Menntamálin sem við forðumst að ræða Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar 7. maí 2026 08:11 Umræða um grunnskólann er nokkuð hávær um þessar mundir og eðlilega sýnist sitt hverjum. Þegar vel er að gáð þá virðist umræðan oft vera fremur á yfirborðinu en snerta á því sem mér finnst vera kjarni málsins. Mig langar því að nefna nokkur atriði sem varða málefni grunnskólans, sérstaklega atriði sem við virðumst síður vilja horfast í augu við. Einkunnakerfi skipta litlu máli Mörgum hefur orðið tíðrætt um einkunnarkerfi og sett í samhengi þann vanda sem við stöndum frammi fyrir. Það er í senn einföld og villandi framsetning. Í daglegu lífi notum við fjölmörg mismunandi matskerfi og skiljum þau flest býsna vel. Við notum til að mynda eitt kerfi fyrir lofthita, annað fyrir bókmenntir og kvikmyndir, það þriðja fyrir ökuhæfi bifreiða og svo mætti lengi telja. Einkunnakerfi eru ekki undantekning, heldur kerfi sem auðvelt er að skilja ef vilji er til staðar. Vandinn er því ekki hvort við notum tölur, bókstafi eða liti. Einkunnir bæta hvorki gæði náms né kennslu. Fræðimenn á borð við Alfie Kohn og Susan Blum hafa bent á að einkunnir geti jafnvel dregið úr raunverulegu námi. Það sem skiptir máli er að nemendur fái markvissa endurgjöf, leiðsögn og tækifæri til að bæta sig. Það hefur ekkert með einkunnir að gera. Þetta ætti að vera kjarninn í raunverulegu námi. Aðalnámskrá er ekki vandamálið Ég hef heyrt því haldið fram að Aðalnámskrá grunnskóla sé óskiljanleg. Það stenst illa að mínu mati. Hún er skýr í meginatriðum en okkur kennurum er falið að útfæra hana í verki. Þar liggur áskorunin. Í Aðalnámskrá er lögð áhersla á að nemendur takist á við fjölbreytt verkefni og geti mætt áskorunum samtímans. Áherslan liggur því ekki lengur á að kunna ákveðin atriði utanbókar eins og þegar ég var í grunnskóla, heldur að geta aflað sér þekkingar og færni, metið hvoru tveggja og loks beitt því sem þau hafa lært. Þannig mætti segja að markmiðið sé að gera nemendur klára. Grunnskólinn er enn að færa sig að fullu yfir í þessa hugmyndafræði og þar þurfum við kennarar að líta í eigin barm. Hefðum við kennarar getað tileinkað okkur hugmyndafræðina fyrr? Gæði kennslu eru sjaldan tekin út Ég hef starfað í kennslu í nokkur ár og unnið með mörgum afar hæfum og metnaðarfullum kennurum. Ég hef þó aldrei upplifað að kennsla mín sé tekin út af utanaðkomandi aðilum. Okkur þykir sjálfsagt að eftirlit sé innan heilbrigðiskerfisins og fleiri opinberra kerfa. Af hverju ætti það ekki að eiga við um skólastarf? Ef við erum sammála um að menntun skipti sköpum fyrir samfélagið, eins og hefur meðal annars verið bent á í umræðu á vettvangi OECD, þá er eðlilegt að spyrja hvernig við tryggjum gæði hennar? Ábyrgð foreldra skiptir máli Börn læra það sem fyrir þeim er haft. Þetta eru einföld en mikilvæg sannindi. Því meiri virðingu sem við foreldrar sýnum námi barna okkar, fylgjumst með og styðjum þau, því betur gengur þeim að jafnaði. Þegar fjarvera frá skóla getur numið mörgum vikum á skólaári er kannski kominn tími til að staldra við og spyrja hvort við séum á réttri leið hvað það varðar. Það er svo auðvelt að kenna skólanum um þegar áhugi nemenda dvínar. Hins vegar er erfitt fyrir skólann að keppa við tölvuleiki, samfélagsmiðla og annað álíka afþreyingarefni. Við sem foreldrar þurfum þarna að vera fyrirmyndir. Ef skilaboðin, hvort heldur sem er beint eða óbeint, frá okkur eru að starf skólans skipti litlu máli, þá er afar erfitt fyrir kennara að snúa við þeirri hugmynd í skólastofunni. Mjög margir foreldrar standa sig vissulega afar vel en því miður er þetta tilfinning margra kennara sem ég hef rætt við í gegnum tíðina. Virðing fyrir námi barna virðist fara minnkandi. Skrefin fram á við Ef við ætlum að bæta grunnskólann þurfum við að horfast í augu við að vandinn er ekki einfaldur og lausnirnar eru það ekki heldur. Það dugar ekki að leita skyndilausna, eins og að breyta einkunnakerfum. Við þurfum að efla faglegt eftirlit með kennslu, styðja kennara í að vinna eftir aðalnámskrá og skapa menningu þar sem nám nýtur virðingar bæði í skólum og á heimilum. Það krefst samvinnu allra hlutaðeigandi. Markmiðið er einfalt þó að leiðin sé krefjandi. Við viljum að börnin okkar verði hæf til að takast á við lífið, samfélagið og framtíðina. Til þess þarf meira en eina skyndilausn. Það þarf samfélag sem lætur sér annt um menntun og leggur metnað sinn í að gera börn klár. Höfundur er grunnskólakennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson Skoðun Skoðun Skoðun Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson skrifar Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn er að grafa sína eigin gröf Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun skrifar Skoðun Við unnum stóra vinninginn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Noregur verður hluti af kjarnorkuvernd Frakka Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Það sem mun sökkva okkur Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ef Ísland sækir um „djobbið“ Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Gervigreind mun ekki skipta út leiðtogum. Hún mun afhjúpa þá Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Enginn kemst langt með skóflu eina að vopni Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Að gera upp á milli barna Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hólar í Hjaltadal á uppboð Jón Bjarnason skrifar Skoðun Er ekki best að tala bara íslensku um ESB og matvælaverð? Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Lausnin sem leysir ekkert Jóhann Skagfjörð Magnússon skrifar Skoðun Vestmannaeyjabær, þar sem þögn er þegjandi samkomulag Linda Rós Sigurdardóttir skrifar Skoðun Starfsfólkið er öflugasta varnarlínan Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Þegar samkennd og tortryggni lifa hlið við hlið á netinu Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Geðheilbrigðisþjónusta óháð efnahag? Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Um skipulag bæja Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun 790.000 veikindadagar á ári Gunnlaugur Már Briem skrifar Sjá meira
Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir Skoðun
Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar
Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar
Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar
Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar
Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir Skoðun