Tómstundir mega ekki vera forréttindi á Seltjarnarnesi Kristín Edda Óskarsdóttir skrifar 10. maí 2026 18:02 Íþróttir, listir og tómstundir eru ekki aukaatriði í lífi barna heldur ein sterkasta forvörn sem samfélagið á. Á Seltjarnarnesi viljum við tryggja öllum börnum raunveruleg tækifæri til þátttöku, óháð efnahag foreldra, og byggja upp samfélag þar sem enginn er skilinn eftir. Það segir margt um sveitarfélag hvernig það mætir börnum sínum. Ekki bara í skólastofunni heldur líka eftir að skóladegi lýkur. Það er í íþróttahúsinu, í félagsmiðstöðinni, á sviðinu, á dansgólfinu, á æfingasvæðinu og í sumarstarfinu þar sem sjálfstraust barna og ungmenna byggist upp, vinatengsl myndast, og þau upplifa að tilheyra. Sveitarfélagið má ekki líta á íþrótta-, lista- og tómstundastarf sem einhvers konar jaðarverkefni sem megi skera niður þegar þrengir að. Sú hugsun er bæði skammsýn og röng. Þetta starf er ekki munaður, heldur hluti af grunnstoðum samfélagsins og ein öflugasta forvörn sem við höfum. Fjárhagur foreldra má ekki ráða þátttöku barna Eitt stærsta réttlætismál okkar tíma er að tryggja börnum jöfn tækifæri til þátttöku í skipulögðu starfi. Við vitum að skipulagt íþrótta- og tómstundastarf getur verið þungur baggi fyrir tekjulág heimili og að börn efnaminni foreldra taka síður þátt í slíku starfi en önnur börn. Þarna birtist ójöfnuðurinn snemma og afleiðingarnar geta orðið alvarlegar og langvarandi. Sveitarfélag sem trúir á jöfnuð getur ekki sætt sig við að fjárhagur heimilisins ákveði hvort barn verði hluti af samfélagi jafningja sinna eða standi utan þess. Þess vegna viljum við ekki aðeins tryggja að tómstundastyrkur fylgi almennu verðlagi. Við viljum líka festa sérstakan tómstundastyrk í sessi til að mæta stöðu þeirra fjölskyldna sem standa höllum fæti. Það er markviss leið til að jafna stöðu barna og tryggja að fleiri komist inn í það starf sem skiptir svo miklu máli fyrir þroska, líðan og félagsfærni. Barni sem langar í fótbolta, fimleika, dans, leiklist, körfu eða aðra tómstund á ekki að fá þau skilaboð að það sé of dýrt að taka þátt. Við verðum að ná utan um hvert krónan fer Það dugir þó ekki að lýsa yfir stuðningi við íþrótta- og tómstundastarf ef sveitarfélagið hefur ekki skýra heildarsýn á eigin aðkomu. Við viljum fá raunverulega heildarmynd á útgjöldum bæjarins þegar kemur að rekstri íþróttafélaga og mannvirkja. Það á við um uppbyggingu aðstöðu, rekstur og viðhald mannvirkja, beina rekstrarstyrki til barna- og unglingastarfs, þjónustusamninga, ívilnanir, styrki til afreksfólks og óbeina styrki í gegnum frístundastyrki og aðra niðurgreiðslur. Í dag er yfirsýnin of brotakennd sem gerir það erfitt að taka skynsamlegar ákvarðanir, tryggja sjálfbæran rekstur og byggja upp starfsemi til lengri tíma. Við viljum setjast niður með öllum íþróttafélögum bæjarins, öllum deildum og fara heiðarlega yfir stöðuna. Eiga samtalið um það hvernig sé hægt að styrkja grunninn undir öflugt starf fyrir samfélagið allt. Félögin þurfa að geta treyst því að sveitarfélagið sé stöðugur bakhjarl og að ákvarðanataka byggi á samtalinu, sé gagnsæ og fyrirsjáanleg. Listirnar eru líka tómstund Þegar rætt er um tómstundir barna gleymast listirnar of oft. Það eru mistök. Fyrir mörg börn eru dans, leiklist, tónlist og önnur skapandi tjáning jafn mikilvæg og hefðbundnar íþróttir. Metnaðarfullt bæjarfélag styður bæði við íþróttir og listir. Það skilur að börn eru ólík, hæfileikar þeirra ólíkir og leiðir þeirra inn í samfélagið fjölbreyttar. Okkar hlutverk er að tryggja að þau fái tækifæri, ekki að þrengja valkostina. Við viljum treysta tengslin við sjálfstætt starfandi leik- og danslistaskóla, þannig að þeir sjái hag sinn í að festa rætur og byggja upp starfsemi sína á Seltjarnarnesi til lengri tíma. Sveitarfélagið á að vera virkur þátttakandi í að skapa aðstæður þar sem slíkt starf fær að blómstra. Félagsmiðstöðin er öflug forvörn Eitt skýrasta dæmið um það hvar pólitísk forgangsröðun birtist er staða Selsins þar sem skorið hefur verið niður við nögl. Við viljum endurreisa félagsmiðstöð og ungmennaráð bæjarins til fyrri vegs og virðingar og tryggja henni það fjármagn til rekstrar sem hún á skilið. Þetta er ekki eitthvert aukaatriði. Félagsmiðstöðin er gríðarlega mikilvæg forvörn fyrir börn og ungmenni á viðkvæmum aldri. Hún skiptir sérstaklega miklu máli fyrir þau sem stunda ekki skipulagðar íþróttir, listir eða annað tómstundastarf. Þar eiga þau að finna öruggt rými, samfélag og virkni sem stýrt er af öflugu fagfólki. Niðurskurður í slíku starfi er röng leið. Hann sparar ekki til framtíðar heldur eykur líkur á félagslegri einangrun, vanlíðan og því að börn detti út úr samfélagslegri þátttöku. Sveitarfélag sem tekur forvarnir alvarlega sker ekki niður þar sem börnin þurfa mest á stuðningi að halda. Sumarið má ekki vera vandamál fyrir fjölskyldur Sumarið getur verið erfiður tími fyrir mörg börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra. Skipulag rofnar, kostnaður getur hækkað og aðgengi að starfi verður misjafnt. Það er ekki nóg að bjóða upp á sundurlaus úrræði sem foreldrar þurfa sjálfir að púsla saman. Hér þarf heildstæða sýn. Við viljum endurskipuleggja allt sumarstarf með markvissum hætti í samstarfi við frístund, íþróttafélögin, listaskóla, kirkjuna, björgunarsveitina, bókasafnið, vinnuskólann og skapandi sumarstörf. Markmiðið er að tryggja samfellu, fjölbreytni og betri þjónustu yfir allt sumarið. Jafnframt viljum við setja þak á kostnað við þátttöku barna. Sumarið á ekki að vera tími þar sem börn missa úr tengslum, sitja heima eða fara á mis við tækifæri vegna þess að kostnaðurinn er orðinn of mikill. Það er hlutverk sveitarfélagsins að bregðast við því. Sterkt barna- og ungmennastarf er ekki byggt sísvona Við viljum styrkja skipulag og samhæfingu í æskulýðsmálum þannig að þjónustan verði markvissari og samfellan meiri. Börn og ungmenni eiga ekki að mæta sundurlausum kerfum þar sem ábyrgðin er óljós og stuðningurinn breytilegur. Hér þarf skýra stefnu og pólitískan vilja til að halda utan um málaflokkinn sem einn af hornsteinum bæjarfélagsins. Við viljum skapa hvetjandi umhverfi þar sem öll börn geta blómstrað á sínum forsendum. Það krefst fyrirsjáanleika í fjármögnun, bættrar aðstöðu, sterkari samvinnu við félög og skóla og raunverulegrar virðingar fyrir því starfi sem þegar er unnið af fagfólki og sjálfboðaliðum. Að lokum …. Íþrótta- og tómstundastarf er hjartað í uppvexti barna á Seltjarnarnesi. Þar verða til tengsl, seigla, gleði og sjálfstraust. Þar lærir barn að það skipti máli, að það tilheyri. Við veljum að standa með börnum og fjölskyldum og sýnum það í verki. Höfundur er félagslegur sálfræðingur, skrifstofustjóri Grænuhlíðar fjölskyldumeðferðar og stjórnarkona Viðreisnar á Seltjarnarnesi. Skipar 7. sæti á lista Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra á Seltjarnarnesi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Getum við gert betur fyrir íslensk heimili? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Ofveiðin í ESB fyrir 500 árum Sigurjón Þórðarson Skoðun Bless tollfrjálsu Temu, Shein og Alibaba Jón Pétur Zimsen Skoðun Óafsakanlegt, en ekki óleysanlegt Birgir Hrafn Birgisson Skoðun FIFA skapar nýja skúrka Bragi V. Bergmann Skoðun Tæknin kemur hratt - en ávinningurinn ekki sjálfkrafa Gísli Rafn Ólafsson Skoðun Temu-pakkar JP Zimsen eða alvöru hagsmunir Íslands Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Nærri þrír vinnumánuðir á ári – hinn ósýnilegi kostnaður endómetríósu Jón Ívar Einarsson Skoðun Almyrkvinn 2026 – besta áhorfssvæðið gæti verið heima hjá þér Dagbjartur Kr. Brynjarsson Skoðun Vangaveltur Hörður Torfason Skoðun Skoðun Skoðun Almyrkvinn 2026 – besta áhorfssvæðið gæti verið heima hjá þér Dagbjartur Kr. Brynjarsson skrifar Skoðun Hvalfjarðarsveit kallar eftir samtali við Vegagerðina um umferðaröryggi Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Tæknin kemur hratt - en ávinningurinn ekki sjálfkrafa Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Óafsakanlegt, en ekki óleysanlegt Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ofveiðin í ESB fyrir 500 árum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Getum við gert betur fyrir íslensk heimili? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun FIFA skapar nýja skúrka Bragi V. Bergmann skrifar Skoðun Vangaveltur Hörður Torfason skrifar Skoðun Þegar stórveldin gera það sem þeim sýnist er ESB okkar besti kostur Eiríkur Ragnarsson skrifar Skoðun Nærri þrír vinnumánuðir á ári – hinn ósýnilegi kostnaður endómetríósu Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Temu-pakkar JP Zimsen eða alvöru hagsmunir Íslands Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Bless tollfrjálsu Temu, Shein og Alibaba Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun En stelirðu miklu... Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Menntun fyrir mennsku Fanney Dóróthe Halldórsdóttir skrifar Skoðun Ekki má draga víðtækar ályktanir af veikum gögnum Helga Rósa Másdóttir,Steinunn Þórðadóttir skrifar Skoðun Krónuskatturinn á kynslóðirnar: mesti skattur Íslandssögunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Það er mér í hag að hinsegin fánar séu sýnilegir Daníel Ágúst Gautason skrifar Skoðun Minnir á kafla úr bók Franz Kafka Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Kannski erum við að spyrja rangra spurninga Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun „Að deila og drottna“ - hugleiðingar miðaldra konu að kvöldlagi Ingibjörg Einarsdóttir skrifar Skoðun Þegar maður gengur gegn eigin gildum Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Hvernig fyrirbyggjum við heimilisleysi eftir meðferð vegna vímuefnaröskunar? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Dulinn kostnaður við kreditkortið þitt Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hljóðlát endalok íslensku vefumsjónarkerfanna Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Það borgar sig að skoða kostina Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Hvað sér unga fólkið sem ég sé ekki? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Hlutdrægni RÚV í ESB umræðunni Birgir Finnsson skrifar Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. skrifar Sjá meira
Skoðun Almyrkvinn 2026 – besta áhorfssvæðið gæti verið heima hjá þér Dagbjartur Kr. Brynjarsson skrifar
Skoðun Hvalfjarðarsveit kallar eftir samtali við Vegagerðina um umferðaröryggi Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar
Skoðun Þegar stórveldin gera það sem þeim sýnist er ESB okkar besti kostur Eiríkur Ragnarsson skrifar
Skoðun Nærri þrír vinnumánuðir á ári – hinn ósýnilegi kostnaður endómetríósu Jón Ívar Einarsson skrifar
Skoðun Ekki má draga víðtækar ályktanir af veikum gögnum Helga Rósa Másdóttir,Steinunn Þórðadóttir skrifar
Skoðun „Að deila og drottna“ - hugleiðingar miðaldra konu að kvöldlagi Ingibjörg Einarsdóttir skrifar
Skoðun Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar
Skoðun Hvernig fyrirbyggjum við heimilisleysi eftir meðferð vegna vímuefnaröskunar? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar