn í fullu gildi og hefur líklega aldrei verið mikilvægari en nú. Því er tækifæri ef verðug verkefni skortir fyrir þá fulltrúa okkar sem við munum treysta fyrir stjórnun borgarinnar næstu árin til að sinna náttúruvernd af krafti, þá sérstaklega með því að efla ósnortin útivistarsvæði. Til að forðast óafturkræf áhrif á náttúrulegt umhverfi okkar væri brýnasta verkefnið að koma í veg fyrir að gengið verði enn meira á óbyggð svæði. Í upphafi árs sótti ég afar vel heppnaða leiksýningu 7. bekkjar í Melaskólanum. Ef ég man rétt komu þar fram þrír borgarstjórar sem lofuðu öllu fögru með nákvæmlega sömu ræðunum. Í krafti mikillar framkvæmdagleði þeirra var jafnt og þétt gengið á náttúru grænu eyjunnar sem smám saman fékk á sig grátt yfirbragð. Að lokum stóð eftir örlítill grænn reitur sem hvarf síðan einnig undir gráan stein. Við skulum ekki láta þá framtíðarsýn sem þessi einfalda dæmisaga dregur upp verða að veruleika. Höfundur er borgarbúi og ekki í framboði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ómar H. Kristmundsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Halldór 5.9.2026 Halldór Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar