Samstaða í bæjarstjórn um uppbyggingu íþróttamannvirkja í Hveragerði Njörður Sigurðsson skrifar 12. maí 2026 12:42 Uppbygging íþróttamannvirkja í Hveragerði hefur verið mikilvægt mál á þessu kjörtímabili. Í byrjun þess var ekki samstaða meðal bæjarfulltrúa um hvernig og hvaða leiðir skyldi fara með þetta mikilvæga verkefni. Sjálfstæðisflokkurinn talaði fyrir því að blása að nýju upp loftborið íþróttahús en Okkar Hveragerði og Framsókn vildu frekar horfa til varanlegri lausna og töluðu fyrir byggingu nýrrar Hamarshallar. Kostnaður og framkvæmdatími við mögulegar lausnir hafði mikil áhrif á afstöðu bæjarfulltrúa til málsins. Sameiginlegar tillögur Óeining um tiltekin mál í bæjarstjórn hefur oft áhrif á umræðuna í samfélaginu og það átti einnig við um uppbyggingu íþróttamannvirkja í Hveragerði. Undir lok árs 2023 ákváðu bæjarfulltrúar allra flokka sem sæti eiga í bæjarstjórn að setjast niður og kanna hvort hægt væri að ná sameiginlegri niðurstöðu um hvernig best væri að standa að uppbyggingu íþróttamannvirkja. Niðurstaðan varð sú að á bæjarstjórnarfundi 14. desember 2023 lögðu bæjarfulltrúar Okkar Hveragerðis, Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins fram sameiginlegar tillögur um byggingu gervigrasvallar og nýs íþróttahúss við Skólamörk. Samstaða og framtíðarsýn Það var ákaflega mikilvægt fyrir samfélagið í Hveragerði að bæjarfulltrúar ákváðu að stíga skref til baka, fara yfir málið að nýju og ná sameiginlegri niðurstöðu um hvernig skyldi byggja upp íþróttamannvirki til framtíðar. Sú samstaða sýndi vel að þegar bæjarstjórn vinnur vel saman, óháð flokkspólitískum línum, er hægt að koma mikilvægum verkefnum áfram í góðri sátt. Stofnuð var sérstök byggingarnefnd fyrir uppbyggingu íþróttamannvirkjanna þar sem sátu starfsfólk Hveragerðisbæjar, fulltrúar allra flokka í bæjarstjórn og fulltrúar frá Íþróttafélaginu Hamri. Innan nefndarinnar hefur verið haft mikilvægt samráð um framkvæmdirnar og þar hafa ólík sjónarmið fengið að heyrast. Það hefur án efa skilað betri niðurstöðu fyrir samfélagið allt. Staðan í uppbyggingu íþróttamannvirkja, um tveimur og hálfu ári eftir að samstaða náðist í bæjarstjórn, er sú að gervigrasvöllurinn verður tekinn í notkun nú í vor og uppsteypa nýs íþróttahúss er í fullum gangi. Gert er ráð fyrir að húsið verði risið fyrir lok þessa árs. Áfram Hveragerði Það er mikilvægt að halda áfram á þessari braut og í þeirri sátt sem málið hefur verið. Uppbygging íþróttamannvirkja er fjárfesting í heilsu, félagslífi og framtíð barna og ungmenna í Hveragerði. Þegar tekist er á við stór verkefni af ábyrgð, með samráði og sameiginlega sýn að leiðarljósi, verður niðurstaðan sterkari og samfélagið allt stendur eftir sameinaðra. Þannig viljum við halda áfram að byggja upp Hveragerði, með samvinnu, framtíðarsýn og hagsmuni bæjarbúa að leiðarljósi. Höfundur er bæjarfulltrúi Okkar Hveragerðis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Njörður Sigurðsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar