Þú hýri Hafnarfjörður Linda Hrönn Bakkmann Þórisdóttir skrifar 11. maí 2026 09:50 Við höfum aldrei átt eins auðvelt með að nálgast gríðarlega mikið magn upplýsinga um nánast hvað sem er. Gott aðgengi að upplýsingum er mikilvægt og getur aukið víðsýni okkar og þekkingu á hinum ýmsu málaflokkum. En eðli málsins samkvæmt er sannleiksgildið mismikið í þessum upplýsingum og erfitt getur verið að átta sig á því hvaða upplýsingar eru réttar og hverjar rangar. Upplýsingaóreiðan getur verið svo mikil. Efling upplýsingalæsis Með tilkomu algóritmans er auk þess markvisst beint að okkur misgóðum upplýsingum sem geta haft mikil áhrif á skoðanir okkar og viðhorf til samfélagsins. Ýmis markaðsöfl herja sérstaklega á unga fólkið okkar og reyna að koma vörum sínum á framfæri en einnig nýta ýmsir áhrifavaldar tækifærið og boða afturhald í þeim mannréttindum sem við höfum þurft að berjast fyrir. Þetta hefur því miður leitt af sér aukna hatursorðræðu og fordóma og því er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að grunnskólar sinni markvissri fræðslu um jafnrétti, fjölbreytileika og mannréttindi. Auk þess ber okkur sem samfélag skylda til að efla með börnum og ungmennum gagnrýna hugsun og upplýsingalæsi svo þau geti skilið betur á milli réttra og rangra upplýsinga. Þannig verða þau færari í að takast á við fjölbreytt samfélag af virðingu og ábyrgð. Þar gegnir kyn- og kynjafræði í grunnskólum lykilhlutverki. Mikilvægi kyn- og kynjafræði Þessi fræði styðja ungmenni við að átta sig á fjölbreytileika samfélagsins og sýna því skilning. Þau læra að það er styrkleiki að við séum ekki öll eins heldur geri það samfélagið okkar litríkara sem er styrkleiki fyrir samfélagið en ekki ógn. Ungmennin fræðast um heilbrigð samskipti og læra að setja sig í spor hvert annars og þjálfa sig í að setja sjálfum sér mörk í samskiptum en um leið virða ólík mörk annarra. Með slíkri fræðslu öðlast nemendur meiri sjálfsþekkingu og auk þess getur hún dregið úr einelti, fordómum og útilokun. Fræðslan skapar jafnframt öruggara skólasamfélag þar sem fleiri upplifa að þeir tilheyri. Framsókn stendur fyrir réttlátu samfélagi Með Framsókn í forystu hefur Hafnarfjarðarbær sýnt mikinn metnað og framsýni með því að bjóða upp á kyn- og kynjafræði sem sér námsgrein fyrir nemendur á unglingastigi. Á vegum fræðsluyfirvalda bæjarins hefur einnig verið starfandi samráðshópur þvert á skóla bæjarins sem saman hefur sett fram sérstök hæfniviðmið við þessi fræði til að tryggja faglega, fjölbreytta og vandaða fræðslu. Það er einmitt í anda Framsóknar að byggja upp samfélag þar sem virðing, samkennd og jafnrétti eru höfð að leiðarljósi. Það rímar við samvinnuhugsjónina sem þessi elsti stjórnmálaflokkur landsins hefur haft að leiðarljósi í 110 ár. Að hver einstaklingur fái notið sín með þeim styrkleikum sem hann býr yfir burtséð frá uppruna, kyni, kynhneigð, menningu og fleiri þáttum sem við erum oft upptekin við að skilgreina aðra út frá. Höfum regnbogann sýnilegan í Hafnarfirði Í þessu samhengi skiptir sýnileikinn líka miklu máli. Regnbogafáninn í skólum er tákn um að allir nemendur séu velkomnir og eigi rétt á virðingu og öryggi. Fyrir mörg börn og ungmenni getur það haft ómetanlega þýðingu að sjá slíkan stuðning frá skólasamfélaginu. Þess vegna vekur það áhyggjur þegar stjórnmálaöfl gera það að kosningamáli að vilja draga úr þessari mikilvægu fræðslu, leggja hana jafnvel niður eða banna að aðrir fánar en íslenski fáninn séu sýnilegir í skólum. Slíkar hugmyndir senda þau skilaboð að ákveðnir hópar eigi síður heima í samfélaginu og að fjölbreytileiki sé eitthvað sem beri að fela í stað þess að fagna og ræða svo af hreinskilni og virðingu. Hafnfirskt samfélag sem byggir á manngæsku Framtíðarsamfélagið mótast í skólunum okkar. Við þurfum að velta fyrir okkur hvernig samfélag við viljum skapa okkur og framtíðarkynslóðum Hafnfirðinga. Ég leyfi mér að efast um að við viljum í raun samfélag sem elur á ótta og fordómum. Líklegra tel ég að við viljum öll búa í samfélagi sem byggir á manngæsku. En til að tryggja það þurfum við að standa vörð um fræðslu sem eykur skilning og víðsýni og sýna fram á að við eigum öll rétt á að vera samþykkt eins og við erum. Höfundur er kyn- og kynjafræðikennari í grunnskóla og situr á lista Framsóknar í Hafnarfirði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí næstkomandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar