Til fréttastofu RÚV Þórður Magnússon skrifar 6. maí 2026 08:41 “Átökin hófust þegar að Hezbollah skaut eldflaugum yfir til Ísrael í byrjun mars”, hljómaði í kvöldfréttum Rúv 4. maí. Þetta er búið að endurtaka fyrir okkur eins og möntru, sem formála að hverri einustu frétt um árásarstríð Ísraela á hendur nágrönnum sínum í norðri. Það er óumdeilanleg staðreynd að Ísraelar héldu áfram að sprengja og myrða fólk í Líbanon í gegnum allt þetta svokallaða "vopnahlé". Eldflaugarnar fyrrgreindu skipta nákvæmlega engu máli nema bara í hugum þeirra sem vilja réttlæta enn frekari morð og sprengingar. Í fréttatíma RÚV 3. maí var líka fullyrt, nánast eins og um væri að ræða óumdeilanlega staðreynd, að Ísraelar væru að ráðast á Hezbollah skotmörk. Í hvaða búbblu eru þið? Fullyrðingar Ísraelska hersins eru ekki traustar heimildir til að fara með gagnrýnislaust í fréttum. Þær eru eins ótraustverðugar og hugsast getur. Allir sjá og vita að verið er að sprengja tilviljunarkennd borgaraleg skotmörk og almenna innviði eins og sjúkrahús og samgöngumannvirki. Hezbollah er jú vissulega þarna en það réttlætir ekki að leggja heilu byggðarlögin í rúst og getur ekki gert annað en að styrkja Hezbollah og mótspyrnuna við yfirgang Ísraela. Hvernig getur fréttastofa RÚV endurómað þennan áróður frá Ísraelskum hermálayfirvöldum gagnrýnislaust þegar að dæmið frá Gaza blasir við. Ísraelski herinn er búinn að jafna allt við jörðu í Gaza, og ef það var ekki ljóst frá upphafi þá er það augljóst núna að aldrei stóð til að "ráða niðurlögum Hamas" (eins og RÚV var jafnan duglegt að enduróma), heldur að gera Gaza óbyggilegt með öllu, með það að markmiði að flæma heila þjóð úr sínu landi, eða þá sem eftir eru. Nú eru Ísraelar að endurtaka það sama í Líbanon. Það blasir við að þetta er landvinningastríð, eða það sem einu sinni var nefnt Lebensraum. Enn og aftur, í hvaða búbblu eru fréttamenn RÚV? Eruð þið bara alveg sátt við að vera hluti af spunamaskínu Ísraelskra stríðsæsingar-manna? Og þar með samsek. Gerið þið fréttamenn RÚV, ykkur enga grein fyrir því hvernig sagan mun dæma ykkur? Viljið þið vera minnst sem þeirra sem fram í rauðan dauðann, vörðu ekki bara árásar- og landvinninga-stríð, heldur einnig þjóðernishreinsanir og þjóðarmorð. Vegna þess að "One Day, Everyone Will Have Always Been Against This” svo vitnað sé í titil bókar eftir kanadíska rithöfundinn og blaðamanninn Omar El Akkad. En þessi óvandaði fréttaflutningur er síður en svo eitthvað nýtt svo hér vil ég nefna tvö önnur dæmi sem eru sérstaklega eftirminnileg: Eitt sinn var sagt frá því, eins og um væri að ræða frétt byggða á traustum heimildum, að Ísraelski herinn hefði fundið stjórnstöð Hamas á bak við MRI skanna á spítalalóð og sýnt var meðal annars veggplakat og hafðar voru uppi vafasamar fullyrðingar um hvað þar stæði sem sönnun þess að þarna hefðu Hamasliðar ráðið ráðum sínum. Sannleikurinn kom fljótlega í ljós, þarna var um að ræða venjulegt dagatal. Mjög svo neyðarlegt fyrir þá sem vilja vera vandir að virðingu sinni, en það sem jafnvel verra er: Þessi frétt var aldrei leiðrétt, þó svo að fram kæmu sannanir þess að þarna stóð ekki steinn yfir steini í fullyrðingum ísraelska hermálayfirvalda. Líklega er það partur af strategíu lobbíistanna að koma með svo vafasamar fullyrðingar að fréttastofur sem falla í gildruna skammist sín svo mikið að þær þori ekki fyrir sitt litla líf að leiðrétta bullið. Enn og aftur er ísraelski herinn augljósleg eina heimildin. Í annað skipti var sagt var frá árásum múslíma á ísraelska ferðamenn sem í sakleysi sínu voru komnir til Amsterdam til að horfa á fótboltaleik. Í þetta skiptið var það reyndar ljóst frá upphafi að það voru þeir sjálfir, ísraelsku fótboltabullurnar sem áttu frumkvæðið að þeim ofbeldisverkum sem þarna voru unninn. Það voru þeir sem réðust að fyrra bragði á fólk sem var dekkra á hörund, syngjandi söngva um “death to arabs”. Sannleikurinn kom fljótt í ljós og allir virtir fjölmiðlar sem vilja taka sig alvarlega, sem þarna féllu í gildru spunameistaranna, sendu frá sér leiðréttingar næstu daganna og jafnvel afsökunarbeiðni vegna þessarar fréttar. The Guardian setti saman ítarlega greiningu með tímalínu sem sýndi svart á hvítu að fótboltabullurnar höfðu alltaf frumkvæðið. Þessi frétt var hins vegar aldrei leiðrétt á RÚV. Ég er enn að hitta fólk sem illu heilli fær allar sínar fréttir einungis frá RÚV sem enn trúir því fyrstnefnda. Það er grundvallaratriði ef menn vilja láta taka sig alvarlega og vilja vera vandir að virðingu sinni, að þá leiðrétta menn rangfærslur við fyrsta mögulega tækifæri. Að lokum, það að enduróma í sífellu áróður ísraelsku áróðursmaskínunnar gagnrýnislaust er ekki “hlutlaus fréttaflutningur”. Allt sem þaðan kemur eru falsfréttir til þess gerðar að rugla fólk í ríminu svo það viti ekki hvað snýr upp og hvað snýr niður. Fréttamenn verða að fara að vanda sig betur annars eru þeir bara enn ein viðbótin í falsfrétta-síbyljuna sem herjar á okkur endalaust í nútímanum. Höfundur er tónlistarmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið En stelirðu miklu... Ögmundur Jónasson Skoðun Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir Skoðun Ekki má draga víðtækar ályktanir af veikum gögnum Helga Rósa Másdóttir,Steinunn Þórðadóttir Skoðun Menntun fyrir mennsku Fanney Dóróthe Halldórsdóttir Skoðun Halldór 11.07.2026 Halldór Krónuskatturinn á kynslóðirnar: mesti skattur Íslandssögunnar Baldur Pétursson Skoðun Minnir á kafla úr bók Franz Kafka Sigurður Páll Jónsson Skoðun „Að deila og drottna“ - hugleiðingar miðaldra konu að kvöldlagi Ingibjörg Einarsdóttir Skoðun Það er mér í hag að hinsegin fánar séu sýnilegir Daníel Ágúst Gautason Skoðun Kannski erum við að spyrja rangra spurninga Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Skoðun Skoðun En stelirðu miklu... Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Menntun fyrir mennsku Fanney Dóróthe Halldórsdóttir skrifar Skoðun Ekki má draga víðtækar ályktanir af veikum gögnum Helga Rósa Másdóttir,Steinunn Þórðadóttir skrifar Skoðun Krónuskatturinn á kynslóðirnar: mesti skattur Íslandssögunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Það er mér í hag að hinsegin fánar séu sýnilegir Daníel Ágúst Gautason skrifar Skoðun Minnir á kafla úr bók Franz Kafka Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Kannski erum við að spyrja rangra spurninga Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun „Að deila og drottna“ - hugleiðingar miðaldra konu að kvöldlagi Ingibjörg Einarsdóttir skrifar Skoðun Þegar maður gengur gegn eigin gildum Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Hvernig fyrirbyggjum við heimilisleysi eftir meðferð vegna vímuefnaröskunar? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Dulinn kostnaður við kreditkortið þitt Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hljóðlát endalok íslensku vefumsjónarkerfanna Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Það borgar sig að skoða kostina Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Hvað sér unga fólkið sem ég sé ekki? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Hlutdrægni RÚV í ESB umræðunni Birgir Finnsson skrifar Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. skrifar Skoðun Það er alltaf til byssa. Vertu blómið! Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir skrifar Skoðun Tennur og tryggingar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti skrifar Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug skrifar Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Verum góð við hvort annað Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson skrifar Sjá meira
“
Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir Skoðun
Skoðun Ekki má draga víðtækar ályktanir af veikum gögnum Helga Rósa Másdóttir,Steinunn Þórðadóttir skrifar
Skoðun „Að deila og drottna“ - hugleiðingar miðaldra konu að kvöldlagi Ingibjörg Einarsdóttir skrifar
Skoðun Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar
Skoðun Hvernig fyrirbyggjum við heimilisleysi eftir meðferð vegna vímuefnaröskunar? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar
Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir Skoðun