Viðskipti innlent

Spá 0,25 prósentu­stiga hækkun stýrivaxta

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Vextir voru hækkaðir hjá Arion banka og Íslandsbanka fyrir helgi og nú hefur Landsbankinn fylgt á eftir.
Vextir voru hækkaðir hjá Arion banka og Íslandsbanka fyrir helgi og nú hefur Landsbankinn fylgt á eftir. Vísir/vilhelm

Greiningardeild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabankans muni hækka vexti um 0,25 prósentustig í næstu viku. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Þar segir að verðbólga sé enn yfir markmiði og verðbólguvæntingar hafi reynst þrálátar. Að mati deildarinnar muni það ráða mestu um að nefndin haldi áfram vaxtahækkunarferlinu sem hófst í mars. Peningastefnunefnd Seðlabankans kemur saman í næstu viku og kynnir vaxtaákvörðun miðvikudaginn 20. maí. Nefndin hækkaði vexti um 0,25 prósentustig við síðustu ákvörðun og standa meginvextir bankans nú í 7,5%.

„Þá var gefið sterklega í skyn að hækkunarferlið sem hófst í mars þyrfti að halda áfram og við spáum því að nefndin hækki vexti á ný í maí, um 0,25 prósentustig. Verðbólga lækkaði úr 5,4% í 5,2% í apríl og mældist almennt undir væntingum. Verðbólga er því sú sama og þegar nefndin hittist síðast og raunstýrivextir nokkurn veginn þeir sömu miðað við liðna verðbólgu. Nefndin tók skýrt fram við síðustu ákvörðun að hún væri tilbúin að herða taumhaldið enn frekar og teljum við því líklegt að svo verði.“

Verðbólga hjaðnað ef ekki væri fyrir bensínið

Þá segir í tilkynningunni á vef bankans að ef rýnt sé í framlag ólíkra liða sjáist að þrátt fyrir að verðbólga hafi staðið í stað frá síðasta fundi peningastefnunefndar hafi framlag flestra liða til verðbólgu dregist saman frá síðasta fundi nefndarinnar.

„Bensín og aðrar innfluttar vörur vega 0,62 prósenstustig til hækkunar verðbólgu á milli funda, meðan allir aðrir liðir til samans vega nánast jafn mikið til lækkunar. Að öðru óbreyttu hefði verðbólga því mælst 4,6 prósent ef bensín og aðrar innfluttar vörur hefðu ekki hækkað.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×