Sterkt atvinnulíf, sterkur Hafnarfjörður Helga Björg Loftsdóttir skrifar 11. maí 2026 13:02 Hafnarfjörður hefur alla þá burði til þess að verða eitt öflugasta atvinnusvæði landsins. Hér er fjölbreytt atvinnulíf og fólk sem er tilbúið að leggja hart að sér. Við þurfum að halda áfram að sækja fram og því þurfum við að skapa enn betri skilyrði fyrir fyrirtæki, starfsfólk og fjölskyldur. Ábyrg stjórnun og betri skilyrði Öflugt atvinnulíf verður ekki til af sjálfu sér. Það byggir á ábyrgri stjórnun, kröftugum innviðum og sveitarfélagi sem skilur mikilvægi þess að styðja við atvinnusköpun. Það er einmitt sú sýn sem Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði hefur lagt áherslu á, að bæjarfélagið sé áfram rekið af ábyrgð, með lágum álögum og skýrri framtíðarsýn. Við þurfum að halda áfram að einfalda ferla. Fyrirtæki eiga ekki að þurfa að festast í óþarfa flækjustigi eða löngum biðtímum eftir leyfum og afgreiðslu. Sveitarfélag sem vinnur hratt og skilvirkt verður sjálfkrafa meira aðlaðandi fyrir atvinnulífið og skapar betri skilyrði fyrir ný störf og aukna verðmætasköpun. Innviðir og sterkari framtíð Við þurfum að tryggja áframhaldandi uppbyggingu atvinnusvæða, samgangna og annarra innviða. Fjöldi fyrirtækja hefur byggt upp eða flutt starfsemi sína til Hafnarfjarðar á undanförnum árum. Við sjálfstæðismenn höfum lagt áherslu á góð skilyrði fyrir atvinnustarfsemi með nægu lóðaframboði og lægri álögum. Hafnarfjörður hefur laðað til sín ný fyrirtæki í nýsköpun, þjónustu og framleiðslu, og við ætlum að halda því áfram. Sterkt atvinnulíf skilar sér ekki bara í auknum tekjum sveitarfélagsins heldur líka í sterkara samfélagi. Þegar fyrirtækjum gengur vel skapast fleiri störf, aukið öryggi fyrir fjölskyldur og fleiri tækifæri fyrir ungt fólk til að byggja sér framtíð í Hafnarfirði. Hafnarfjörður á áfram að vera það sveitarfélag sem fólk og fyrirtæki velja. Með áframhaldandi ábyrgri stjórnun, sterkum innviðum og jákvæðu viðmóti gagnvart atvinnulífinu getum við gert góðan bæ enn betri. Höfundur er Helga Björg Loftsdóttir er í stjórn Hafnarfjarðarhafnar og skipar 6. sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Hafnarfjörður hefur alla þá burði til þess að verða eitt öflugasta atvinnusvæði landsins. Hér er fjölbreytt atvinnulíf og fólk sem er tilbúið að leggja hart að sér. Við þurfum að halda áfram að sækja fram og því þurfum við að skapa enn betri skilyrði fyrir fyrirtæki, starfsfólk og fjölskyldur. Ábyrg stjórnun og betri skilyrði Öflugt atvinnulíf verður ekki til af sjálfu sér. Það byggir á ábyrgri stjórnun, kröftugum innviðum og sveitarfélagi sem skilur mikilvægi þess að styðja við atvinnusköpun. Það er einmitt sú sýn sem Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði hefur lagt áherslu á, að bæjarfélagið sé áfram rekið af ábyrgð, með lágum álögum og skýrri framtíðarsýn. Við þurfum að halda áfram að einfalda ferla. Fyrirtæki eiga ekki að þurfa að festast í óþarfa flækjustigi eða löngum biðtímum eftir leyfum og afgreiðslu. Sveitarfélag sem vinnur hratt og skilvirkt verður sjálfkrafa meira aðlaðandi fyrir atvinnulífið og skapar betri skilyrði fyrir ný störf og aukna verðmætasköpun. Innviðir og sterkari framtíð Við þurfum að tryggja áframhaldandi uppbyggingu atvinnusvæða, samgangna og annarra innviða. Fjöldi fyrirtækja hefur byggt upp eða flutt starfsemi sína til Hafnarfjarðar á undanförnum árum. Við sjálfstæðismenn höfum lagt áherslu á góð skilyrði fyrir atvinnustarfsemi með nægu lóðaframboði og lægri álögum. Hafnarfjörður hefur laðað til sín ný fyrirtæki í nýsköpun, þjónustu og framleiðslu, og við ætlum að halda því áfram. Sterkt atvinnulíf skilar sér ekki bara í auknum tekjum sveitarfélagsins heldur líka í sterkara samfélagi. Þegar fyrirtækjum gengur vel skapast fleiri störf, aukið öryggi fyrir fjölskyldur og fleiri tækifæri fyrir ungt fólk til að byggja sér framtíð í Hafnarfirði. Hafnarfjörður á áfram að vera það sveitarfélag sem fólk og fyrirtæki velja. Með áframhaldandi ábyrgri stjórnun, sterkum innviðum og jákvæðu viðmóti gagnvart atvinnulífinu getum við gert góðan bæ enn betri. Höfundur er Helga Björg Loftsdóttir er í stjórn Hafnarfjarðarhafnar og skipar 6. sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði.
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar