Menning er skattstofn, ekki skraut Jón Bjarni Steinsson skrifar 13. maí 2026 12:46 Ég hef staðið í þessu harki lengi. Ég hef rekið bari, haldið líklega þúsundir minni tónleika og tekið þátt í risaviðburðum. Þessu fylgja hljóðmenn, listamenn, verktakar og ýmiss konar tæknifólk sem mætir, vinnur og fær greitt. Eftir öll þessi ár sit ég samt enn oft uppi með sömu tilfinninguna: að við sem stöndum að menningarviðburðum á Íslandi séum stundum eins og hópur af Don Kíkótum að slást við vindmyllur stjórnkerfis og samfélags sem virðist ekki alveg skilja hvað við erum í raun að gera. Við erum ekki bara að halda tónleika eða skemmta fólki með öðrum hætti. Við erum að skapa störf, skatttekjur, upplifun og líf í samfélaginu okkar. Verðmætin sem verða til Þegar haldinn er tónleika- eða menningarviðburður verða til tekjur fyrir listamenn, hljóðmenn, barfólk, öryggisgæslu, tæknifólk, verktaka, birgja, leigufyrirtæki, leigubíla, veitingastaði, hótel og ferðaþjónustu. Og já líka fyrir ríki og sveitarfélög. Í hvert sinn sem fólk kemur saman á viðburði fara skatttekjur af stað í gegnum hagkerfið. Það er greidd staðgreiðsla, útsvar, tryggingagjald og virðisaukaskattur. Áfengi ber mjög há gjöld. Húsnæði ber gjöld. Rekstur ber gjöld. Hljóðmaðurinn borgar skatta af sínum launum. Barþjónninn líka. Listafólkið líka. Samt er menning alltof oft rædd eins og hún sé fyrst og fremst kostnaður. Eins og samfélagið sé að „styrkja“ hana af góðmennsku sinni. Það er öfugsnúið. Hindranirnar eru of margar Við sem störfum í viðburðahaldi fáum yfirleitt fátt annað frá kerfinu annað en hindranir. Stundum er eins og maður hafi skráð sig í spretthlaup og rétt þegar hlaupið byrjar fari mótsstjórnin að raða hindrunum á brautina. Auðvitað þarf reglur. Auðvitað þarf öryggi. Auðvitað þarf að taka tillit til nágranna, hljóðvistar og alls þess sem fylgir því þegar fólk kemur saman. En umræðan snýst alltof oft fyrst og fremst um hvað gæti farið úrskeiðis. Var einhver vakandi vegna hávaða? Var einhver undir aldri mögulega fullur? Fann lögreglan einhverja neysluskammta á einhverjum gestum? Það er aldrei talað um störfin, skattana, gleðina, bæjarbraginn og verðmætin sem verða til. Tónlistarlíf verður ekki til í Excel-skjali Í skýrslunni Íslenski tónlistariðnaðurinn í tölum kemur fram að heildartekjur íslenska tónlistariðnaðarins á árunum 2015-2016 hafi verið um 3,5 milljarðar króna, auk 2,8 milljarða í afleiddar gjaldeyristekjur vegna tónlistarferðamennsku. Þar kemur einnig fram að lifandi flutningur standi undir tæplega 60% af heildartekjum iðnaðarins. Þetta eru ekki tilfinningar. Þetta eru verðmæti. Þegar erlendir gestir koma hingað sérstaklega vegna tónleika eða hátíða eru þeir að koma með peninga inn í hagkerfið. Þeir gista, borða, ferðast og kaupa þjónustu – og þeir auglýsa . Þetta eru gjaldeyristekjur. Secret Solstice-skýrsla frá 2016 sýnir þetta ágætlega. Þar voru heildaráhrif hátíðarinnar metin á rúmlega 1,4 milljarða króna þegar tekið var tillit til gestaneyslu og innkaupa á íslenskri þjónustu. En stærsta spurningin er að mínu persónulega mati þessi: Hvar á næsta kynslóð íslensks tónlistarfólks að vaxa? Á hverju ári sjáum við td. frábært ungt fólk stíga fram á Músíktilraunum. Þar er hæfileiki, kraftur og framtíð. En hvað svo? Hvar á þetta fólk að spila? Hvar á það að læra að koma fram, gera mistök, byggja upp áhorfendur og stíga næsta skref? Tónlistarlíf verður ekki til í Excel-skjali. Það verður til á litlum sviðum. Í kjöllurum. Á börum. Í félagsheimilum. Í gömlum húsum þar sem einhver tekur áhættu, opnar dyrnar og vonar að nógu margir mæti. Grasrótin er að veikjast Það eru blikur á lofti. Minni tónleikastaðir eru að deyja út. Grasrótin berst við að lifa af. Á sama tíma rennur stærsti hluti þeirrar innkomu sem verður til við tónleikahald þeirra beint til hins opinbera í gegnum skatta og gjöld á meðan lítið sem ekkert kemur á móti. Svo spyrjum við af hverju menningarlífið sé að dofna. Það er líka sérstakt þegar „aukin menning“ er stundum rædd í kosningabaráttu eins og hún sé sambærileg við hefðbundin útgjaldamál sveitarfélaga. Menning er sett til hliðar við lengri opnunartíma sundlauga. Ég hef ekkert á móti sundlaugum. Þvert á móti. En það er augljós munur á því að lengja opnunartíma sundlaugar og því að skapa lifandi menningarlíf sem getur hreyft við atvinnulífi, ferðamennsku og bæjarbrag. Menning skapar líka eitthvað sem ekki verður mælt í krónum einum saman: gleði, samveru, sjálfsmynd og ástæður fyrir fólk til að fara út úr húsi. Menning er atvinnulíf Í dag eyðir íslenska ríkið milljörðum á hverju ári í að styðja við erlend kvikmynda- og sjónvarpsverkefni sem koma hingað til lands. Af hverju? Vegna þess að stjórnvöld skilja að slík verkefni skapa störf, tekjur, gjaldeyri og verðmæti fyrir íslenskt atvinnu og menningarlíf. Af hverju fær lifandi tónlistarstarfsemi ekki sömu hugsun? Ekki endilega sömu styrki eða sömu kerfi, heldur sömu grundvallarsýn: Að menning geti verið fjárfesting, ekki bara kostnaður. Við þurfum stjórnvöld sem skilja hvernig tónlistarmenning verður til. Það þarf húsnæði. Það þarf sveigjanleika. Það þarf skilning á rekstri, næturlífi, öryggi og hljóðvist. Við þurfum líka að hætta að líta á viðburðahaldara sem vesen. Þeir eru fólkið sem heldur lífi í miðbæjum, skapar störf, borgar skatta, fær ferðamenn til landsins og gefur ungu listafólki tækifæri. Á Íslandi er þetta fólk meira og minna annaðhvort sjálfboðaliðar eða launalítið fólk sem gerir þetta af hugsjón. Menning meikar monní Ekki fyrir fólkið sem tekur fjárhagslegu áhættuna og eða fær lítið í eigin vasa, heldur fyrir þá sem hirða skattana og klappa sér svo á bakið fyrir hvað þau eru rosalega menningarleg. Menning er ekki hobbí sem fær að lifa af náð og miskunn hins opinbera. Menning er atvinnulíf. Þessu hugarfari verður að breyta – og ég veit að innan míns flokks er mikill vilji til þess – allsstaðar þar sem við bjóðum fram. Höfundur er viðburðahaldari og skattalögfræðingur sem skipar 3. sæti Viðreisnar í Garðabæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Garðabær Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson Skoðun Halldór 31.10.26 Halldór Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Skoðun Skoðun Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson skrifar Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun
Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun