Körfubolti

Amandine: Ein­víginu er ekki lokið

Árni Jóhannsson skrifar
Amandine Toi að brenna framhjá Kristu Gló á leiðinni að körfunni.
Amandine Toi að brenna framhjá Kristu Gló á leiðinni að körfunni. Vísir / Hulda Margrét

Amandine Toi fór mikinn í fjórða leik Hauka og Njarðvíkur í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta í kvöld. Hún skoraði 17 stig og síðustu stig leiksins til að tryggja sínum konum áframhald í keppninni á sunnudaginn næsta. Haukar unnu leikinn 77-69.

Amandine var mætt til Andra Más strax eftir leik og var spurð að því hvaða hugarfar var í leikmönnum Hauka til að tryggja sigurinn í kvöld.

„Við vissum að við þurftum að koma og berjast. Við höfum ekki verið að berjast nóg í þessu einvígi og vissum að það myndi þýða að þessu væri lokið.“

Hvað var öðruvísi á milli þessa leiks og fyrstu tveggja?

„Við framkvæmdum áætlunina sem var sett upp í varnarleiknum í 40 mínútur í kvöld. Auðvitað urðum við dálítið þreyttar í lokin en það var munurinn á milli leikjanna.“

Amandine var svo spurð nánar út í varnarleik Hauka sem var frábær í allt kvöld.

„Brittany [Dinkins] er mjög góður leikmaður og hún skoraði 21 stig en við reyndum að hemja hana í kvöld. Það hjálpaði okkur í kvöld. Dani og Paulina eru frábærir leikmenn en við verðum að vera á fullu allan leikinn og reyna að halda Brittany undir 25 eða 30 stigum eins og hún hefur verið að setja á okkur í hinum leikjunum.“

Haukar voru fimm stigum yfir í blálokin þegar Haukar náðu boltanum og Amandine fór í sniðskot til að loka leiknum. Hún var spurð hvort það hafi verið svar við því þegar Brittany Dinkins gerði slíkt hið sama í síðasta leik.

„Nei alls ekki. Ég lofa. Við tókum því ekki persónulega. Hún segir að hún spili 40 mínútur og ég geri það líka. Leiknum er ekki lokið fyrr en að leiknum er lokið. Honum er lokið núna en einvíginu er ekki lokið.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×