Samvinnuhugsjón í leikskólamálum Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar 5. maí 2026 13:02 Leikskólamálin eru eitt stærsta hagsmunamál barnafjölskyldna í borginni og íslensks samfélags alls. Þau samfélög sem standa vel efnahagslega og eru framarlega í jafnréttismálum eiga það sammerkt að hafa fjárfest í leikskólastiginu. Eftir barneignir verða foreldrar að eiga þess kost að komast aftur til vinnu og börn þurfa faglegt og öruggt umhverfi til að þroskast áfram. Í Danmörku eru um 70% barna undir þriggja ára aldri í leikskóla eða dagvistun, en á Íslandi er hlutfallið aðeins um 48%. Við eigum því enn nokkuð í land með að tryggja barnafjölskyldum sambærilega þjónustu og víða á Norðurlöndunum. Því miður hefur borginni ekki tekist nægilega vel að halda utan um dagvistunarmálin, sem birtist meðal annars í biðlistum eftir leikskólaplássum. Til að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla þarf að horfa til fjölbreyttra lausna. Ein slík lausn eru vinnustaðaleikskólar. Hvað eru vinnustaðaleikskólar? Vinnustaðaleikskólar eru leikskólar sem reknir eru af vinnustöðum í samstarfi við borgina og með fjárhagslegum stuðningi hennar. Þeir eru ekki nýir af nálinni. Á árum áður rak Landspítalinn leikskóla og erlendis er slíkt rekstrarfyrirkomulag ekki óalgengt. Hugmyndin byggir á því að borgin geri þjónustusamninga við vinnustaði um rekstur leikskóla. Vinnustaðir legðu til húsnæði undir leikskólann og með samningi við borgina yrði kveðið á um skiptingu leikskólaplássa. Hluti plássanna færi til barna starfsfólks og hluti til barna úr hverfinu þar sem leikskólinn væri staðsettur. Þannig færu saman hagsmunir vinnustaðarins og borgarinnar um fjölgun leikskólaplássa, auk þess sem félagsleg blöndun yrði tryggð. Slíkir samningar tryggja að leikskólavist barns sé ekki tengd ráðningarsambandi foreldra. Barn á ekki að missa leikskólapláss þótt foreldri eða forsjáraðili skipti um starf. Við höfum þegar séð að slíkar lausnir geta gengið vel, til dæmis rekur Félagsstofnun stúdenta leikskóla sem þjónar bæði stúdentum og fólki úr hverfinu. Námsmaður missir því ekki leikskólapláss við leikskólann þótt hann hætti í námi. Í grunninn er sú nálgun ekki ólík hugmyndinni um vinnustaðaleikskóla. Uppleggið yrði þá þannig að Reykjavíkurborg myndi greiða með börnunum með sambærilegum hætti og öðrum sjálfstætt starfandi leikskólum og gjöld í leikskóla yrðu þau sömu og í borgarreknum leikskólum. Forsenda samstarfs við borgina um vinnustaðaleikskóla á auðvitað að vera að allt starf í vinnustaðaleikskólum byggi á faglegum sjónarmiðum. Leikskólinn er fyrsta skólastigið og allir leikskólar þurfa að starfa samkvæmt lögum og reglum um leikskólastarf, aðbúnað barna og starfsfólks. Slíkir leikskólar lúta því sama opinbera eftirliti og aðrir sjálfstætt starfandi leikskólar. Fögnum fjölbreyttum lausnum Borgarreknir leikskólar verða áfram meginþungi leikskólakerfisins, en það þýðir þó ekki að við eigum að útiloka aðra valkosti eða hafna samstarfi við aðila sem vilja leggja sitt af mörkum til að fjölga leikskólaplássum. Þvert á móti eigum við að fagna því þegar félagasamtök, sjálfstætt starfandi aðilar eða vinnustaðir vilja opna leikskóla og taka þátt í að leysa þann vanda sem blasir við barnafjölskyldum. Vinnustaðir hafa nú þegar lýst yfir áhuga á að opna leikskóla í samstarfi við borgina. Fyrr á kjörtímabilinu voru unnin drög að umgjörð vinnustaðaleikskóla, en sú vinna var lögð til hliðar með tilkomu nýs meirihluta undir stjórn Samfylkingar. Við í Framsókn viljum að auglýst verði eftir áhugasömum aðilum og að hafin verði vinna við reglur og upplegg að þjónustusamningi um leikskólarekstur við vinnustaði í borginni. Vinnustaðaleikskólar eru ekki töfralausn við öllum vanda, ekki frekar en aðrar lausnir. Þeir geta hins vegar aukið fjölbreytni í leikskólastarfi, skapað öðruvísi námsumhverfi, aukið val foreldra og veitt meira svigrúm til að mæta ólíkum þörfum fjölskyldna. Til dæmis mætti hugsa sér aukinn sveigjanleika í opnunartíma þar sem slíkt á við. Landspítalinn gæti boðið upp á dagvistun sem tæki mið af vaktavinnu starfsfólks, en slík útfærsla gæti skipt miklu máli fyrir foreldra sem vinna utan hefðbundins skrifstofutíma. Tillagan er nýsköpun í opinberri þjónustu og byggir á samvinnuhugsjón. Hún gefur vinnustöðum tækifæri til að sýna samfélagslega ábyrgð og bæta þjónustu við starfsfólk sitt, um leið og þeir þjóna nærumhverfi sínu í borginni. Í dag þurfa börn oft að bíða lengi eftir leikskólaplássi og fá ekki alltaf pláss í sínu hverfi. Við skuldum barnafjölskyldum að leita allra leiða til að brúa bilið. Aukum frelsi og sveigjanleika í leikskólamálum til að mæta þörfum fjölskyldna með því að styðja við vinnustaði og félagasamtök sem vilja opna daggæslu fyrir yngstu börnin eða vinnustaðaleikskóla. Höfundur skipar 2. sætið á lista Framsóknar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Magnea Gná Jóhannsdóttir Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar