Þegar við höfnuðum „Viljandi villt“ Sigrún Ásta Einarsdóttir skrifar 13. maí 2026 06:01 Borgin okkar er frábær og hún á það skilið að skarta sínu fegursta. Sumarborgin Reykjavík á alltaf að vera í sparidressinu, þannig að bæði íbúar og gestir geti notið hennar til hins ýtrasta. Borgaryfirvöld aðhyllast stefnu sem þau kalla „Viljandi villt“. Í grófum dráttum snýst hún um það að leyfa gróðri að vaxa hömlulaust á borgarlandinu. Í mínum bókum er þetta þó ekkert annað en orðskrúð um aðgerðarleysi. Auðvitað eigum við að halda borgarlandinu okkar snyrtilegu og vera stolt af því. Borgin hætti í fyrra að slá útivistarsvæðið við Sóleyjatún í Grafarvogi. Túnið hafði um áratuga skeið verið leiksvæði barna í hverfinu, en óræktin var orðin slík að börnin þurftu frá að hverfa. Fjöldi íbúa sendi erindi á borgina um að þessu yrði kippt í liðinn, en erindin voru virt að vettugi. Þá voru góð ráð dýr, en við íbúarnir gáfumst ekki upp og tókum til okkar ráða. Stórir og smáir, ungir sem aldnir mættu til starfa. Túnið var slegið, njólinn stunginn upp og ruslið týnt. Íbúarnir endurheimtu sjálfir útivistarsvæðið. Börnin fóru aftur að leika sér. Því miður haga borgaryfirvöld sér oft á tíðum algerlega á skjön við vilja borgarbúa. Þótt hugmyndir kunni að vera góðar á blaði þá þýðir ekki að þröngva þeim í gegn í andstöðu við vilja íbúana. Reykjavík er borg, ekki skipulagseining. Það eru íbúarnir sem eiga að hafa mest um það að segja hvernig borg við viljum, ekki embættismenn og misvitrir stjórnmálamenn í Ráðhúsinu. Endurheimtum hreina borg og fögur torg. Höfnum viljandi villt. Kjósum Sjálfstæðisflokkinn 16. maí. Höfundur skipar 9. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Reykjavík Sigrún Ásta Einarsdóttir Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Sjá meira
Borgin okkar er frábær og hún á það skilið að skarta sínu fegursta. Sumarborgin Reykjavík á alltaf að vera í sparidressinu, þannig að bæði íbúar og gestir geti notið hennar til hins ýtrasta. Borgaryfirvöld aðhyllast stefnu sem þau kalla „Viljandi villt“. Í grófum dráttum snýst hún um það að leyfa gróðri að vaxa hömlulaust á borgarlandinu. Í mínum bókum er þetta þó ekkert annað en orðskrúð um aðgerðarleysi. Auðvitað eigum við að halda borgarlandinu okkar snyrtilegu og vera stolt af því. Borgin hætti í fyrra að slá útivistarsvæðið við Sóleyjatún í Grafarvogi. Túnið hafði um áratuga skeið verið leiksvæði barna í hverfinu, en óræktin var orðin slík að börnin þurftu frá að hverfa. Fjöldi íbúa sendi erindi á borgina um að þessu yrði kippt í liðinn, en erindin voru virt að vettugi. Þá voru góð ráð dýr, en við íbúarnir gáfumst ekki upp og tókum til okkar ráða. Stórir og smáir, ungir sem aldnir mættu til starfa. Túnið var slegið, njólinn stunginn upp og ruslið týnt. Íbúarnir endurheimtu sjálfir útivistarsvæðið. Börnin fóru aftur að leika sér. Því miður haga borgaryfirvöld sér oft á tíðum algerlega á skjön við vilja borgarbúa. Þótt hugmyndir kunni að vera góðar á blaði þá þýðir ekki að þröngva þeim í gegn í andstöðu við vilja íbúana. Reykjavík er borg, ekki skipulagseining. Það eru íbúarnir sem eiga að hafa mest um það að segja hvernig borg við viljum, ekki embættismenn og misvitrir stjórnmálamenn í Ráðhúsinu. Endurheimtum hreina borg og fögur torg. Höfnum viljandi villt. Kjósum Sjálfstæðisflokkinn 16. maí. Höfundur skipar 9. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar