Áfram og upp Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar 14. maí 2026 14:01 Sterk fylgni er á milli þess hvernig fólk upplifir nærsamfélagið sitt og hvernig það kýs. Rannsóknir sýna að þau sem telja hverfið sitt vera í niðurníðslu, þjónustuna vera að versna og öryggi að minnka, líður eins og kerfið hafi brugðist þeim. Þetta á við um allt. Um biðlista á leikskólum. Um húsnæði sem er myglað og ekki lagfært. Um samgöngur sem virka ekki. Tilfinningin er að það sé enginn að hlusta. Og þannig verður til sterkur hvati til að kjósa þau sem segjast ætla að brjóta allt niður, þau sem eru nógu stóryrt í sínum yfirlýsingum og helst sjokkerandi líka, í þeirri veiku von að þetta sama fólk geti búið til eitthvað sem virkar betur. Sveitarstjórnarstigið gegnir lykilhlutverki í því að snúa þessari upplifun við. Þar finnur fólk fljótt hvort samfélagssáttmálinn haldi. Við lifum einstaka tíma. Stórar samfélagslegar breytingar munu eiga sér stað á allra næstu árum með aukinni innreið gervigreindar, samhliða hröðum breytingum sem eru að verða á valdakerfum heimsins. Þetta tvennt skapar enn frekari þrýsting á samfélagssáttmálann og þá lýðræðislegu inniviði sem eru grunnforsenda þeirrar velsældar sem við búum við. Viðbragð okkar við þessum veruleika verður að vera enn ríkari krafa á að hafa grunninn í lagi, til þess að geta haldið áfram að byggja upp, hugsað stórt og sótt fram. Grunnurinn í lagi Viðreisn býður í fyrsta sinn fram undir eigin nafni á tíu stöðum um landið og tveimur til viðbótar í samfloti við aðra. Það er mikið afrek sem ég er stolt af, og því höfum við einsett okkur að hlusta vel á það sem fólk kallar eftir á hverjum stað. „Hvað liggur þér á hjarta?“ er sú spurning sem við berum upp og svörin eru skýr. Fólk vill að innviðirnir séu í lagi og grunnþjónustan sé góð. Grunnurinn þarf að vera í lagi. Sveitarstjórnarkosningarnar sem nú ganga í garð snúast fyrst og fremst um okkar daglega líf - grunninn. Leik- og grunnskólana sem börnin okkar eru í. Íþróttafélögin sem halda utan um ungmennin okkar. Göturnar sem við keyrum um. Hjúkrunarrýmin sem foreldrar okkar bíða eftir. Menningarlífið sem gefur samfélögunum okkar lit. Strætóinn sem kemur (nú eða kemur ekki). Og hvort fólk upplifir yfir höfuð að það sé framtíð fyrir sig og sína í bænum eða borginni sem það býr í. Fólk á að hafa val Fyrir austan og vestan kallar fólk eftir betri vegasamgöngum svo það geti örugglega ferðast á milli staða, ekki síst á veturna. Á báðum stöðum hafa innviðirnir verið vanræktir árum saman og skuldin eftir því. Einmitt þess vegna hefur ríkisstjórnin einsett sér að bregðast skjótt við, sem hefur raunar verið gert með vegaframkvæmdum víða, en betur má ef duga skal. Og mikilvægt að stjórnvöld vinni í þéttu samstarfi við sveitarstjórnirnar. Ekki síður er ákall eftir aukinni sérfræðiþekkingu í dreifðari byggðum svo skólarnir, hjúkrunarheimilin, geðheilbrigðisþjónustan og heilsugæslurnar geti sinnt fólki. Fyrir austan heyrði ég til að mynda af fimm lausum hjúkrunarrýmum sem ekki er hægt að nýta vegna skorts á starfsfólki. Fólk er alls konar. Sumir vilja búa þétt og aðrir vilja meira pláss. Fólk á að hafa val og geta skapað sér gott og innihaldsríkt líf um allt land. Samstarf ríkis og sveitarstjórna er lykillinn að því að búa til umhverfi og umgjörð sem styður við að fólk hafi raunverulegt val. Snúum þessu við Hér á höfuðborgarsvæðinu eru áskoranirnar fjölmargar, en fyrst og fremst þarf rekstur borgarinnar að vera í lagi svo hægt sé að standa undir grunnþjónustunni. Þannig hefur það ekki verið og því verður að snúa við. Frambjóðendur Viðreisnar í borginni hafa víða sést á hvolfi undanfarna daga, en það er einmitt til að vekja athygli á nákvæmlega þessu. Þegar reksturinn er á hvolfi munu innviðirnir aldrei standa undir sér. Þá eykst vantraust og tilfinning um að enginn sé að hlusta. Ég heyri það á samtölum mínum við fólk að það er orðið þreytt á upphrópunum og skotgröfum. En ekki síður á loforðum sem virðast ítrekað svikin. Fyrir allar kosningar á að leysa leikskólavandann, loka innviðaskuldinni, bæta samgöngurnar og tryggja framúrskarandi velferðarþjónustu fyrir öll. En samt eykst vandinn og kerfið heldur áfram að þenjast út. Þess vegna kallar fólk eftir því að stjórnmálafólk hlusti, forgangsraði og segi satt. Það er nefnilega ekki hægt að gera allt í einu. Það þarf að fara vel með sameiginlega fjármuni svo hægt sé að byggja upp góða þjónustu til lengri tíma. Ekki bara fram að næstu kosningum. Og það krefst stundum erfiðra ákvarðana og þolinmæði til lengri tíma. En án langtímahugsunar komumst við ekki langt. Kjósum ábyrgan rekstur Á laugardaginn veljum við fólk til að móta okkar nánasta umhverfi á umbreytingatímum. Við þurfum fólk sem vill byggja upp, ekki brjóta niður. Byggja upp samfélög þar sem grunnurinn er traustur. Þar sem fólk upplifir að hlustað sé á það. Og þar sem mannréttindi, jafnrétti og virðing fyrir ólíku fólki eru sjálfsagður hluti af samfélaginu sem við viljum tilheyra. Í þessum kosningum þarf að komast til valda fólk sem hefur kjark til að taka ákvarðanir. Fólk sem þorir að hugsa lengra en eitt kjörtímabil í senn. Og fólk sem skilur að góður og ábyrgur rekstur er grundvöllur góðrar þjónustu. Þar treysti ég frambjóðendum Viðreisnar um land allt til að ná alvöru árangri. Ég hvet landsmenn alla til að nýta kosningarétt sinn. Hann er það mikilvægasta sem við eigum í lýðræðissamfélagi. Og ég hvet fólk að sjálfsögðu til að setja X við C og kjósa Viðreisn. Fyrir samfélögin okkar. Áfram og upp! Höfundur er formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Mest lesið Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar