Fangelsi fyrir fjölskyldur - Ekki nota börn sem peð í pólitískri skák Alma Mjöll Ólafsdóttir skrifar 7. maí 2026 14:01 Það er sorglegt að horfa uppá á þingmenn í ríkisstjórn kynna „mýkri“ útgáfu af frelsissviptingu barna örfáum dögum fyrir sveitarstjórnarkosningar og ætla svo almenningi að trúa því að hér hafi orðið grundvallarbreyting. Börn eiga enn að vera læst inni. Bara ekki á sama stað og barnlausa fólkið. Í frétt RÚV kemur fram að lagt sé til að börn verði ekki vistuð í svokallaðri brottfararstöð. Við fyrstu sýn hljómar það eins og stjórnvöld hafi hlustað á mótmæli okkar. Eins og undirskriftasöfnun, gagnrýni sérfræðinga og reiði fólks hafi skilað raunverulegum árangri. En svo kemur hitt í ljós: fjölskyldur og börn eiga enn að sæta frelsissviptingu. Kannski í „fjölskylduhúsnæði“. Kannski í „sérúrræði“. Kannski í öðru húsi á sömu lóð og brottfararstöðin, með sömu girðingum og gaddavírum, mannað af starfsfólki sem hefur þurft að sækja námskeið í valdbeitingu? Verum skýr: Ef fólk má ekki fara út, ef dyr eru læstar, ef börn eru svipt frelsi sínu af ríkinu, þá er það varðhald. Þá er það fangelsi fyrir fjölskyldur. Væntanlega eiga enn að gilda öll hin ákvæði frumvarpsins sem skerða grundvallarréttindi þeirra. Það á bara að gerast annarsstaðar. Ég spyr: Hvað ef einn fjölskyldumeðlimur í fjölskyldu með nokkur börn er ný orðinn 18 ára? Hvað ætla þessir þingmenn að gera þá? Setja unglinginn í brottfararbúðir og restina af fjölskyldunni í fjölskyldubúðir? Við sjáum í gegnum þetta. Það er erfitt að hugsa sér að þessi tímasetning sé annað en pólitísk skaðaminnkun. Rétt fyrir sveitarstjórnarkosningar birtist Samfylkingar þingmaður sem vill geta sagt: „Við ætlum ekki að vista börn á brottfararstöð.“ En á sama tíma stendur áfram til að læsa þau inni og breytingartillagan sem hann vísar í á ekki að birtast almenningi fyrr en eftir kosningar. Svo bætist við varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins sem segir mikilvægt að undirstrika að frelsissvipting barna verði engu minni þó þau verði ekki vistuð í aðalbyggingunni sem á að heita brottfararstöð. Hann segir: „Það kannski lítur svolítið vel út og aðeins verið að fegra hlutina þegar það er verið að segja að börnin verði ekki vistuð í þessari brottfararstöð sem þetta frumvarp fjallar um en það breytir því ekki að þau verða samt vistuð annars staðar en þá bara með fjölskyldunum sínum en samt sem áður erum við að tala um frelsissviptingu upp að allt að þremur sólarhringum.“ Þarna er hann að beina spjótum að Samfylkingunni án þess þó að segjast sjálfur vera á móti frelsissviptingu barna. Munum líka að formaður Sjálfstæðisflokksins, Guðrún Hafsteinsdóttir, hefur að mér vitandi ekkert talað um að hún hafi áhyggjur af frelsissviptingu barna. Þegar málið var síðast rætt á þingi vildi Guðrún dagsetta framkvæmdaáætlun, drífa í þessu og einna helst: eigna sér frumvarpið. Enda er það alveg rétt, þetta mál sem núverandi ríkisstjórn er svona mikið í mun að klára er nánast algjörlega samhljóða drögum sem Guðrún kynnti í sinni ráðherratíð. Ég er vissulega glöð að fá óvænta aðstoð frá Sjálfstæðisflokknum í því að skýra þetta útspil í gær en ekki gleyma því að Sjálfstæðisflokkurinn er líka í kosningaham. Þetta eru pólitísk brellubrögð. Það er sérstaklega alvarlegt þegar mannréttindi barna eru notuð í þessum tilgangi, að börn í viðkvæmustu stöðu sem hægt er að hugsa sér, séu notuð sem peð í kosningum. Ekki síst vegna þess að rannsóknir sýna að frelsissvipting barna, jafnvel í stuttan tíma, getur haft djúp og langvarandi áhrif á geðheilsu þeirra, öryggiskennd og þroska. Börn á flótta eru oft þegar með áfallasögu. Ríkisstjórn sem bætir varðhaldi ofan á slíka reynslu er ekki að „stýra innflytjendamálum af festu“. Hún er að valda frekari skaða. Það eru aðrar leiðir færar. Samfélagsúrræði. Eftirlit án varðhalds. Stuðningur við fjölskyldur á meðan mál eru til meðferðar. Þetta er spurning um hvaða siðferðilegu línu við sem samfélag ætlum að draga. Að læsa börn inni er ein af þeim línum. Og það skiptir ekki máli hvað Samfylkingin ákveður að kalla það rétt fyrir kosningar. Við látum ekki platast og höldum áfram að safna undirskriftum Við læsum börn ekki inni: Nei við brottfararstöð! https://island.is/undirskriftalistar/fece463d-f6ba-4e38-bfb2-87f1effdc5e3 Höfundur er ábyrgðarmaður undirskriftarlistans. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ég vil ráða mínu sumarfríi Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Þjóðargersemi Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Hverjir fá sætin við borðið? Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Sæti við borðið – eða sæti á ganginum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Mannmiðjuvillan og dýradráp Íslendinga Rósa Líf Darradóttir Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Stóra Stjórnarskrármálið Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvalveiðar – þjóðarskömm sem verður að heyra sögunni til Helgi Felixson skrifar Skoðun Þjóðargersemi Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sæti við borðið – eða sæti á ganginum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Ég vil ráða mínu sumarfríi Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Mannmiðjuvillan og dýradráp Íslendinga Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Stóra Stjórnarskrármálið Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hverjir fá sætin við borðið? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Sumarsólstöður: Tími birtu, þakklætis og helgisiða Þuríður Stefánsdóttir skrifar Skoðun Skýr mörk fyrir vindorku, sterkari vernd fyrir náttúruna Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Hver hugsar þegar þú notar gervigreind — þú eða vélin? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mannréttindastofnun og réttindagæsla fatlaðs fólks Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Af hverju ekki að segja Nei … af hverju ætti að segja kannski? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Árásargjarnir lobbíistar vindorkuiðnaðarins Anna Soffia Kristjánsdóttir skrifar Skoðun 19. júní í skugga bakslags: Jafnrétti er ekki sjálfgefið Martha Lilja Olsen skrifar Skoðun Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Síðustu móhíkanarnir Viðar Halldórsson skrifar Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun EES fyrir fyrirtækin, ESB fyrir fólkið? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hvern vantar enn við borðið? Jana Birta Björnsdóttir,Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Áfram gakk Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Hvað þarf að vera til staðar ef dánaraðstoð verður heimiluð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hver borgar þegar samningurinn er svikinn? Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun ESB aðild er óskynsamleg frá efnahagslegu sjónarmiði Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Er kominn tími á nýtt norrænt leiðtogahlutverk? Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Þegar fyrirmyndirnar horfa í skjáinn Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hver framleiðir matinn okkar eftir 20 ár? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Er dr. Henry Alexander bara til punts? Henry Alexander Henrysson skrifar Sjá meira
Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar