Leðurblökur í ráðhúsinu Elías Blöndal Guðjónsson skrifar 7. maí 2026 11:32 Það er athyglisvert að fylgjast með vorverkunum í ráðhúsinu í ár. Þar er nú unnið hörðum höndum að því að mála nýjar myndir af gömlum flokkum vegna sveitarstjórnarkosninga sem eru í nánd. En þrátt fyrir lipur tilþrif nýrra oddvita reynist erfitt að flýja undan eigin skugga. Breytingar á eigin verkum Nýjasta útspil Viðreisnar er áhugavert í rökfræðilegu tilliti. Í miðri auglýsingaherferð flokksins birtast frambjóðendur nú á hvolfi eins og leðurblökur í ráðhúsinu undir slagorðinu ,,Snúum borginni við”. Svo virðist sem flokkurinn geti illa stært sig af eigin verkum síðustu átta ára og hafi því ákveðið að boða breytingar á nákvæmlega þeim verkum sem hann hefur sjálfur tekið fullan þátt í að framkvæma. Ef borgin er á hvolfi í dag þá er það jú undir þeirra stjórn sem það gerðist. Það krefst tilþrifa í pólitískum loftfimleikum að ætla að selja kjósendum þá hugmynd að sá sem hvolfdi málunum sé best til þess fallinn að rétta þau af. En nýr oddviti flokksins gekk enn lengra og fullyrti í nýlegri grein að „borgin hefði hætt að hlusta“ á íbúa fyrir um áratug síðan. Þetta er ótrúlegt dæmi um gleymsku sem ef til vill má rekja til þess að viðkomandi hefur hangið á hvolfi of lengi. Viðreisn hefur nefnilega verið hluti af borgarstjórn nánast allan þann tíma sem oddvitinn telur að borgarfulltrúar hafi eingöngu hlustað á sig sjálfa. Maður spyr sig hversu mikið blóð þarf að renna til höfuðsins á almannatenglum til að þeim finnist það góð hugmynd að auglýsa eigin árangur með því að sýna að hlutirnir snúi allir vitlaust og viðurkenna um leið að flokkurinn hafi hreinlega ekkert verið að hlusta á borgarbúa síðustu tvö kjörtímabil - í átta ár. Rauði dregillinn tekinn úr geymslunni Samfylkingin vildi ekki láta slá sér við í þessari keppni um furðuleg útspil. Þar á bæ var kynntur til leiks nýr oddviti sem mætti með áhugaverða blöndu af loforðum. Annars vegar ætlar hann loksins að „rúlla út rauða dreglinum“ fyrir atvinnulífið. Þessi dregill hefur sjálfsagt verið í læstri geymslu í ráðhúsinu síðan 2010. Á sama tíma hefur hann hins vegar miklar áhyggjur af „tvöföldu kerfi“ leikskólanna – þar sem átt er við einkarekin fyrirtæki sem redda málunum á meðan borgarkerfið skilar auðu. Mega semsagt bara sum fyrirtæki ganga á þessum rauða dregli? Til að tækla þennan sjálfskapaða vanda lofar oddvitinn nú „dúndurfókus“ á leikskólamálin til að leysa þau í eitt skipti fyrir öll. Það fær mann óneitanlega til að spyrja sig hvers konar fókus hefur verið á leikskólamálunum hjá flokknum síðustu sextán árin - fjögur kjörtímabil í röð? Gleymdist kannski að taka linsulokið af? Það krefst hugrekkis að boða nýja tíma með rauðum dregli þegar maður hefur stýrt borginni óslitið í tæpa tvo áratugi. Samfylkingin er arkitektinn að því kerfi sem nú er í gildi og því er þessi nýfundni áhugi á því að gera sér dælt við atvinnulífið og foreldra leikskólabarna í besta falli ótrúverðugur. Góður hugur á hvolfi Enginn dregur í efa að frambjóðendurnir eru prýðisfólk sem mætir til leiks með góðan ásetning. En góður hugur dugar skammt þegar fyrri verk eru lögð í dóm kjósenda. Það er hægt að vera með hjartað á réttum stað þótt maður hangi á hvolfi og það er hægt að meina vel þótt maður þurfi að nota gamla dregla til að breiða yfir eigin slóð. Málið snýst nefnilega ekki um persónur og leikendur heldur trúverðugleika sögunnar sem verið er að segja. Kjósendur kaupa ekki ,,nýtt upphaf” af flokkum sem hafa borið ábyrgð á kerfinu síðustu tvo áratugi. Sviðsljósið og skuggarnir Vandamálið við að flýja undan eigin skugga er að það er ekki hægt - sérstaklega ekki í sviðsljósi kosningabaráttunnar. Það skiptir ekki máli hvort þú hangir á hvolfi eða reynir að breiða yfir vandamálin með rauðum dregli - skugginn fylgir þér alltaf. Vandinn í málefnum borgarinnar er raunverulegur en lausn meirihlutans eru sjónhverfingar. Með því að snúa myndinni á hvolf og rúlla út dreglum er reynt að fela staðreyndirnar. Þau treysta því að ef umbúðirnar eru nógu glæsilegar þá muni kjósendur gleyma því að innihaldið er nákvæmlega það sama og áður. Höfundur skipar 22. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar