Aukið aðgengi að áfengi? Lísbet Sigurðardóttir skrifar 7. maí 2026 12:04 Opið bréf til þingmanna varðandi frumvarp til laga um breytingu á áfengislögum nr. 75/1998 Kæri þingmaður, þetta bréf er skrifað með þeim tilgangi að biðja þig að íhuga vel og vandlega hvort þú viljir ekki setja þig á móti því að netsala áfengis sé heimiluð með lögum. Það hljómar nú ekki svo agalega að heimila vefverslun með áfengi. Hvers vegna ætti fólk ekki að mega panta sér áfengi á netinu þegar því hentar alveg eins og það getur pantað sér allt annað og látið senda heim? Þegar málið er skoðað út frá lýðheilsu, forvörnum og vernd barna og ungmenna blasir við að um er að ræða verulega breytingu á aðgengi að áfengi og þar með á þeirri forvarnarstefnu sem Ísland hefur byggt upp um árabil. Dregið hefur úr áfengisnotkun ungmenna hér á landi á undanförnum áratugum (ESPAD, 2025), sá árangur hefur ekki náðst af sjálfum sér, heldur með markvissri stefnu, skýrum samfélagslegum viðmiðum og takmörkunum á aðgengi. Rannsóknir sýna að sala áfengis í gegnum vefverslanir tengist aukinni áfengisdrykkju og áhættu á ölvunardrykkju. Með því að heimila vefverslun með áfengi er aðgengi að áfengi aukið verulega. Í þeim löndum sem hafa leyft sölu á netinu hefur reynst erfitt að tryggja virkt eftirlit með aldurstakmörkunum og þar með eru lög og reglur sniðgengnar. Hagnaður einkaaðila af áfengissölu hefur aukist á þeim stöðum sem netsala hefur verið heimiluð, fleiri söluaðilar koma að borði með óvæginni markaðssetningu sem vilja auka sölu og þar með ýta undir meiri drykkju (Bujalski & Rowicka, 2024; Brownbill, Carah, & Pettigrew, 2025). Áfengisnotkun er sérstaklega skaðleg börnum og ungmennum þar sem líkami og heilastarfsemi ná ekki fullum þroska fyrr en um 25 ára aldur. Að byrja fyrr notkun áfengis eykur líkur á fíkn margfalt. Fjármagn þeirra sem standa á bakvið áfengisiðnaðinn er gríðarlegt og beita þeir sér leynt og ljóst að því að ná byrjendum sem yngstum til að tryggja sér framtíðarviðskiptavini. Hér er verið að leggja til kerfi sem mun leitast við að hámarka hagnað ítrustu einkahagsmuna aðila í andstöðu við núverandi fyrirkomulags sem hefur meðal annars það hlutverk að vinna gegn skaðlegri notkun áfengis. Forvarnarstefna Íslands í áfengismálum hefur verið fyrirmynd annarra ríkja með einkasölu ríkisins á áfengi, líkt og Alþjóðaheilbrigðisstofnun hefur nýlega bent á, og ítrekað í gegnum tíðina, því með henni eru takmarkanir á fjölda sölustaða, opnunartíma, opnunardaga, verðstýring og auðveldara er að framfylgja aldurstakmörkunum (WHO, 2025). Samkvæmt OECD eru einkareknar netverslanir í vaxandi mæli að draga úr áhrifum þessarar stefnu (OECD, 2025). Saman-hópurinn vill minna á hversu mikilvægt er að stjórnvöld styðji foreldra/forsjáraðila og samfélagið í heild í uppeldishlutverki sínu með því að draga frekar úr aðgengi að áfengi en að auka. Ef vefverslun með áfengi verður heimiluð með lögum er um leið verið að draga úr þeim skilaboðum að áfengi beri að varast og umgangast með varfærni vegna alvarlegra heilsufars- og samfélagslegra afleiðinga sem það getur haft. Látum fjárhagslega hagsmuni söluaðila ekki vega þyngra en vernd barna og ungmenna og þær langtímaafleiðingar sem umræddar lagabreytingar gætu haft á samfélagið í heild. Höfundur er verkefnastjóri Saman-hópsins og er bréfið skrifað fyrir hönd hópsins. Saman-hópurinn hefur starfað að forvörnum frá árinu 1999 með það að markmiði að efla samstarf þeirra sem vinna að málefnum barna og ungmenna. Starf Saman-hópsins beinist fyrst og fremst að foreldrum / forsjáraðilum, sem eru lykilþáttur í forvörnum. Hópurinn leggur áherslu á mikilvægi ábyrgðar, samveru, jákvæðra samskipta og skýrra marka í uppeldi barna. Hópinn skipa um 30 tengiliðir frá sveitarfélögum, opinberum stofnunum og öðrum samstarfsaðilum, sem öll starfa með einum eða öðrum hætti að velferð barna og ungmenna. Heimildir: Bujalski, M., & Rowicka, M. (2024). Alcohol purchases through online stores and mobile applications in the late phase of the COVID-19 pandemic in Poland. Nordisk alkohol- & narkotikatidskrift : NAT, 41(5), 509–521. https://doi.org/10.1177/14550725241270204 Brownbill, A., Carah, N., & Pettigrew, S. (2025, september). Online sale, delivery and advertising of alcohol in Australia: Behaviour, attitudes and support for change. Foundation for Alcohol Research and Education, The University of Queensland, & The George Institute for Global Health European Union Drugs Agency. (2025). Key findings from the 2024 European School Survey Project on Alcohol and Other Drugs (ESPAD). OECD. (2025). EU Country Cancer Profile: Iceland 2025. OECD Publishing. World Health Organization Regional Office for Europe. (2025, February 3). WHO/Europe highlights Nordic alcohol monopolies as a comprehensive model for reducing alcohol consumption and harm.Stjórnartíðindi. (2011). Reglugerð nr. 756/2011 um Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins. Ísland.is. https://island.is/reglugerdir/nr/0756-2011 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Áfengi Mest lesið Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson Skoðun Skoðun Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Traust er ekki sjálfgefið Hilmar Freyr Gunnarsson skrifar Skoðun Evrópusambandið, skjól frá Bandaríkjunum? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar