Gísli Þorgeir útskýrir fjarveru sína: „Ber ekkert nema virðingu fyrir landsliðinu“ Aron Guðmundsson skrifar 13. maí 2026 10:03 Gísli Þorgeir í leik með Íslandi á Evrópumóti landsliða í upphafi árs Vísir/Vilhelm Gísli Þorgeir Kristjánsson segist bera ekkert nema virðingu fyrir íslenska landsliðinu og þeirri vinnu sem fer þar fram er hann útskýrir fjarveru sína í yfirstandandi landsliðsverkefni. Gísli og aðrir íslenskir landsliðsmenn í liði Magdeburgar vilja vera ferskir í lokatörn tímabilsins í þýskalandi þar sem í boði eru tveir stórir titlar.
Ísland mætir Egyptalandi í Kaíró í fyrri æfingarleik liðanna af tveimur í dag klukkan eitt en marga stóra pósta vantar í liðið. Þar með talið Gísla Þorgeir, Ómar Inga Magnússon og Elvar Örn Jónsson sem allir spila með Magdeburg í Þýskalandi. Í fyrsta leik eftir landsleikjahléið mætir Magdeburg liði Flensburg í toppslag þýsku úrvalsdeildarinnar þar sem að sigur tryggir Magdeburg þýska meistaratitilinn. Það er svo um miðjan júní sem Magdeburg mætir nú ríkjandi Þýskalandsmeisturum Fuchse Berlin í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Mikilvægar vikur framundan hjá íslensku leikmönnum Magdeburgar sem vilja vera ferskir í lokatörn tímabilsins. „Ég vanmet landsliðið ekki en þessir tveir leikir á móti Egyptalandi eru ekki eins mikilvægir og leikur um þýska meistaratitilinn,“ sagði Gísli Þorgeir í viðtali eftir stórsigur Magdeburgar um nýliðna helgi er hann gaf útskýringu á fjarveru sinni, Ómars Inga og Elvars Arnar í landsliðsverkefni Strákanna okkar. „Auðvitað ber ég ekkert nema virðingu fyrir landsliðinu og þeirri vinnu sem fer þar fram. Engu að síður mun þetta hjálpa okkur aðeins.“ Magdeburg er með sjö stiga forskot á Flensburg á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar þegar að fjórar umferðir eru eftir af deildinni og átta stig í pottinum.
Landslið karla í handbolta Þýski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Íslenski boltinn Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira