Hafnarfjörður fyrir fólk á öllum aldri Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar 11. maí 2026 08:40 Í Hafnarfirði er margt vel gert. Hér er öflugt samfélag og skýr vilji til að halda áfram að þróa þjónustu og umhverfi í takt við þarfir íbúa. Sveitarfélagið stendur frammi fyrir áskorunum sem krefjast heildstæðrar sýnar. Til að mæta þeim þarf að horfa á samfélagið í heild. Lífsgæði íbúa ráðast af því hvernig þjónusta mætir þörfum fólks á mismunandi æviskeiðum. Börn, ungmenni, fjölskyldur og eldri borgarar þurfa að finna að þau hafi aðgang að stuðningi þegar á þarf að halda. Ég hef lengi haft áhuga á samfélagsmálum og fylgst vel með því sem er að gerast í mínu nærumhverfi. Starf mitt í menntakerfinu, samskipti við fólk og þau verkefni sem ég hef tekist á við hafa sýnt mér hversu miklu máli skiptir hvernig við tökum ákvarðanir í sveitarfélaginu okkar. Ég hef séð hvernig góðar ákvarðanir geta styrkt fólk og hvernig skortur á úrræðum getur haft afdrifarík áhrif á daglegt líf fólks. Menntun er grunnurinn Sterkt menntakerfi er ein mikilvægasta stoð samfélagsins. Skólar eru ekki aðeins staðir þar sem nám fer fram heldur einnig lykilþáttur í félagslegri velferð barna og ungmenna. Til að tryggja jöfn tækifæri þarf að efla stuðning og stoðþjónustu innan skólanna, fækka nemendum í umsjónarhópum, stytta biðlista eftir þjónustu og fjölga úrræðum fyrir börn með fjölþættan vanda. Félagslegt öryggi fyrir alla Félagsþjónusta sveitarfélaga gegnir lykilhlutverki í að tryggja velferð íbúa. Mikilvægt er að hún sé aðgengileg, sveigjanleg og byggi á raunverulegum þörfum fólks. Snemmtæk íhlutun, markviss stuðningur og gott samstarf milli kerfa geta haft afgerandi áhrif á líf einstaklinga og fjölskyldna. Íþróttir og tómstundir sem forvörn Öflugt íþrótta- og tómstundastarf er ekki aðeins mikilvægt fyrir heilsu og vellíðan heldur gegnir það einnig mikilvægu hlutverki í forvörnum. Aðgengi allra barna og ungmenna að slíku starfi skiptir máli, óháð bakgrunni og aðstæðum. Öflugt tómstundastarf styrkir félagsfærni, eykur þátttöku og skapar tengsl sem hafa langtímaáhrif. Samfélag þar sem fólk fær að blómstra Sveitarstjórnarmál snúast ekki bara um einstaka málaflokka. Þau snúast um það hvernig við byggjum upp samfélag þar sem börn fá að blómstra, fjölskyldur fá stuðning og fólk finnur að það tilheyrir og getur treyst umhverfi sínu. Framtíð Hafnarfjarðar ræðst af því hvernig okkur tekst að þróa bæjarfélagið í takt við breyttar þarfir fólks. Með skýrri sýn, góðu samstarfi og markvissum aðgerðum getum við skapað samfélag þar sem fleiri fá tækifæri til að vaxa og dafna. Hlúum að fólkinu sem byggði bæinn Samfélag fyrir fólk á öllum aldri þarf einnig að mæta þörfum eldri íbúa af virðingu, öryggi og raunverulegum stuðningi. Mikilvægt er að ráðast í stórátak í heimaþjónustu þannig að fleiri geti búið lengur heima við góð lífsgæði. Jafnframt þarf að halda áfram uppbyggingu lífsgæðaíbúða fyrir eldri íbúa og fjölga hjúkrunarrýmum, meðal annars í Hamranesi, Hrafnistu og Vatnshlíð. Fólkið sem byggði bæinn okkar á skilið þjónustu og umhverfi sem styður við sjálfstæði, öryggi og lífsgæði. Ég vil sjá Hafnarfjörð þar sem: Öll börn fá raunveruleg tækifæri Lögð er áhersla á snemmtækan stuðning Aðgengi að íþróttum og tómstundum er fyrir öll börn Starfsfólk í velferðar- og menntakerfi býr við starfsaðstæður sem gera því kleift að sinna starfi sínu vel Eldri íbúar fá þjónustu og stuðning sem tryggir öryggi og lífsgæði Í raun snýst þetta einfaldlega um að búa í samfélagi þar sem við hugsum um hvert annað og tökum ábyrgð hvert á öðru. Ég er að stíga mín fyrstu skref í pólitík. Ég geri það af auðmýkt, en líka af ábyrgð og vilja til að leggja mitt af mörkum. Í grunninn snýst þetta um samfélag þar sem við sjáum hvert annað, styðjum hvert annað og byggjum bæ þar sem fólk fær raunveruleg tækifæri til að blómstra. Höfundur skipar 8. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar