Styðjum betur við börn í Kópavogi Ester Halldórsdóttir skrifar 8. maí 2026 09:21 Það er gott að búa í Kópavogi, en margt má þó bæta. Aðstoð við börn með taugafjölbreytileika (ADHD, einhverfa og lesblinda) er verulega ábótavant. Það þarf að mæta börnum strax sem upplifa vanlíðan, eiga erfitt með nám eða eru utanvelta í þeirra nærumhverfi, og koma þannig í veg fyrir að þau flosni upp úr námi og einangrist félagslega. Eins og staðan er núna þurfa foreldrar þessara barna að sækja aðstoð fyrir þau utan skólans á vinnutíma, sem er gríðarlega kostnaðarsamt og eykur álag á vinnandi fólk. Sálfræðiþjónusta og talmeinaþjónusta ekki í boði fyrir börn í Kópavogi Börn í Kópavogi hafa almennt ekki aðgang að þjónustu talmeinafræðinga á vegum Kópavogsbæjar, og þar með innan veggja leikskóla eða skóla, nema vandinn sé „minni háttar.“ Í flestum tilfellum þurfa foreldrar því að sækja um að komast að hjá sjálfstætt starfandi talmeinafræðingum en bið eftir slíkri þjónustu getur verið mörg ár. Slík þjónusta er yfirleitt einungis í boði á dagvinnutíma sem eins og fyrr segir eykur álag á foreldra. Börn í Kópavogi hafa heldur ekki aðgang að sálfræðiþjónustu í skólum. Sálfræðingar á vegum Kópavogsbæjar gera forgreiningar á börnum með grun um ADHD eða einhverfu, en eftir að forgreining er komin fara börnin á biðlista hjá geðheilsumiðstöð barna sem er nú um þrjú ár. Á meðan á þessari bið stendur, og eftir að greining er komin, fá börnin okkar enga aðstoð innan veggja skólans. Börn með taugafjölbreytileika og kvíða þurfa mörg hver á þjónustu sálfræðinga að halda og aðstoð með félagsfærni. Fjárfestum í framtíð barnanna okkar Ég trúi því að ef börn eru gripin strax í leikskóla eða á fyrstu árum grunnskólagöngu er oft hægt að koma í veg fyrir vandamál sem tengjast vanlíðan seinna meir, svo sem félagslega einangrun eða vímuefnanotkun. Við þurfum að fjárfesta í framtíð barnanna okkar. Við þurfum að bjóða upp á ókeypis sálfræðiþjónustu, félagsfærnikennslu og talmeinaþjónustu innan skóla og efla fræðslu fyrir bæði kennara og nemendur um taugafjölbreytileika til að auka skilning. Börnum með taugafjölbreytileika eru allir vegir færir ef að réttu tólin eru til staðar. Það þarf að forgangsraða fjármunum, og ættu börnin okkar alltaf að koma fyrst. Það að eyða mörghundruð milljónum í gæluverkefni í Smáralind meðan börnin okkar fá ekki þá aðstoð sem þau þurfa er galið. Höfundur er varaþingmaður Viðreisnar í suðvesturkjördæmi og þriggja barna móðir í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar