Eru vísindi „tabú“ í almannaumræðu? Loftslagsmál upplýst Ágúst Kvaran skrifar 13. maí 2026 08:02 Er vísindaleg umfjöllun á bannlista í fjölmiðlaumræðu? Er vísindalæsi almennings þannig að ekki er hægt að ætlast til þess að hann geti meðtekið niðurstöður vísindarannsókna og túlkanir þeirra eða eru fjölmiðlar að bregðast miðlunarhlutverki sínu á vísindavettvangi? Ég spyr að gefnum tilefnum. Allt of oft sniðgengur fjölmiðlaumfjöllun um vísindatengd málefni, á borð við loftslagsmál, vísindin sem að baki liggja og/eða afgreiðir þau með stuttaralegum tilvísunum á borð við “…samkvæmt vísindalegum niðurstöðum…” og lætur þar við sitja. Þess í stað er megináherslan á afleiddar ákvarðanatökur af ýmsu tagi. Að sniðganga umræðuna og skilninginn að grunninum að baki afleiðinganna getur boðið hættunni heim eins og nánar verður vikið að hér neðar. Vísindi forsendur ákvarðanatöku; vísindamiðlun Í lýðræðissamfélögum er mikilvægt að kynna sér málavöxtu og móta sér sjálfstæða skoðun í álitamálum, sem snerta almannahag eftir því sem kostur er í stað þess að treysta í einu og öllu á „matreiddar“ skoðanir. Það er hornsteinn þess að lýðræðið virki. Þetta á bæði við um forsendur ákvarðanatöku sem og ákvarðanatökur sem af þeim leiðir. Þegar forsendur ákvarðanatöku byggja á vísindalegum grunni kallar það óhjákvæmilega á vísindalæsi að einhverju marki. Vísindalæsi almennings er skiljanlega mismikið líkt og gildir um aðra samfélagslega færni (t.d. fjármálalæsi) háð þáttum á borð við uppeldi, menntun, störfum, áhugasviðum og reynslu. Almenn menntun á sviði náttúruvísinda í skólakerfinu er til þess fallin að veita færni í vísindalæsi, auk þess að leggja grunn að frekara tengdu starfsnámi. Öflun viðeigandi fróðleiks í netheimum og/eða með aðstoð gervigreindarinnar er mikilvæg, en hún kallar á vissa færni og vísindalæsi til að greina rétt frá röngu. Í því tilliti gildir ekki hvað síst að kunna að spyrja réttra spurnina. Þáttur fjölmiðla í miðlun grunn-upplýsinga, á mannamáli, tengt hinum ýmsu málefnum, er ekki hvað síst mikilvægur til að vega á móti vaxandi upplýsingaóreiðu og falsfréttum. Einnig má benda á mikilvægi Vísindavefs HÍ, þar sem er að finna fróðleik af ýmsu tagi skrifaðan af sérfræðingum á íslensku.(1) Loftslagsmál og upplýsingaóreiða Umfjöllun um loftslagsmál er gott dæmi um mikilvægi vísindalæsis og gagnlegrar miðlunar grunn-upplýsinga. Þótt margir kjósi eflaust að treysta niðurstöðum og ályktunum vísindamanna, sem almennt eru taldar áreiðanlegar, án þess endilega að hafa kynnt sér málin til hlítar, þá er alltaf hópur efasemdarmanna tilbúinn að halda á lofti mótrökum. Það er að sjálfsögðu jákvætt að varpa fram mótrökum sem geta verið til þess fallin að veita aðhald og skerpa áherslur í röksemdafærslum. Fyrir vikið, nú þegar með og mótrök hafa verið vegin og metin ítarlega á löngum tíma, leikur til dæmis enginn vafi á að hnattræn hlýnun undanfarinna ára, eða frá upphafi iðnbyltingarinnar upp úr 1800, er af mannavöldum tengd vaxandi gróðurhúsaáhrifum samfara koltvíoxíðlosun (þ.e. kolefnislosun). Engu að síður skjóta upp kollinum öðru hvoru sömu gömlu efasemdarökin, sem hafa verið hrakin af vísindasamfélaginu. Líklegar ástæður þessa geta verið 1) eðlislæg íhaldssemi þannig að menn geti ekki hugsað sér að gefa eftir viðteknar lífsvenjur á borð við óbreyttan ferðamáta eða hvaðeina sem kann að auka kolefnissporið, 2) hagsmunatengsl eða 3) vankunnátta, þar með talið skortur á vísindalæsi. Oftar en ekki er slík umfjöllun á einsleitu formi þannig að settar eru fram tilgátur en ekki hirt um að tíunda mótrök vísindasamfélagsins, til þess fallin að sá efasemdarfræjum og ranghugmyndum sem eykur upplýsingaóreiðu. Meðal áhersluatriða eru þá gjarnan tíndir til ýmsir hugsanlegir áhrifaþættir, aðrir en gróðurhúsaáhrif koltvíoxíðs, sem mögulegir orsakavaldar hnattrænnar hlýnunar, t.d. áreiðanleiki mælinga dreginn í efa, samstaða meðal vísindamanna og sérfræðinga tortryggð, að ógleymdum yfirlýsingum um jákvæðar afleiðingar hnattrænnar hlýnunar.(2) Framsetning minnir helst á áherslur sértrúarsafnaða sem draga fram „hentuga“ texta úr trúarritum „trúarskoðunum“ sínum til áréttingar og hunsa aðrar! Í stað þess að tíunda andsvör við einstöku „trúarskoðunum“ (sem má finna víða (3,4)), þá er ráð að reyna að greina heildarmyndina frá einstöku áhersluþáttum (þ.e. „greina hismi“). Það verður best gert með því að skilja um hvað málið í raun og veru snýst samkvæmt vísindalegri þekkingu dagsins í dag, þ.e. með skilninginn að leiðarljósi. „Stóra myndin“, hvað varðar áhrif koltvíoxíðlosunar (kolefnislosunar) á hnattræna hlýnun er í sjálfu sér einföld og engin ástæða til að ætla að skilningurinn sé einungis á færi sérfróðra vísindamanna, eða að láta afvegaleiðast af endurteknum ranghugmyndum. Hér á eftir verður reynt að varpa ljósi á „um hvað málið snýst“ á einföldu formi í von um að það vegi á móti vaxandi upplýsingaóreiðu. Kolefnislosun/koltvíoxíð losun, hvað…? Mynd 1 vísar til mikilvægra þátta losunar og bindingar koltvíoxíðs (táknað CO2) vegna hringrásar efna í lífríki (dýra og jurtaríki) jarðarinnar og bruna eldsneytis af ýmsu tagi.Í grunnin er losun koltvíoxíðs í dýraríkinu, þar með talið frá manneskjum, tilkomin vegna bruna „eldsneytis“ líkt og í annars konar bruna (á kolum, timbri, olíu o.s.frv.) þótt með ólíkum hætti sé. Í báðum tilfellum er um að ræða að súrefni andrúmsloftsins gengur í efnasamband við lífræn efni (í mat annars vegar eða kol, timbur, olíu eða eitthvað slíkt, hins vegar) og myndar koltvíoxíð og vatn auk orku sem getur haft ólíkar birtingarmyndir (t.d. hreyfanleiki eða líkamshiti annars vegar eða ljósorka og varmaorka hins vegar). Lofttegundin koltvíoxíð leitar upp í andrúmsloftið, eða binst í vatni/sjó og í gróðri. Binding koltvíoxíðs í sjó felur í sér myndun kolsýru líkt og í kolsýrðu drykkjarvatni og veldur súrnun sjávar samkvæmt orðanna hljóðan. Í jurtaríkinu á sér stað andhverfa brunans, þ.e. koldíoxíð og vatn nýtist fyrir tilstilli sólarorkunnar til að mynda lífræn efni plantna („eldsneyti“) auk súrefnis (þ.e. ljóstillífun). Með vísan til myndar 1 má tákna þetta í heild á forminu, þar sem ferlið (* ofar) frá vinstri til hægri (efri örin) er bruni en ferlið frá hægri til vinstri (neðri örin) er ljóstillífun. Auk þessara meginþátta í kolefnislosun og bindingu eru aðrir veigaminni þættir, á heimsvísu. Má þar nefna annars vegar losun koltvíoxíð úr jarðefnum í sement og stál-iðnaði og hins vegar bindingu koltvíoxíðs í bergi eða við rafeldsneytis-framleiðslu.(5) Af ofangreindu má ljóst vera að aukning í koltvíoxíðmyndun, í lofti og legi (sjór/vatn) á heimsvísu ræðst einkum af mismunandi vægi bruna (í víðasta skilningi þess orðs) og gróðurbindingu. Röskun á jafnvægi ferlanna (*), þannig að losun verði meiri en binding, jafngildir því að vægi brunans verði meira en gróðurbindingin. Gróðurhúsaáhrif koltvíoxíðs og hnattræn hlýnun. Gróðurhúsaáhrif koltvíoxíðs og hnattræn hlýnun samfara aukinni losun eru meira en aldagömul sannindi. Sænski nóbelsverðlaunahafinn Svante Arrhenius birti um það vísindagrein árið 1896.(6) „Gróðurhúsaáhrif koltvíoxíðs“ vísar til þess að um er að ræða sambærileg áhrif og í gróðurhúsi. Í gróðurhúsi nær sólargeislunin inn fyrir glerið þar sem plöntur og jarðvegur “gleypa” sólarorkuna (Mynd 2). Auk þess sem sú orka nýtist til vaxtar plantna með ljóstillífun umbreytist orkan í hitageislun sem leitar burt. Efniseindir (sameindir) glersins “gleypa” hins vegar hitageislunina og endurkasta henni að hluta aftur inn í gróðurhúsið, þannig að einungis hluti hennar sleppur út. Þannig viðheldur eða eykur glerið hitann inni í gróðurhúsinu.(7) Sama máli gegnir um koltvíoxíð í andrúmsloftinu yfir jörðinni. Sameindir þess (og ýmsar aðrar) “gleypa” hitageislun sem stafar frá jörðinni í kjölfar sólargeislunar sem nær til jarðar og virka þannig líkt og gler í gróðurhúsi og viðhalda eða auka hitann á jörðu niðri (Mynd 3).(8,9,10) Hitunin eykst með vaxandi koltvíoxíði í andrúmsloftinu. Mynd 2. Gróðurhúsaáhrif glers í gróðurhúsi.(7) Mynd 3. Gróðurhúsaáhrif lofttegunda í andrúmsloftinu.(6) Mælingar á magni koltvíoxíðs í andrúmsloftinu eru framkvæmdar á loftsýnum með sérstökum litrófsmælum(11) sem byggja á rótgróinni tækni fyrir „gleypni“ sameindanna á hitageislun líkt og á sér stað í andrúmsloftinu. Magnið á hverjum stað (styrkur efnisins) er mælt í einingunni ppm. Mælingar eru það nákvæmar að unnt er að greina árstíðarsveiflur og áhrif staðsetninga á jörðinni, sem endurspeglar breytilega gróðurbindingu koltvíoxíðs. Styrkur koltvíoxíðs, hnattrænt, er svo fundinn út frá fjölmörgum mælingum víða um heim. Auk þessa hefur styrkur koltvíoxíðs í andrúmsloftinu verið ákvarðaður út frá ítarlegum greiningum á ískjörnum 800 000 ár aftur í tímann. Í ljós kemur að styrkurinn á því tímabili hefur verið breytilegur, háður hlý- og kuldaskeiðum en aldrei farið yfir 300 ppm. Frá lokum síðasta kuldaskeiðs, fyrir um 10 000 árum, fram að iðnbyltingu (upp úr 1800) greinist styrkurinn nokkuð stöðugur á bilinu 265 – 285 ppm, en hefur farið vaxandi síðan þá og náði hámarki, um 432 ppm, á þessu ári, 2026 (Mynd 4).(12) Meðalhiti á jörðu er ákvarðaður út frá mælingum frá meira en 100 000 stöðum á jörðinni. Í ljós kemur að meðalhiti á yfirborði jarðar hefur farið vaxandi frá upphafi iðnbyltingarinnar um 1.1 – 1.3 °C og að aukningin helst í hendur við styrkaukningu koltvíoxíðs í andrúmsloftinu eins og sést á Mynd 5.(13) Einhverjum kann að finnast að hnattræn hlýnun um 1.1 – 1.3 °C frá upphafi iðnbyltingar sé lítilvæg. Þá er rétt að geta þess 1) -að meðalhitinn á jörðinni er talinn hafa verið nokkuð stöðugur á því 10 000 ára tímabili fram að upphafi iðnbyltingarinnar sem koltvíoxíðið hefur haldist stöðugt, 2) -að áhrif hnattrænnar hlýnunar (bráðnun jökla, súrnun sjávar, öfgar í veðurfari…) hefur vaxið áberandi á tímabilinu frá upphafi iðnbyltingarinnar og síðast en ekki síst 3) -að einstakar aðstæður sem fyrirfinnast hér á jörðinni (efnasamsetning og skilyrði) og stöðugleiki þess (innan marka veðurfars-, dag- og árstíða-sveiflna) yfir árþúsundir er forsenda lífríkis jarðarinnar (dýra- og jurtaríki).(14) Röskun á aðstæðum, á þeim skamma tíma sem áhrifa hnattrænnar hlýnunar af mannavöldum hefur greinst, er í reynd „skyndileg“ á tímaskala árþúsunda þróunarskeiðs og ógn við lífríki jarðar. Mynd 4. Styrkur koltvíoxíðs í andrúmslofti jarðar vs. ár.(12) Mynd 5. Tengsl vaxandi koltvíoxíð-styrks í andrúmslofti og hitabreytingar á jörðu.(13) Höfundur er prófessor emeritus í eðlisefnafræði við HÍ og áhugamaður um vísindamiðlun. Tilvísanir:(1) Vísindavefurinn: https://www.visindavefur.is/(2) Helstu loftslagsmýtur: https://skeptical-science.com/science/debunking-climate-denial-myths/?utm_source=chatgpt.com(3) Listi yfir loftslagsmýtur og viðbrögð: https://skepticalscience.com/argument.php?utm_source=chatgpt.com(4) Ritrýni: https://visbending.is/greinar/um-bokina-hitamal-eftir-frosta-sigurjonsson/(5) Rafeldsneyti: https://www.visindavefur.is/svar.php?id=82720(6) Er rétt að gróðurhúsaáhrif koltvíoxíðs hafi náð hámarki og valdi þess vegna ekki meiri hitaaukningu á jörðinni?https://www.visindavefur.is/svar.php?id=87657(7) Af hverju er metan hættulegri gróðurhúsalofttegund en koldíoxíð? https://www.visindavefur.is/svar.php?id=83263(8) Hvað eru gróðurhúsaáhrif og hvernig geta gróðurhúsalofttegundir hækkað hitastig á jörðinni?https://www.visindavefur.is/svar.php?id=13190(9) Geta mismunandi lofttegundir og vatnsgufa valdið gróðurhúsaáhrifum? https://www.visindavefur.is/svar.php?id=78350(10) Hvernig er hægt að sýna fram á að koltvíoxið valdi gróðurhúsaáhrifum á jörðinni?https://www.visindavefur.is/svar.php?id=29976(11) Hvernig virkar litrófsgreinir?https://www.visindavefur.is/svar.php?id=73482 (12)Styrkur koltvíoxíðs í andrúmslofti: https://keelingcurve.ucsd.edu/?(13) Styrkur koltvíoxíðs vs. hlýnun o.fl.: https://www.climatecentral.org/climate-matters/peak-co2-heat-trapping-emissions(14) Jörðin: https://science.nasa.gov/earth/facts/ Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Loftslagsmál Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar