Styðjum betur við börn í Kópavogi Ester Halldórsdóttir skrifar 8. maí 2026 09:32 Ester Halldórsdóttir, Viðreisn Kópavogur. Aðsend Það er gott að búa í Kópavogi, en margt má þó bæta. Aðstoð við börn með taugafjölbreytileika (ADHD, einhverfa og lesblinda) er verulega ábótavant. Það þarf að mæta börnum strax sem upplifa vanlíðan, eiga erfitt með nám eða eru utanvelta í þeirra nærumhverfi, og koma þannig í veg fyrir að þau flosni upp úr námi og einangrist félagslega
Það er gott að búa í Kópavogi, en margt má þó bæta. Aðstoð við börn með taugafjölbreytileika (ADHD, einhverfa og lesblinda) er verulega ábótavant. Það þarf að mæta börnum strax sem upplifa vanlíðan, eiga erfitt með nám eða eru utanvelta í þeirra nærumhverfi, og koma þannig í veg fyrir að þau flosni upp úr námi og einangrist félagslega. Eins og staðan er núna þurfa foreldrar þessara barna að sækja aðstoð fyrir þau utan skólans á vinnutíma, sem er gríðarlega kostnaðarsamt og eykur álag á vinnandi fólk. Sálfræðiþjónusta og talmeinaþjónusta ekki í boði fyrir börn í Kópavogi Börn í Kópavogi hafa almennt ekki aðgang að þjónustu talmeinafræðinga á vegum Kópavogsbæjar, og þar með innan veggja leikskóla eða skóla, nema vandinn sé „minni háttar.“ Í flestum tilfellum þurfa foreldrar því að sækja um að komast að hjá sjálfstætt starfandi talmeinafræðingum en bið eftir slíkri þjónustu getur verið mörg ár. Slík þjónusta er yfirleitt einungis í boði á dagvinnutíma sem eins og fyrr segir eykur álag á foreldra. Börn í Kópavogi hafa heldur ekki aðgang að sálfræðiþjónustu í skólum. Sálfræðingar á vegum Kópavogsbæjar gera forgreiningar á börnum með grun um ADHD eða einhverfu, en eftir að forgreining er komin fara börnin á biðlista hjá geðheilsumiðstöð barna sem er nú um þrjú ár. Á meðan á þessari bið stendur, og eftir að greining er komin, fá börnin okkar enga aðstoð innan veggja skólans. Börn með taugafjölbreytileika og kvíða þurfa mörg hver á þjónustu sálfræðinga að halda og aðstoð með félagsfærni. Fjárfestum í framtíð barnanna okkar Ég trúi því að ef börn eru gripin strax í leikskóla eða á fyrstu árum grunnskólagöngu er oft hægt að koma í veg fyrir vandamál sem tengjast vanlíðan seinna meir, svo sem félagslega einangrun eða vímuefnanotkun. Við þurfum að fjárfesta í framtíð barnanna okkar. Við þurfum að bjóða upp á ókeypis sálfræðiþjónustu, félagsfærnikennslu og talmeinaþjónustu innan skóla og efla fræðslu fyrir bæði kennara og nemendur um taugafjölbreytileika til að auka skilning. Börnum með taugafjölbreytileika eru allir vegir færir ef að réttu tólin eru til staðar. Það þarf að forgangsraða fjármunum, og ættu börnin okkar alltaf að koma fyrst. Það að eyða mörghundruð milljónum í gæluverkefni í Smáralind meðan börnin okkar fá ekki þá aðstoð sem þau þurfa er galið. Höfundur er varaþingmaður Viðreisnar í suðvesturkjördæmi og þriggja barna móðir í Kópavogi.
Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Mest lesið Myndaveisla: Tilfinningarík stund þegar bikarinn fór á loft á Hlíðarenda Handbolti „Trúðurinn“ fyrir norðan: „Þessi maður á bara að skammast sín“ Íslenski boltinn Grét í sturtunni og vissi að hann þyrfti að hætta aðeins þrítugur Fótbolti Eiginkona þjálfarans segir Burnley bera ábyrgð í andlátinu Fótbolti Íslandsmeistari gegn uppeldisfélaginu í síðasta leiknum á ferlinum Handbolti „Við áttum þetta skilið“ Handbolti Yfirlýsing ÍBV: Hafdís beðin afsökunar og maðurinn í bann Handbolti Gidsel getur mölbrotið markamet Hansen Handbolti Carrick segist bíða rólegur Enski boltinn Funduðu með dómurum: „LeBron fær verstu meðferð sem ég hef séð“ Körfubolti Fleiri fréttir Sakaðir um ólöglegar upptökur Þriðjungur jarðarbúa að missa af HM? Rasískur bolur fyrir kappakstur Trump tekinn úr umferð Neyðast til að styðja liðið sem þeir hata Funduðu með dómurum: „LeBron fær verstu meðferð sem ég hef séð“ „Trúðurinn“ fyrir norðan: „Þessi maður á bara að skammast sín“ Carrick segist bíða rólegur Eiginkona þjálfarans segir Burnley bera ábyrgð í andlátinu Dagskráin í dag: Úrslitaeinvígið hefst og boltinn rúllar í Bestu deildinni Myndaveisla: Tilfinningarík stund þegar bikarinn fór á loft á Hlíðarenda Grét í sturtunni og vissi að hann þyrfti að hætta aðeins þrítugur Gidsel getur mölbrotið markamet Hansen „Við áttum þetta skilið“ Glasner gæti kvatt Palace með titli en Rayo Vallecano stendur í veginum Íslandsmeistari gegn uppeldisfélaginu í síðasta leiknum á ferlinum Villa valtaði yfir Forest og mætir Freiburg í úrslitaleiknum Valverde segist bara hafa rekið höfuðið í borð Shakira gefur út nýtt HM lag Fokdýrir miðar á bardagakvöldið við Hvíta húsið Magnaður Haukur með tíu marka leik í mikilvægum sigri Valur - FH 27-26 | Valur er Íslandsmeistari eftir sigur gegn FH í oddaleik Ómar Ingi markahæstur á leið í úrslitahelgina Aston Villa - Nott. Forest | Létt veganesti gestanna Hvít-Rússar fái fullt keppnisleyfi en Rússar enn til rannsóknar Valverde á spítala eftir önnur slagsmál við Tchouameni Titillinn undir í oddaleik: „Eitthvað magnað sem ræður úrslitum í kvöld“ Yfirlýsing ÍBV: Hafdís beðin afsökunar og maðurinn í bann Galin hegðun sjálfboðaliða Fordómar í garð Hafdísar á borð HSÍ: „Litið grafalvarlegum augum“ „Þetta er flókin staða“ Sjá meira