Það er þröngt að búa í Kópavogi Beitir Ólafsson skrifar 12. maí 2026 08:41 Í aðdraganda kosninga er ýmislegt rætt, ritað og lofað. Við sem íbúar eigum að vera með gagnrýna hugsun þegar kemur að stjórnmálum, skoða stefnumál flokkana, sjá hvað hentar mér sem íbúa hverju sinni og kjósa eftir eigin sannfæringu. Íbúar eiga að láta í sér heyra og vera kröfuharðir á stjórnunarhætti kjörinna fulltrúa og undirmanna þeirra í sveitarfélaginu. Við sem íbúar og grunnstoðir Kópavogs getum ekki liðið það að horft sé fram hjá okkar vilja og ákalli þegar kemur að skipulagsmálum, innviðum og grunnþjónustu. Af hverju að setja X við M þann 16. maí? Miðflokkurinn í Kópavogi mun stöðva Reykjarvíkurvæðinguna sem á sér stað í Kópavogi. Það eru engin merki þess eða ákall frá íbúum Kópavogs að Reykjavíkurvæðingin eigi heima inná borðum Kópavogsbúa. Samkvæmt nýjustu könnunum þá hafnar meirihluti Kópavogsbúa þéttingu byggðar og Borgarlínu. Miðflokkurinn er eini flokkurinn í Kópavogi sem talar gegn þéttingarstefnunni, Borgarlínu, bílastæðakvíða og aðför að fjölskyldubílnum. Við í Miðflokknum viljum einnig að byggðar séu hér íbúðir sem munu standast kröfur HMS um ljós og birtuskilyrði í framtíðinni, við einfaldlega hugsum til framtíðar. Það var einu sinni sagt „það er gott að búa í Kópavogi”, við skulum ekki breyta því í „það er þröngt að búa í Kópavogi”. Miðflokkurinn í Kópavogi mun ráðast í innviðauppbyggingu í sveitarfélaginu. Eftir mikið ákall þarf að ráðast í úrbætur á leikskólum, skólum og íþróttamannvirkjum. Kröftugt eftirlit og viðhald þarf að vera til staðar á mannvirkjum bæjarins. Fjárfesta þarf í loftgæðum og hljóðvist í leik- og grunnskólum en með því stórbætum við starfs- og námsumhverfi kennara og nemenda. Miðflokkurinn í Kópavogi mun taka skólamálin föstum tökum, setja námsárangur í fyrsta sæti. Minnka nemendahópa, koma á aga og vinnufrið í skólastofu. Við munum aflétta spjaldtölvuvæðingunni sem á sér stað skólum Kópavogsbæjar. Það er skýrt ákall frá foreldrum um að minnka skjátíma hjá börnum og munum við aðstoða foreldra í þeirri vegferð. Við ætlum að taka upp samræmd próf með tölulegum einkunnum, námsmat verður í forgrunni svo foreldrar geti áttað sig á stöðu síns barns innan skólakerfisinns. Skóli með aðgreiningu verður settur á laggirnar og mætt verður þörfum hvers og eins. Miðflokkurinn í Kópavogi mun efla velferðarþjónustuna, taka til í stjórnsýslunni, auka skilvirkni og þjónustu við íbúa. Auðvelda þarf umsóknar og tilkynningarferlið fyrir íbúa. Starfsfólk Kópavogs þarf að grípa boltann og veita fólki nauðsynlegar upplýsingar. Íbúar verða að geta áttað sig á því hvar þeir standa í kerfinu. Ólíðandi er að íbúar lendi á milli skips og bryggju í þeim málum sem þola enga bið og engin tekur afstöðu innan stjórnsýslunnar. Borið hefur á því að einstaka mál liggi inni á borði hjá stjórnsýslunni svo mánuðum skiptir án nokkurra upplýsinga til hlutaðeigandi aðila um stöðu mála. Miðflokkurinn í Kópavogi mun gera Kópavogsbæ að skemmtilegra sveitarfélagi. Fjárfesting í útivistarsvæðum Kópavogs í samráði og sátt við íbúa og eftir þeirra þörfum. Það er algjört ákall um góðan af girtan leikvöll með sér leiktækjum fyrir aðila með fötlunarvandamál. Með fjárfestingu af þessu tagi stuðlum við að bættri lýðheilsu ungra og þeirra sem eldri eru. Miðflokkurinn ætlar að endurvekja áramótabrennu og koma á fót alvöru bæjarhátíð í Kópavogi sem sameinar Kópavogsbúa og við getum verið stolt af. Miðflokkurinn í Kópavogi er tilbúinn í samtalið, hlusta á og svara ákalli frá íbúum. Miðflokkurinn ætlar að standa vörð um Kópavog og hagsmuni íbúa. Tækifærið er núna, settu X við M þann 16. maí. Höfundur býður sig fram í 3. sæti á lista Miðflokksinns í Kópavogi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Miðflokkurinn Mest lesið Getur maður dansað sig út úr depurð? Guðjón Ágústsson Skoðun Þið eruð trömpistar ... sagði orkuráðherra Kristín Helga Gunnarsdóttir Skoðun Vinnuvernd er líka sjálfsvígsforvörn Carmen Maja Valencia Skoðun 48 manna stjórn – er þess virkilega þörf? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Háskólar eiga að leggja áherslu á árangur, ekki fólk Aðalbjörn Jóhannsson Skoðun Konur fjárfestum! Iða Brá Benediktsdóttir Skoðun 20 kíló af þjóðarskömm Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Menntun þarf ekki að þýða tekjutap Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir Skoðun Þegar að náttúruvernd fer úr tísku Halla Hrund Logadóttir Skoðun Þau sem eftir sitja Auður Erla Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Getur maður dansað sig út úr depurð? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Vinnuvernd er líka sjálfsvígsforvörn Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Á allt Ísland heima á höfuðborgarsvæðinu? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Reykjanesundrið - næsti kafli Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekkert að spila um Sigurður Hallur Jónsson skrifar Skoðun HMS vill dýrari byggingar Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar að náttúruvernd fer úr tísku Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Þið eruð trömpistar ... sagði orkuráðherra Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Konur fjárfestum! Iða Brá Benediktsdóttir skrifar Skoðun Hvað gerist þegar ótti er endurtekinn nógu oft til að fordómar fari að líta út eins og heilbrigð skynsemi? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun 48 manna stjórn – er þess virkilega þörf? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Má segja að börn á Íslandi hafi það gott? Hjördís Eva Þórðardóttir skrifar Skoðun Þau sem eftir sitja Auður Erla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35 borgar ekki reikningana Elliði Vignisson skrifar Skoðun Háskólar eiga að leggja áherslu á árangur, ekki fólk Aðalbjörn Jóhannsson skrifar Skoðun Von er ekki aðgerð Hermína Gunnþórsdóttir,Sigrún Helga Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjald á umönnun Alma Ýr Ingólfsdóttir,Guðmundur Ármann Pétursson,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Vigdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Við erum náttúran – náttúran er við Harpa Fönn Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Frjósemisvarðveisla; Jafnt aðgengi að framtíðinni Ragnhildur Þóra Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Byggjum upp netöryggisgetu og fögnum áfangasigrum Hrannar Ásgrímsson skrifar Skoðun Menntun þarf ekki að þýða tekjutap Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir skrifar Skoðun Kostir og gallar Schengen Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun 20 kíló af þjóðarskömm Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Hvað breyttist þegar þjóðin sagði nei? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Stjórnun gervigreindar og öryggi Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Hafrannsóknastofnun vissi af gloppunni en gerði ekkert Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Reikningurinn sem svefninn getur ekki borgað Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Er þetta allt sama tóbakið? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Danski bærinn Akureyri Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Píeta samtökin í 10 ár Hildur Eir Bolladóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvað gerist þegar ótti er endurtekinn nógu oft til að fordómar fari að líta út eins og heilbrigð skynsemi? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Kílómetragjald á umönnun Alma Ýr Ingólfsdóttir,Guðmundur Ármann Pétursson,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Vigdís Gunnarsdóttir skrifar