Villa valtaði yfir Forest og mætir Freiburg í úrslitaleiknum Ágúst Orri Arnarson skrifar 7. maí 2026 21:11 Ollie Watkins skoraði markið sem opnaði flóðgáttirnar. Neville Williams/Aston Villa FC via Getty Images Aston Villa valtaði gjörsamlega yfir Nottingham Forest og vann 4-0 sigur í seinni leik liðanna í undanúrslitum Evrópudeildarinnar. Villa mun mæta Freiburg í undanúrslitum eftir 3-1 sigur og viðsnúning hjá þýska liðinu í seinni leiknum gegn Braga.
Aston Villa hvíldi sig vel um helgina en mætti með látum til leiks gegn Nottingham Forest. Fyrri leik liðanna laukm með 1-0 sigri Forest en strákarnir úr Skírisskógi máttu sín lítils í kvöld. Ollie Watkins skoraði fyrsta markið á 36. mínútu eftir frábæran undirbúning hjá Emi Buendia, sem sólaði tvo varnarmenn áður en hann gaf góða stoðsendingu út í teiginn á Watkins. John McGinn skoraði tvö mörk en Emi Buendia var með mark og stoðsendingu. Neal Simpson/Sportsphoto/Allstar via Getty Images Buendia skoraði svo annað markið sjálfur úr vítaspyrnu í upphafi seinni hálfleiks áður en fyrirliðinn John McGinn gjörsigraði Forest með tveimur mörkum á 77. og 80. mínútu. Villa er þar með komið í úrslitaleik Evrópudeildarinnar, undir stjórn hins margreynda og mjög svo slungna Unai Emery. Liðið getur bundið á þrjátíu ára titlaþurrð þann 20. maí. Freiburg er á leiðinni í sinn fyrsta Evrópuúrslitaleik eftir 3-1 sigur gegn Braga í kvöld. Fyrri leiknum lauk með 2-1 sigri Braga en viðsnúningurinn var glæsilegur í kvöld. Leikurinn byrjaði illa fyrir Braga því á 6. mínútu var Mario Dorgeles rekinn af velli fyrir að brjóta af sér sem aftasti varnarmaður. Jan Niklas-Beste var við það að sleppa í gegn þegar Mario Dorgeles braut á honum. Maja Hitij - UEFA/UEFA via Getty Images Braga hélt markinu hreinu í þrettán mínútur til viðbótar en svo braut Lukas Kubler ísinn og Johan Manzambi tvöfaldaði forystuna fyrir hálfleik. Kubler skoraði svo annað mark og kom Freiburg 3-0 yfir áður en Pau Victor minnkaði muninn fyrir gestina undir lokin.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Sjá meira