Einkunnir og ábyrg umræða Jóhann Skagfjörð Magnússon skrifar 10. maí 2026 17:30 Áhugi á skólamálum fer vaxandi í þjóðfélaginu og mér sýnist stærsta hreyfiaflið í þeirri umræðu vera Viðskiptaráð og Morgunblaðið. Sem skólamaður fagna ég auðvitað umræðu um skólamál, en því miður sýnist mér þó að hvorugur aðilinn nálgist umræðuna á forsendum skólastarfsins sjálfs. Umfjöllunin er einhliða og byggð á takmörkuðum skilningi á aðalnámskrá og markmiðum skólastarfs. Föstudaginn 8. maí birti Morgunblaðið umfjöllun um einkunnadreifingu í íslensku og stærðfræði í Garðaskóla. Fréttin, sem byggði á tölum úr ársskýrslum skólans, virtist ætlað að styðja áhyggjur Viðskiptaráðs af svokallaðri einkunnaverðbólgu sem blaðið fjallaði um fyrr í vikunni. Aðaláhersla greinarinnar var á hversu margir nemendur útskrifuðust með A við lok grunnskóla, miðað við hversu fá þeirra hafi fengið A í 8. og 9. bekk. Markmið mitt er ekki að taka afstöðu til þess hvort einkunnaverðbólga sé raunverulegt vandamál á landsvísu enda hef ég ekki yfirsýn yfir allt það fjölbreytta námsmat sem metur hæfni nemenda í hverjum einasta skóla. Þær upplýsingar hafa Viðskiptaráð og Morgunblaðið reyndar ekki heldur, en láta það þó ekki stoppa sig. Markmiðið er hins vegar að leiðrétta villandi framsetningu og útskýra hvers vegna svona „margir“ nemendur geta útskrifast með A frá Garðaskóla. Í umfjöllun blaðsins eru einkunnir við útskrift bornar saman við einkunnir sama árgangs í 8. og 9. bekk. Slík framsetning gefur til kynna að þegar kemur að útskrift sé skólinn örlátur á A-einkunnir, en lítur fram hjá þeirri augljósu skýringu að nemendur bæta hæfni sína markvisst með námi. Þetta er í raun staðfesting á eðlilegu og árangursríku skólastarfi og metnaðarfullum og vinnusömum nemendum. Hefði blaðamaður í staðinn borið saman lokaeinkunnir útskriftarnemenda síðust ár, gögn sem hann hafði aðgang að, hefði komið í ljós að í Garðaskóla er ekki hægt að tala um einkunnaverðbólgu. Þvert á móti mætti tala um verðhjöðnun í íslensku, líkt og sjá má á meðfylgjandi línuriti. Í Garðaskóla leggjum við metnað í að veita nemendum nám við hæfi. Til þess höfum við öfluga stoðþjónustu og bjóðum upp á markvissar leiðir fyrir nemendur sem skara fram úr. Í því samhengi höfum við um árabil átt farsælt samstarf við Fjölbrautaskólann í Garðabæ, þar sem nemendur geta lokið annars þreps framhaldsskólaáfanga í ensku, íslensku og stærðfræði samhliða námi í grunnskóla. Á síðasta skólaári vorum við t.d. með 57 nemendur í 10. bekk sem luku framhaldsskólaáfanga í ensku og var meðaleinkunn þeirra 8,95, í íslensku voru nemendurnir 27 með meðaleinkunn upp á 8,95 og í stærðfræði voru nemendurnir 55 með meðaleinkunnina 9,1. Þessir nemendur þreyttu sömu próf og nemendur í FG og prófin eru yfirfarin og metin af kennurum þar en eru kenndir af kennurum Garðaskóla. Í langflestum tilfellum útskrifast þessir nemendur með grunnskólaeinkunnina A, enda hafa þeir sýnt fram á hæfni umfram viðmið aðalnámskrár. Og þeir hafa náð að sýna fram á þessa umfram hæfni vegna þess að við bjóðum þeim upp á markvissa leið til þess. Ég ítreka að ég fagna umræðu um skólamál. Ég neita þó að taka þátt í þeirri vegferð sem mér finnst Morgunblaðið og Viðskiptaráð vera á, þar sem flókið faglegt starf skóla er einfaldað, dregnar eru ályktanir af brotakenndum gögnum og skólum og kennurum stillt upp sem vandamáli í stað þess að reynt sé að skilja það hlutverk sem þeim er falið samkvæmt aðalnámskrá. Höfundur er skólastjóri Garðaskóla. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar