Gylfi: „Dómararnir í þessum leik virðast ekki hafa almenna þekkingu“ Árni Jóhannsson skrifar 6. maí 2026 21:46 Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík var allt annað en ánægður með dómgæsluna í dag. Guðmundur/Vísir Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík var mjög svekktur vegna ýmissa atriða varðandi tap sinna kvenna í kvöld gegn FH. Leikurinn endaði með 2-1 sigri heimakvenna en þjálfarinn gat alveg verið stoltur af sínum konum.
Blaðamaður opnaði viðtalið með spurningunni hvað Gylfi væri svekktastur með varðandi leikinn. Gylfi notaði ansi margar sekúndur í að hugsa sig vel um og opnaði svo flóðgáttirnar. „Ég er svekktastur með það að þurfa að koma hingað í Kaplakrikann í byrjun maí. Ég hefði viljað koma hingað í júlí því þá hefði þetta getað orðið skemmtilegur leikur. Mér fannst þetta ekki skemmtilegur leikur, fyrir okkur, á sama tíma fannst mér FH spila góðan leik í dag. Þetta er virkilega gott lið. Það er engin skömm að því að koma hingað og vera lakari aðilinn. Ég held að ef völlurinn hefði verið í betra standi þá myndi það henta okkur betur en mörgum öðrum.“ Gylfi talaði þá um það sem væri gott við Bestu deild kvenna t.a.m. mikla umfjöllun, góða mætingu á leikina og fjölda góðra liða. Svo sneri hann sér að dómgæslunni. „Ég á ekki orð yfir dómgæslunni og ég er ekki bara að tala um okkar lið. Þeir eru eini þátturinn sem er ekki mættur til leiks. Það sjá allir það í dag sem hafa einhverja örlitla þekkingu á knattspyrnulögunum að sigurmarkið kemur eftir víti sem átti ekki að vera. Natasha er að tækla og nota hendina til að styðja sig við. Einhversstaðar verður höndin að vera og þetta er bara skólabókardæmi um það sem á ekki að vera víti. Ég hélt að þetta væri almenn þekking.“ „Dómararnir í þessum leik virðast ekki hafa almenna þekkingu. Ég fagnaði þegar ég sá hver var að dæma leikinn því hann er almennt góður dómari. Hann var með einvherskonar mikilmennskubrjálæði í dag og ólíkur sjálfum sér sem persóna og dómari. Það er svona það helsta sem ég er svekktur með til að svara spurningunni.“ FH vildi fá tvær vítaspyrnur í fyrri hálfleik og lét þjálfarateymi FH vel í sér heyra varðandi það. Spilaði það kannski inn í ákvörðun dómarans að dæma víti á áðurnefnt atriði? „Þeir eru umtalaðir á hliðarlínunni. Ég kippi mér nú ekki upp við það. Ef það átti að vera einhver vítaspyrna í fyrri hálfleik þá átti það að vera til okkar þegar Emma Phillips er toguð niður í teignum og það sést ofboðslega vel frá mínu sjónarhorni. Sem er það nákvæmlega, nákvæmlega sama sjónarhorn og háttvirtur fjórði dómari er með. Það er nákvæmlega sama sjónarhorn og var í Valsleiknum en fengum ekki. Nú áttum við líklega að fá víti en fengum ekki.“ „FH átti allavega klárlega ekki að fá vítaspyrnu og það er mjög sársaukafullt þegar við erum búnar að lifa af. FH var sterkara liðið í dag en við vorum búnar að lifa af í 65 mínútur og leikurinn var að opnast sem hefði hentað okkur betur og við fengum eitt eða tvö tækifæri til að refsa og náum því ekki. Ef dómarinn hefði tekið rétta ákvörðun þá held ég að við hefðum getað fengið fleiri skemmtilegar stöður til að fá eitthvað út úr þessum leik. Þetta er allavega annar af tveimur leikjum okkar sem dómarinn hefur áhrif á úrslit leiksins og það er eina markmið dómarans að hafa ekki áhrif á úrslit leiksins.“ Gylfi hætti svo að tala um dómarana og var spurður um það hvað væri jákvætt við leik Grindavík/Njarðvík. Hann taldi að hann þyrfti að greina leikinn til að sjá hvað væri jákvætt en var ánægður með karakterinn og baráttuna í liðinu hans í dag. Hann taldi þó að liðið sitt hefði ekki verið nógu gott og ekki náð að spila þann leik sem þær vilja gera. „Það er engin skömm að því að tapa fyrir FH í dag. Þær voru góðar í dag.“
UMF Grindavík UMF Njarðvík Besta deild kvenna Tengdar fréttir FH - Grindavík/Njarðvík 2-1 | Fyrsti sigur FH kom gegn nýliðunum FH tók á móti nýliðum Grindavík/Njarðvík og náði í fyrsta sigur tímabilsins og það í fyrsta heimaleik tímabilsins. FH náði loksins að skora tvö mörk en Ingibjörg Magnúsdóttir skoraði sigurmark heimakvenna um miðjan seinni hálfleik. Staðan 2-1 að lokum. 6. maí 2026 21:07 Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Serbía - Ísland | Mæta Jokic í gini úlfsins Körfubolti Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Man. City verður meistari Sport Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Enski boltinn „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Handbolti „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ Körfubolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Fleiri fréttir Jón Dagur skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir Berlínarbúa Crystal Palace - Manchester City | Erfiður leikur fyrir ernina Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Mun sýna leiki þýsku úrvalsdeildarinnar á YouTube-rás sinni Rafael Leão til Galatasaray Dregið í Sambandsdeild: Íslendingar mætast og spila við nýliðana frá Andorra Dregið í Evrópudeild: Orri mætir Palace, Bournemouth og Juventus Styðja við börn með krabbamein: Arnór í búningi Rice á fyrsta Treyjudeginum Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt Sjá meira
FH - Grindavík/Njarðvík 2-1 | Fyrsti sigur FH kom gegn nýliðunum FH tók á móti nýliðum Grindavík/Njarðvík og náði í fyrsta sigur tímabilsins og það í fyrsta heimaleik tímabilsins. FH náði loksins að skora tvö mörk en Ingibjörg Magnúsdóttir skoraði sigurmark heimakvenna um miðjan seinni hálfleik. Staðan 2-1 að lokum. 6. maí 2026 21:07