Hvar á láglaunafólk að búa? Ábyrgð sveitarfélaga Róbert Farestveit og Jana Eir Víglundsdóttir skrifa 14. maí 2026 08:21 Húsnæðisverð hefur frá aldamótum hækkað nær tvöfalt meira tekjur sumra hópa. Meðalíbúð á höfuðborgarsvæðinu kostar í dag yfir 11 faldar árstekjur einstaklings á fyrstu kaupa aldri borið saman við um 6 faldar árstekjur um aldamót. Þessi þróun er ekki eingöngu bundin við Ísland og drifkraftarnir eru ólíkir eftir því hvaða tímabil er skoðað. Vaxandi húsnæðiseftirspurn hefur ekki einungis birst á eignamarkaði heldur hefur leiguverð hækkað langt umfram launaþróun. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun benti nýverið á að tæplega helmingur leigjenda býr við íþyngjandi húsnæðiskostnað, þ.e. meira en 40% af ráðstöfunartekjum þeirra fer í leigu. Fáir valkostir tekjulágra á húsnæðismarkaði Umhverfi hás húsnæðisverðs, hárra vaxta og þrengri lánþegaskilyrða skapar verulegar áskoranir fyrir tekjulágt fólk á húsnæðismarkaði. Við þær aðstæður og íþyngjandi leiguverð reynist tekjulágum leigjendum erfitt að safna upp eigin fé til útborgunar á húsnæði. Þeim sem þó hafa eigið fé er þröngur stakkur sniðinn af lánþegaskilyrðum sem setja hámark um greiðslubyrðahlutföll. Eignir sem samræmast kaupgetu tekjulágra eru vart til við núverandi markaðsaðstæður. Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur bent á að stuðningur foreldra við fyrstu kaup hafi aukist verulega frá árinu 2022. Fyrir stóran hóp sem hefur ekki þann stuðning og uppfyllir ekki lánþegaskilyrði er eini valkosturinn búseta í hagnaðardrifnu leiguhúsnæði. Þar getur munað yfir 70-80 þúsund krónum á mánuði á leiguverði miðað við leiguíbúðir í óhagnaðardrifnum félögum. Að komast í Bjarg ? Almenna íbúðakerfið var stofnað í kjölfar kjarasamninga árið 2015 til að bregðast við vaxandi vanda tekjulágra á leigumarkaði. Markmiðið var að búa til valkost fyrir tekjulágt fólk á vinnumarkaði þar sem það gæti búið við húsnæðisöryggi og viðráðanlega leigu. Félagið byggir á samstarfi húsnæðissjálfseignastofnana, ríkis og sveitarfélaga. Ríki og sveitarfélög styðja við félögin í upphafi með svokölluðu stofnframlagsláni sem nemur 30% af stofnkostnaði íbúða, 18% frá ríki og 12% frá sveitarfélagi. Lánin eru verðtryggð miðað við verðmæti eignanna og greidd til baka á 50 árum. Stofnframlagið getur í tilfelli sveitarfélaga verið í formi lóðaframlags eða afsláttar af gjöldum. Bjarg Íbúðafélag í eigu ASÍ og BSRB byggir íbúðir fyrir tekjulágt fólk á vinnumarkaði en 75% launafólks á Íslandi eru í aðildarfélögum ASÍ og BSRB. Innan almenna kerfisins byggja einnig önnur félög fyrir ólíka hópa t.d. námsmenn, eldri borgara og öryrkja en Bjarg er eina félagið sem byggir sérstaklega fyrir láglaunafólk. Lög um almennar íbúðir setja skilyrði um tekju- og eignamörk til að fólk eigi rétt á íbúðum í kerfinu. Leigjendur hjá óhagnaðardrifnum leigufélögum búa við viðráðanlega leigu og kannanir HMS sýna að þau upplifi mun meira húsnæðisöryggi. Of fáar íbúðir hafa verið byggðar Félagslegar lausnir í húsnæðismálum hafa lengi verið mikilvægt baráttumál verkalýðshreyfingarinnar og á síðustu öld var byggt upp kerfi verkamannabústaða, félagslegra eignaíbúða. Áður en verkamannabústaðakerfið var markaðsvætt upp úr aldamótum voru tæplega fjórar og hálf íbúð innan kerfisins fyrir hverja 100 á vinnumarkaði. Í dag ná óhagnaðardrifnar íbúðir fyrir þennan sama hóp, láglaunafólks, ekki einni íbúð á hverja 100 á vinnumarkaði. Framboð íbúða fyrir láglaunafólk hefur því dregist umtalsvert saman frá aldamótum. Sveitarfélög bera, samkvæmt lögum um húsnæðismál, ábyrgð á að leysa húsnæðisþörf þess fólks í sveitarfélaginu sem þarfnast aðstoðar við húsnæðisöflun. Almenna íbúðakerfinu er einmitt ætlað að mæta þessum hópi og eru félög eins og Bjarg reiðubúin til að byggja upp húsnæði í sveitarfélögum víða um land. Framkvæmdaraðilum hefur skort lóðir til uppbyggingar og hafa sveitarfélög í sumum tilfellum hafnað því að úthluta lóðum til aðila sem vilja byggja upp húsnæði innan kerfisins. Af þeim sökum hafa safnast upp biðlistar hjá Bjargi þar sem yfir 4000 fjölskyldur bíða eftir húsnæði. Húsnæðismarkaður og stöðugleiki Vaxandi húsnæðiskostnaður er stærsti einstaki verðbólguvaldur á Íslandi undanfarna áratugi og um leið stór áhrifaþáttur í launamyndun og launakröfum. Umræðan um húsnæðismarkaðinn verður því ekki slitin frá umræðu um verðbólgu, vexti og efnahagslegan stöðugleika. Á þeim tíu árum frá því almenna íbúðakerfið var sett á fót hefur það sannað sig sem raunhæfur kostur til að tryggja húsnæðisöryggi hjá tekjulágu fólki og um leið auka framboð á því húsnæði sem vöntun er á sem stuðlar þannig jafnframt að stöðugleika á húsnæðismarkaði. Sveitarfélög leika lykilhlutverk í skipulagi og framboði lóða og geta þannig stutt við kröftuga uppbyggingu og stuðlað að bættum húsnæðismarkaði, stöðugu verðlagi og húsnæðisöryggi fyrir alla. Róbert Farestveit, hagfræðingur hjá ASÍJana Eir Víglundsdóttir, hagfræðingur hjá BSRB Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Stéttarfélög ASÍ Mest lesið Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson Skoðun Nemendur okkar eiga meira skilið en tölu Fiona Oliver,Yrsa Rós Brynjudóttir Skoðun „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon Skoðun Segjum JÁ til að styrkja frelsi okkar og fullveldi Þorkell Helgason Skoðun Skoðun Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Skoðun Af hverju eru íslenskir sprotar skráðir í Delaware? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Járn í járn Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Krónan er ventillinn sem heldur aftur af íslensku atvinnulífi Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun ESB margfaldar áhrif smáríkja: Dæmi frá Kýpur Dominic Scott skrifar Skoðun Segjum JÁ til að styrkja frelsi okkar og fullveldi Þorkell Helgason skrifar Skoðun Nemendur okkar eiga meira skilið en tölu Fiona Oliver,Yrsa Rós Brynjudóttir skrifar Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar þegar borgin sparar? Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Fjölbreyttar þarfir kalla á fjölbreytta fagþekkingu Ulrike Schubert skrifar Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Grand Fenwick við Faxaflóa Júlíus Valsson skrifar Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Níu atriði til umhugsunar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Ríkisstjórn sem vandar sig ekki veldur skaða Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Á eigin skinni Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Nú á þjóðin leik – já til að sjá 29. ágúst Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Loksins sameinuð! Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Næsta stafræna gjá Íslands er þegar að myndast Stefán Atli Rúnarsson skrifar Sjá meira
Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar
Skoðun Krónan er ventillinn sem heldur aftur af íslensku atvinnulífi Óðinn Freyr Baldursson skrifar
Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir skrifar
Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun