Úr vörn í sókn: Reksturinn aldrei sterkari í Hveragerði Lárus Jónsson, Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir og Jónas Guðnason skrifa 14. maí 2026 20:32 Sterkari fjárhagsstaða nú en áður forsenda gæðaríkrar uppbyggingar Í upphafi kjörtímabils var ákveðið að horfa af metnaði til framtíðar í uppbyggingu gæðaríkra innviða með það að markmiði að veita íbúum framúrskarandi þjónustu. Árangur þrotlausrar vinnu, samtals, samvinnu og lausnamiðaðrar nálgunar síðustu ára birtist Hvergerðingum í dag með ýmsum hætti. Lausnamiðuð nálgun í fjármálum sveitarfélagsins og uppbygging stöðugleika í rekstri Í Hveragerði eru yfirstandandi umfangsmestu framkvæmdir við innviðauppbyggingu í sögu bæjarins. Fjárfestingar kjörtímabilsins nema um 5 milljörðum. Skiljanlega spyrja íbúar sig hvernig á því standi að nú sé þessi uppbygging möguleg, þegar áður var máluð sú mynd að hún væri það alls ekki. Þessi árangur verður ekki til af sjálfu sér. Til að gera þessar fjárfestingar mögulegar hefur statt og stöðugt verið unnið að því að fjölga tekjustofnum bæjarins með ýmsum leiðum. Þar má t.d. nefna veigamikil uppbyggingarverkefni í atvinnu- og byggðaþróun eins og Árhólmaverkefnið uppi í Dal sem skilar bænum um milljarði í beinum fjárframlögum og afsali eigna. Verkefnið felur í sér fjárfestingu uppbyggingaraðila upp á um 10 milljarða og skapar um 200 ný störf. Frekari samningar um uppbyggingarreiti munu með sama hætti skila bæjarfélaginu hundruðum milljóna í tekjur, strax á yfirstandandi ári, ásamt því að um 730 milljónir munu koma inn í tekjur við úthlutun lóða á næstu misserum á grundvelli gatnagerðaframkvæmda síðustu ára. Rekstur og fjárhagsleg staða bæjarins hefur raunar aldrei verið betri. Á kjörtímabilinu hefur eigið fé bæjarins aukist um 97%. Þá hafa eignir bæjarins aukist um 86% á tímabilinu, úr 6,1 milljarði 2021 yfir í 11,4 milljarða 2025. Uppsafnaður rekstrarhagnaður síðustu 3 ára nemur hundruðum milljóna, sem í viðmiði fyrir jafnvægi í rekstri sveitarfélaga á að vera réttu megin við núllið. Í þessu hefur orðið viðsnúningur sem nemur um milljarði frá síðasta kjörtímabili: Hveragerðisbær er í dag í sjálfbærum rekstri og ræður vel við afborganir skuldbindinga sinna með veltufé undanfarandi árs ólíkt því sem áður var, en árið 2021 sýndi veltufjárhlutfall að bærinn átti einungis fyrir 58% skuldbindinga næstu 12 mánaða. Skuldir Hveragerðisbæjar hafa í gegnum tíðina almennt aukist tímabundið við fjárfestingar á vegum bæjarins, eins og kannski við er að búast. Hæst hefur skuldaviðmið numið 152% árið 2012, en þá hófust mælingar með þeim hætti sem nú er. Þrátt fyrir skuldaaukningu upp á 4,4 milljarða á kjörtímabilinu er skuldaviðmið bæjarins vel innan lögbundinna 150% viðmiða og skuldaviðmið bæjarins var árin 2022-2024 vel undir hlutfallinu sem bærinn stóð í áður en þessar framkvæmdir hófust. Fjórðungur skuldaaukningar bæjarfélagsins á kjörtímabilinu, eða um 1,3 milljarðar, er tilkominn vegna verðbólgu og vaxta. Þrátt fyrir slíka áskorun í ytra efnahagsumhverfi þá ræður Hveragerðisbær vel við þessar umfangsmiklu fjárfestingar á þeim trausta grunni sem nú hefur verið byggður upp. Tekju- og rekstrargrundvöllur ásamt eignasafni standa miklum mun betur en áður sem gerir okkur þetta kleift. Með þessum hætti sköpum við tækifærin til uppbyggingar. Í hvað fara peningarnir? Nýtt velferðarsvið hefur verið byggt upp frá grunni, 3. áfangi grunnskólans hefur verið tekinn í notkun og félagslegu leiguhúsnæði hefur verið fjölgað með markvissum hætti. Stoð- og stuðningsþjónusta innan og utan skólakerfisins tekur utan um fjölskyldur, börn og fullorðna einstaklinga með hætti sem þekktist ekki áður í bænum. Ný viðbygging með glæsilegri lóð hefur risið við leikskólann Óskaland, umbætur verið gerðar þar á starfsmannaaðstöðu, biðlistar leikskóla tæmdir og komið til móts við barnafjölskyldur með foreldragreiðslum til að brúa annars bilið frá lokum fæðingarorlofs samhliða 70% lækkun leikskólavistunargjalda. Í bænum er nú að raungerast uppbygging íþróttaaðstöðu til framtíðar sem eining og samstaða er um. Framúrskarandi keppnis- og æfingaaðstaða fyrir knattspyrnu á upphituðum gervigrasvelli í fullri stærð er nú að verða að veruleika og yfirstandandi er bygging nýs íþróttahúss með keppnis- og æfingaaðstöðu fyrir allar innanhúss deildir Hamars. Unnið hefur verið að úrbótum á skólphreinsistöð bæjarins og fengnir styrkir til þess verkefnis bæði frá Evrópusjóðum og ráðuneytum og fagþekking sótt til verkefnisins út fyrir landsteinana. Þar er bæjarfélagið leiðandi á landsvísu, enda hefur slík stöð ekki verið byggð áður hér á landi. Fyrirhuguð verklok eru 2027-2028 og á ný stöð að anna framtíðarbyggð bæjarins næstu 20 árin. Ráðist hefur verið í umfangsmiklar framkvæmdir við gatnagerð nýrra hverfa og stofnbrauta sem m.a. gera tekjuöflun mögulega með úthlutun nýrra lóða. Unnið hefur verið að umbótum á stjórnsýslu bæjarins með markvissum hætti með það að leiðarljósi að skapa hér sjálfbærar, hagkvæmar og öflugar stjórnsýslueiningar með breytingum á skipuriti, bættum verkferlum, aukinni fræðslu starfsmanna, stafrænum umbreytingum og nýrri þjónustustefnu. Höldum ótrauð áfram, fylgjum plani og tryggjum samfellu Bæjarstjórn hefur samhljóða samþykkt fjárfestingaáætlun 2026-2029 þar sem yfirstandandi og framtíðarverkefnum er markaður farvegur og tryggð fjármögnun. Við erum búin að leggja út leiðina til að ná settum markmiðum bæjarins í uppbyggingu og sjáum fram á að skuldahlutfall bæjarins lækki talsvert á komandi kjörtímabili og fari niður í 104% árið 2029. Það er veigamikill þáttur í áframhaldandi uppbyggingu innviða og þjónustu að samfella náist í yfirstandandi verkefnum, að við höldum ótrauð áfram með lausnamiðaða nálgun, tökum saman höndum og leiðum bæinn áfram inn í framtíðina með markið sett hátt fyrir núverandi íbúa og framtíðarkynslóðir. Þessi gildi hafa grundvallað framfaraskref kjörtímabilsins og eiga að mati Okkar Hveragerðis að gera það áfram. Þannig sköpum við tækifærin til uppbyggingar gæðaríks samfélags í Hveragerði til framtíðar. Gerum þetta saman fyrir okkar Hveragerði - blómstrandi samfélag til framtíðar. Höfundar skipa 1. til 3. sæti á lista Okkar Hveragerðis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hveragerði Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells Skoðun Fyrstu fasteignakaup sjaldan verið aðgengilegri Víðir Arnar Kristjánsson Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson Skoðun Forgangsröðun fjár úti í skurði Diljá Matthíasardóttir Skoðun Barnamenning mótar raddir framtíðar Logi Már Einarsson Skoðun Skoðun Skoðun Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Forgangsröðun fjár úti í skurði Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Staða Grindavíkur Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Raunhæf leið til að bæta heilbrigðiseftirlit Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Fyrstu fasteignakaup sjaldan verið aðgengilegri Víðir Arnar Kristjánsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan 2026: Vöxturinn er ekki lengur sjálfgefinn Herborg Svana Hjelm skrifar Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells skrifar Skoðun Tveir öfgamenn ganga inn á bar... Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar Skoðun Börn send fram og til baka Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Þekking sem mótar land, byggð og samfélag Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar barn hættir að treysta fullorðnum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Til hvers var barist og hver situr að aflanum? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver er munurinn á Þorgerði Katrínu og Donald Trump? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Tala og tala en gera ekki neitt Tómas Þór Þórðarson skrifar Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Barnamenning mótar raddir framtíðar Logi Már Einarsson skrifar Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar Skoðun Þegar hegðun er ákall en enginn hlustar Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Alþingi í samstarfi við pólitísk félagasamtök? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Að langa en geta ekki Birna Heiðarsdóttir skrifar Skoðun Misskilningur um samræmingu heilbrigðiseftirlits Pétur Halldórsson skrifar Skoðun Opinn tékki með fullveldið að veði Sigurður Egilsson skrifar Skoðun Gjaldmiðlamálið: íslenski smábáturinn eða stóra skipið sem þolir ólgusjó? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason Skoðun
Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson Skoðun
Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar
Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar
Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar
Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar
Skoðun Gjaldmiðlamálið: íslenski smábáturinn eða stóra skipið sem þolir ólgusjó? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
„Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason Skoðun
Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson Skoðun