Vilja banna landsliðsþjálfurum að þjálfa félagslið Sindri Sverrisson skrifar 10. maí 2026 08:02 Arnar Pétursson og Snorri Steinn Guðjónsson hafa báðir miðlað af þekkingu sinni sem þjálfarar félagsliða, á misháu stigi þó, samhliða því að þjálfa A-landslið. Samsett/Getty Handknattleiksfélög landsins hafa sett þá kröfu á stjórn HSÍ að þjálfurum íslensku landsliðanna verði meinað að starfa einnig við þjálfun íslenskra félagsliða, samhliða landsliðsþjálfarastarfinu.
Ályktun þess efnis, sem í upphafi var lagabreytingatillaga af hálfu ÍBV, var samþykkt á ársþingi HSÍ á föstudaginn. Lagt hafði verið til að við 24. gr. laga HSÍ bættist ný málsgrein: „Þjálfarar sem starfa með A-landsliðum og U21-landsliðum Íslands skulu ekki á sama tíma vera starfandi þjálfarar eða hluti af þjálfarateymi íslenskra félagsliða." Málið er nú í höndum stjórnar HSÍ en ljóst er að henni er vandi á höndum því algengt er að þjálfarar íslenskra landsliða starfi einnig hjá íslensku félagsliði. Til að mynda hefur Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari A-landsliðs karla, starfað við þjálfun í 3. flokki og hjá venslaliði Vals, og Arnar Pétursson þjálfari A-landsliðs kvenna var í þjálfarateymi kvennaliðs Fram. Ljóst er að óánægju hefur gætt með það að landsliðsþjálfari sé að störfum hjá félagsliði í ljósi þeirra áhrifa sem það gæti mögulega til að mynda haft á val leikmanna í landslið sem og val leikmanna um hvaða félagslið þeir kjósa að spila fyrir. Á vef Handkastsins hefur verið tekið saman að af þjálfurum í A-landsliðum og U20-liðum karla og kvenna séu að minnsta kosti sjö þjálfarar sem einnig starfi fyrir íslensk félagslið. Eins og fyrr segir er aðeins um ályktun að ræða sem stjórn HSÍ þarf nú að ákveða hvernig verður unnið út frá.
Landslið karla í handbolta Landslið kvenna í handbolta Tengdar fréttir Allt öðruvísi úrslitakeppni og stærri Olís-deild kvenna Miklar breytingar verða gerðar á úrslitakeppninni í handbolta frá og með næstu leiktíð, hjá körlum og konum, og liðum í efstu deild kvenna fjölgað úr átta í tíu. 9. maí 2026 20:05 Mest lesið FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Körfubolti Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti Uppgjörið: FH - Valur 2-0 | Gils gerði gæfumuninn í langþráðum sigri FH-liðsins Íslenski boltinn Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Fleiri fréttir Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Sjá meira
Allt öðruvísi úrslitakeppni og stærri Olís-deild kvenna Miklar breytingar verða gerðar á úrslitakeppninni í handbolta frá og með næstu leiktíð, hjá körlum og konum, og liðum í efstu deild kvenna fjölgað úr átta í tíu. 9. maí 2026 20:05