Byggjum fyrir námsfólk Isabel Alejandra Diaz skrifar 11. maí 2026 08:33 Í mínum huga hefur Reykjavík alltaf verið háskólaborg. Eða eins og Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri, sagði oft: „Það eru til tvenns konar borgir: deyjandi borgir og háskólaborgir!“ Frá árinu 2017 hafa rúmlega 900 námsmannaíbúðir verið byggðar í Reykjavík og um 750 til viðbótar eru ýmist í byggingu eða fyrirhugaðar á næstu misserum. Margar þessara íbúða á vegum Félagsstofnunar stúdenta sá ég rísa á minni háskólagöngu og hafði síðar aðkomu að, með beinum eða óbeinum hætti, í gegnum störf mín sem forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Ég var til dæmis nýbyrjuð í háskólanum þegar uppbygging 244 íbúða á Vísindagarðasvæðinu (Mýrargörðum) var komin á fullt skrið árið 2017 og fylgdist með þeim rísa á daglegri leið minni þar hjá, allt þar til þær voru teknar í notkun árið 2020. Árið 2021 fögnuðum við í Stúdentaráði svo nýrri viðbyggingu við Gamla garð, þar sem bættust við 69 herbergi. Sama ár fékk ég þann heiður að taka þátt í ferli FS og Háskóla Íslands vegna kaupa á Hótel Sögu, þar sem nú eru 111 íbúðir. Með því allra síðasta sem ég gerði sem forseti var að vera viðstödd undirritun viljayfirlýsingar árið 2022 um stúdentaíbúðir við Vatnsstíg, þar sem nú hafa 14 einstaklingsherbergi nýlega verið tekin í notkun. Tvöföldun stúdentagarða vegna stefnufestu Þessi umfangsmikla uppbygging stúdentagarða hefði ekki átt sér stað nema vegna góðs samstarfs Reykjavíkurborgar við HÍ og FS, Háskólann í Reykjavík og Byggingafélag námsmanna. Samstarfið við borgina gekk vel vegna pólitísks vilja þeirra sem hafa stýrt henni á liðnum kjörtímabilum. Það endurspeglar þá forgangsröðun Samfylkingarinnar að húsnæðisuppbygging sé að hluta óhagnaðardrifin og þjóni fjölbreyttum hópum. Uppbyggingin í Vatnsmýrinni gekk reyndar ekki alltaf snurðulaust fyrir sig - og í þeim tilfellum var brýnt að eiga trausta bakhjarla. Það kom nefnilega fyrir að forysta stúdentahreyfingarinnar hafði aðrar áherslur en stjórnsýsla háskólans, eða HÍ aðrar fyrirætlanir en FS. Stúdentaráð naut hins vegar ávallt ótvíræðs stuðnings FS - og öfugt! Auk þess reyndist gott samstarf við borgarstjóra og meirihluta borgarstjórnar, með Samfylkinguna í fararbroddi, nauðsynlegt. Verkefnunum var ýtt áfram í sameiningu og það skipti sköpum að Samfylkingin í Reykjavík sýndi vilja í verki með því að vera eina sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu sem studdi uppbyggingu námsmannaíbúða með lóðaúthlutunum. Mikilvægi óhagnaðardrifinnar uppbyggingar Aðsókn á stúdentagarða FS er enn í dag mikil og telur biðlistinn 724 manns. Stofnunin bíður eftir því að geta reist um 380 íbúðir, þar á meðal á nýjum lóðum í Nýja Skerjafirði í Vatnsmýrinni. Það eru áform um rúmlega 180 fjölskylduíbúðir fyrir stúdenta, innan svæðis þar sem gert er ráð fyrir íbúðum fyrir allt að þrjú þúsund manns. Þarna eru mikil tækifæri sem brýnt er að nýta og það væri hagur allra að leysa úr þeirri flóknu stöðu sem hefur tafið uppbyggingu svæðisins. Það er önnur saga sem er óþarfi að rekja hér, en ég nefni til að undirstrika þörfina fyrir áframhaldandi uppbyggingu stúdentagarða og óhagnaðardrifins húsnæðis, sem og mikilvægi náins samstarfs ríkis og sveitarfélaga í þágu íbúa. Stefna Samfylkingarinnar er að styðja afdráttarlaust áfram við fjölbreytt búsetuform. Við lítum svo á að aðgangur námsfólks að húsnæði í nálægð við skóla og á viðráðanlegu verði sé lykilforsenda þess að jafna aðgengi að námi óháð búsetu, um leið og slíkt eflir mannlíf í hverfum borgarinnar. Þess vegna skiptir máli hver stýrir Reykjavík og hvaða framtíðarsýn ræður för í skipulags- og húsnæðismálum. Kjósum Samfylkinguna í Reykjavík og höldum því til streitu að byggja borg sem styður við daglegt líf, tryggir fjölbreytt húsnæði fyrir alla hópa og hefur grunnþjónustu innan seilingar. Borg sem hvetur til samveru og útivistar og hverfi sem iða af lífi og gleði. Þitt atkvæði skiptir máli til að tryggja það. Höfundur skipar 9. sæti á lista Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar 16. maí næstkomandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Isabel Alejandra Díaz Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar