Á tali í Garðabæ Hreiðar Jónsson skrifar 12. maí 2026 10:50 Það er ótrúlegt hvað maður kemst nær samfélaginu með því að taka þátt í sveitarstjórnarkosningum. Samtöl við unga sem aldna Garðbæinga hafa opnað augu mín fyrir hlutum sem maður annað hvort sá ekki áður eða gaf sér ekki tíma til að staldra við. Úr þessum samtölum kvikna nýjar hugmyndir. Samtal sem kveikti nýja hugsun Kveikjan að þessari grein varð í Krónunni á Akrabraut þar sem ég var að ræða við íbúa um það sem þeim liggur á hjarta fyrir kosningar. Þar hitti ég góða konu sem hafði lesið grein eftir mig undir yfirskriftinni Gaman að vera gamall í Garðabæ. Í greininni ræddi ég meðal annars um mikilvægi þess að ná til eldra fólks sem er félagslega einangrað. Þar var lagt upp með að stundum geti eitt símtal eða einföld heimsókn verið nóg til að hjálpa fólki inn í það félagsstarf sem Garðabær hefur upp á að bjóða. En þessi kona benti mér á eitthvað mikilvægt. Það eru ekki bara eldri borgarar sem upplifa einmanaleika eða þurfa stuðning. Fólk á öllum aldri getur lent í áföllum, misst fótfestuna tímabundið eða einfaldlega þurft einhvern til að tala við og leiðbeina sér áfram. Hún velti því upp hvort kirkjan, heilsugæslan eða Garðabær sjálfur ættu að stíga meira inn í það hlutverk. Fyrirbyggjandi þjónusta skiptir máli Þarna áttaði ég mig á því að ég hafði hugsað þetta of þröngt. Ég var fyrst og fremst að hugsa um eldri íbúa sem þurfa smá hvatningu til að tengjast samfélaginu á ný. En sama hugsun á auðvitað við miklu víðar. Fyrir einstakling sem gengur í gegnum sorg, skilnað, veikindi eða annað áfall getur eitt símtal, reglulegt utanumhald eða aðgengi að ráðgjöf skipt sköpum. Við sjáum víða góð dæmi um slíka nálgun. Hjá Viðreisn í Mosfellsbæ hefur verið lögð áhersla á stuðning við börn og fjölskyldur, meðal annars með ráðgjafarþjónustu fyrir foreldra. Slík þjónusta hefur reynst vel og sýnir að fyrirbyggjandi stuðningur skilar árangri. Fjárfesting í sterkara samfélagi Garðabær hefur alla burði til að vera leiðandi þegar kemur að mannlegri og fyrirbyggjandi þjónustu við íbúa. Með því að grípa fólk fyrr getum við dregið úr félagslegri einangrun, bætt líðan og jafnvel komið í veg fyrir þyngri og kostnaðarsamari úrræði síðar meir. Áföll gera ekki boð á undan sér. Þau geta komið fyrir okkur öll óháð aldri, stétt eða stöðu. Rannsóknir sýna líka aukna unglingadrykkju með tilheyrandi vandamálum sem þarf að grípa. Gerum Garðabæ að samfélagi þar sem fólk finnur að það sé séð, hlustað á það og gripið þegar á þarf að halda. Slík þjónusta er ekki kostnaður. Hún er fjárfesting í sterkari samfélagi. Vinnum saman og hugsum í lausnum. Settu X við C. Höfundur skipar 5. sæti á lista Viðreisnar í Garðabæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar