Sveitarfélög á Íslandi og Evrópusambandið Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar 5. maí 2026 10:16 Nú styttist í kosningar til sveitarstjórna og frambjóðendur byrjaðir að kynna framtíðarsýn sýna fyrir kjósendum og hver framtíð sveitarfélagsins gæti orðið komist þeir til áhrifa. Þegar rætt er um framtíð íslenskra sveitarfélaga er að mörgu að hyggja og að mínu mati m.a. mikilvægt að horfa til þess hvernig alþjóðlegt samstarf getur styrkt nærþjónustu og byggðaþróun. Aðild Íslands að Evrópusambandinu gæti að mínu mati t.d. haft víðtæk og jákvæð áhrif á sveitarfélög á Íslandi, ekki síst hvað varðar fjármögnun verkefna og tækifæri til þróunar. Fyrir utan möguleika á lægri vöxtum og stöðugri gjaldmiðli felast að mínu mati stærstu tækifæri sveitarstjórnarstigsins í aðgangi að umfangsmiklum styrkja- og þróunarsjóðum Evrópusambandsins. Í gegnum slíka sjóði gætu íslensk sveitarfélög sótt fjármagn t.d. til innviðauppbyggingar, umhverfisverkefna og nýsköpunar í þjónustu við íbúa. Aukin þátttaka í samevrópskum verkefnum á að geta styrkt faglegt starf sveitarfélaga. Þar tala ég af reynslu. Ég hef einfaldlega átt gott samstarf við fulltrúa annarra sveitarfélaga í Evrópu sem hefur m.a. leitt til góðra lausna í málefnum ungs fólks, úrgangsmálum, loftslagsmálum og stafrænum umbótum í opinberri þjónustu, í þeim sveitarfélögum sem ég hef starfað, svo eitthvað sé nefnt. Að mínu mati ætti aðild að Evrópusambandinu einnig að geta styrkt stöðu sveitarfélaga í byggðaþróun. Með markvissum stuðningi úr evrópskum byggðasjóðum gætu skapast ný atvinnutækifæri t.d. á landsbyggðunum, sem dregur úr fólksfækkun og styrkir lífsgæði t.d. í minni samfélögum. Framtíð íslenskra sveitarfélaga byggist á getu þeirra til að nýta tækifæri sem þeim bjóðast. Með nánari tengslum við Evrópusambandið og sveitarfélög í Evrópu gætu þau að mínu mati orðið sterkari, sjálfbærari og betur í stakk búin til að þjónusta íbúa sína. Höfundur er þingmaður Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eiríkur Björn Björgvinsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Aukinn stuðningur við leigjendur í Reykjavík Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Sjá meira
Nú styttist í kosningar til sveitarstjórna og frambjóðendur byrjaðir að kynna framtíðarsýn sýna fyrir kjósendum og hver framtíð sveitarfélagsins gæti orðið komist þeir til áhrifa. Þegar rætt er um framtíð íslenskra sveitarfélaga er að mörgu að hyggja og að mínu mati m.a. mikilvægt að horfa til þess hvernig alþjóðlegt samstarf getur styrkt nærþjónustu og byggðaþróun. Aðild Íslands að Evrópusambandinu gæti að mínu mati t.d. haft víðtæk og jákvæð áhrif á sveitarfélög á Íslandi, ekki síst hvað varðar fjármögnun verkefna og tækifæri til þróunar. Fyrir utan möguleika á lægri vöxtum og stöðugri gjaldmiðli felast að mínu mati stærstu tækifæri sveitarstjórnarstigsins í aðgangi að umfangsmiklum styrkja- og þróunarsjóðum Evrópusambandsins. Í gegnum slíka sjóði gætu íslensk sveitarfélög sótt fjármagn t.d. til innviðauppbyggingar, umhverfisverkefna og nýsköpunar í þjónustu við íbúa. Aukin þátttaka í samevrópskum verkefnum á að geta styrkt faglegt starf sveitarfélaga. Þar tala ég af reynslu. Ég hef einfaldlega átt gott samstarf við fulltrúa annarra sveitarfélaga í Evrópu sem hefur m.a. leitt til góðra lausna í málefnum ungs fólks, úrgangsmálum, loftslagsmálum og stafrænum umbótum í opinberri þjónustu, í þeim sveitarfélögum sem ég hef starfað, svo eitthvað sé nefnt. Að mínu mati ætti aðild að Evrópusambandinu einnig að geta styrkt stöðu sveitarfélaga í byggðaþróun. Með markvissum stuðningi úr evrópskum byggðasjóðum gætu skapast ný atvinnutækifæri t.d. á landsbyggðunum, sem dregur úr fólksfækkun og styrkir lífsgæði t.d. í minni samfélögum. Framtíð íslenskra sveitarfélaga byggist á getu þeirra til að nýta tækifæri sem þeim bjóðast. Með nánari tengslum við Evrópusambandið og sveitarfélög í Evrópu gætu þau að mínu mati orðið sterkari, sjálfbærari og betur í stakk búin til að þjónusta íbúa sína. Höfundur er þingmaður Viðreisnar.