Heimurinn þarfnast milljón fleiri ljósmæðra Unnur Berglind Friðriksdóttir skrifar 5. maí 2026 08:33 5. maí er alþjóðadagur ljósmæðra. Í ár er yfirskriftin: Heimurinn þarfnast milljón fleiri ljósmæðra. Þú eða einhver sem þú þekkir hefur þurft eða mun þurfa á ljósmóður að halda. Eins og staðan er í dag hafa því miður ekki allir aðgang að ljósmæðraþjónustu. Talið er að það skorti eina milljón ljósmæðra í heiminum. Að brúa þetta bil gæti komið í veg fyrir flest dauðsföll mæðra og nýbura, dregið úr óþarfa inngripum og tryggt að konur og kynsegin fólk fái örugga og einstaklingsmiðaðaþjónustu. Traust er kjarni ljósmóðurstarfsins: traust sem byggist upp með samfelldri þjónustu, nánum tengslum og fagþekkingu. Á tveggja mínútna fresti deyr kona af fylgikvillum tengdum meðgöngu eða fæðingu. Á 17 sekúndna fresti deyr barn í móðurkviði og á hverju ári deyja 2,3 milljónir nýbura á fyrstu 28 dögum ævinnar. Mörg þessara dauðsfalla mætti koma í veg fyrir. Óþarfa keisaraskurðir eru að aukast á ógnvekjandi hraða án þess að skila betri heilsufarslegum árangri og í sumum tilvikum valda þeir bæði skammtíma- og langtíma fylgikvillum. Á sama tíma heldur ofbeldi gagnvart konum áfram á einum viðkvæmasta tíma lífs þeirra. Um allan heim hefur dregið úr réttindum einstaklinga til kynheilbrigðis. Konur fá ekki þá þjónustu sem þær þurfa og þeim gert erfitt að taka upplýstar ákvarðanir um eigin líkama og framtíð. En það er til lausn: fjölgum ljósmæðrum! Ljósmæður geta stutt við heilsu og þarfir kvenna og kynsegin fólks. Raunar geta ljósmæður veitt 90% af nauðsynlegri þjónustu á sviði kynheilbrigðis, mæðraverndar og heilsu nýbura. Fjölgun ljósmæðra getur dregið úr mæðra – og nýburadauða með því að veita sérhæfða, örugga þjónustu á meðgöngu og við fæðingu. Fjölgun ljósmæðra til að veita samfellda, persónulega og upplýsta þjónustu sem verndar heilsu kvenna. Fjölgun ljósmæðra getur komið í veg fyrir illa meðferð og vanrækslu í fæðingu með því að stuðla að virðingu og mannúð gagnvart konum, byggt á trausti og persónulegri umönnun. Fjölgun ljósmæðra getur eflt kynheilbrigði með því að tryggja aðgengi að getnaðarvörnum, öruggri þjónustu vegna þungunarrofs og upplýstu vali. Setjum þetta í tölur: Ein milljón ljósmæðra til viðbótar gæti komið í veg fyrir 67% mæðradauða, 64% nýburadauða og 65% andvana fæðinga og þannig bjargað 4,3 milljónum mannslífa fyrir árið 2035. Það er kominn tími til að heilsa kvenna verði sett í forgang. Við skorum á stjórnvöld og leiðtoga í alþjóðlegri heilbrigðisþjónustu að fjölga ljósmæðrum, styðja við þær og tryggja sjálfbærni ljósmæðrastéttarinnar um heim allan því að fjárfesting í ljósmæðrum er fjárfesting í heilsu kvenna. Til að gera þetta að veruleika hvetjum við stjórnvöld, sameiginlega, til að: Fjárfesta í ljósmæðrum og viðurkenna þær sem lykilstétt í heilbrigðisþjónustu og innleiða stefnu sem gerir ljósmæðrum kleift að starfa að fullu innan síns starfssviðs og veita fjölskyldum örugga og virðingarríka þjónustu. Tryggja ljósmæðrum menntun, færni og úrræði sem þær þurfa til að veita hágæða þjónustu í valdeflandi starfsumhverfi. Fjárfesta í leiðtogahlutverki ljósmæðra þannig að þær hafi áhrif á ákvarðanir er varða starf þeirra. Skrifaðu undir áskorunina og hjálpaðu okkur að safna einni milljón undirskrifta til að krefjast einnar milljónar ljósmæðra til viðbótar og þeirrar fjárfestingar sem þarf til að láta það verða að veruleika. Ljósmæður sameiginlega um heim allan stefna að því að safna einni milljón undirskrifta, einni fyrir hverja þá ljósmóður sem heimurinn þarfnast. Skrifa undir hér : https://millionmore.org/petition/ Höfundur er formaður Ljósmæðrafélags Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar