Hildur fækkaði bílastæðum um 3000 Magnús Kjartansson skrifar 12. maí 2026 22:47 Ég botna ekki lengur í Sjálfstæðisflokknum. Hann er í mótsögn við sjálfan sig. Borgarlína Allir þeir sjálfstæðismenn í Reykjavík sem ég þekki, eru á móti borgarlínu. En oddvitinn, Hildur Björnsdóttir, berst fyrir borgarlínu. Samkvæmt Gísla Marteini Baldurssyni kemur Hildur úr róttækasta armi borgarlínufóks, Kaffi Vest klíkunni sem vill bíllausan lífsstíl og útrýma einkabílum með góðu eða illu. Bílastæði Allir þeir sjálfstæðismenn í Reykjavík sem ég hef hitt nýlega, vilja halda í bílastæðin sín. En oddvitinn, Hildur Björnsdóttir, klauf borgarstjórnarflokkinn og greiddi atkvæði með vinstri meirihlutanum í borgarstjórn, um tvö prósent fækkun bílastæða á ári. Þetta var árið 2021. Síðan hefur bílastæðum fækkað um 600 á ári eða um 3000 bílastæði í heildina. Þökk sé vinstri meirihlutanum og Hildi Björnsdóttur. Hildi fannst líka sjálfsagt að meirihlutinn hækkaði bílastæðagjöld um 40 prósent. Hún sat borgarráðsfundinn þar sem hækkunin var samþykkt, án þess að greiða atkvæði gegn því. Núna þykist hún ætla að lækka aftur gjöldin og fjölga aftur bílastæðum. Hvers vegna í ósköpunum var hún þá að fækka þeim fyrir örfáum árum? Þétting byggðar Allir þeir sjálfstæðismenn í Reykjavík sem ég þekki, eru á móti þéttingu byggðar. Nú stendur til að byggja íbúðablokk á bensínstöðvarreitnum við Birkimel. Íbúarnir og HÍ berjast gegn því. Borgarfulltrúar sjálfstæðismanna, nema Hildur, studdu íbúana og HÍ, fyrir bara nokkrum mánuðum. En þegar Íbúasamtök Vesturbæjar spurði flokkana, nú um daginn, um afstöðu þeirra til þessara byggingaráforma, voru allir flokkarnir annað hvort á móti þessum áformum eða vildu láta endurskoða þau. Allir nema Hildur. Hún sagðist vera hlynnt þessari þéttingu. Er ástæðan kannski sú að eiginmaður Hildar var framkvæmdastjóri Stengs Holdind ehf, sem átti meirihlutann í Skeljungi þegar Dagur B. Eggertsson gaf Skeljungi þennan byggingarrétt? Hver trúir svona hringlandahætti, korter fyrir kosningar? Og hvers vegna í ósköpunum eru sjálfstæðismenn með oddvita sem er á allt annarri skoðun en hinn almenni flokksmaður? Höfundur er leiðsögumaður Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Ég botna ekki lengur í Sjálfstæðisflokknum. Hann er í mótsögn við sjálfan sig. Borgarlína Allir þeir sjálfstæðismenn í Reykjavík sem ég þekki, eru á móti borgarlínu. En oddvitinn, Hildur Björnsdóttir, berst fyrir borgarlínu. Samkvæmt Gísla Marteini Baldurssyni kemur Hildur úr róttækasta armi borgarlínufóks, Kaffi Vest klíkunni sem vill bíllausan lífsstíl og útrýma einkabílum með góðu eða illu. Bílastæði Allir þeir sjálfstæðismenn í Reykjavík sem ég hef hitt nýlega, vilja halda í bílastæðin sín. En oddvitinn, Hildur Björnsdóttir, klauf borgarstjórnarflokkinn og greiddi atkvæði með vinstri meirihlutanum í borgarstjórn, um tvö prósent fækkun bílastæða á ári. Þetta var árið 2021. Síðan hefur bílastæðum fækkað um 600 á ári eða um 3000 bílastæði í heildina. Þökk sé vinstri meirihlutanum og Hildi Björnsdóttur. Hildi fannst líka sjálfsagt að meirihlutinn hækkaði bílastæðagjöld um 40 prósent. Hún sat borgarráðsfundinn þar sem hækkunin var samþykkt, án þess að greiða atkvæði gegn því. Núna þykist hún ætla að lækka aftur gjöldin og fjölga aftur bílastæðum. Hvers vegna í ósköpunum var hún þá að fækka þeim fyrir örfáum árum? Þétting byggðar Allir þeir sjálfstæðismenn í Reykjavík sem ég þekki, eru á móti þéttingu byggðar. Nú stendur til að byggja íbúðablokk á bensínstöðvarreitnum við Birkimel. Íbúarnir og HÍ berjast gegn því. Borgarfulltrúar sjálfstæðismanna, nema Hildur, studdu íbúana og HÍ, fyrir bara nokkrum mánuðum. En þegar Íbúasamtök Vesturbæjar spurði flokkana, nú um daginn, um afstöðu þeirra til þessara byggingaráforma, voru allir flokkarnir annað hvort á móti þessum áformum eða vildu láta endurskoða þau. Allir nema Hildur. Hún sagðist vera hlynnt þessari þéttingu. Er ástæðan kannski sú að eiginmaður Hildar var framkvæmdastjóri Stengs Holdind ehf, sem átti meirihlutann í Skeljungi þegar Dagur B. Eggertsson gaf Skeljungi þennan byggingarrétt? Hver trúir svona hringlandahætti, korter fyrir kosningar? Og hvers vegna í ósköpunum eru sjálfstæðismenn með oddvita sem er á allt annarri skoðun en hinn almenni flokksmaður? Höfundur er leiðsögumaður
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar