Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Samúel Karl Ólason skrifar 16. maí 2026 14:58 Össur er þekktur fyrir að láta í sér heyra á Facebook. Hann virðist áhyggjufullur að Sjálfstæðisflokkurinn komist til valda í borginni. Flokkurinn er á miklu flugi og stefnir í mikinn kosningarsigur. Vísir Fyrrverandi ráðherra og formaður Samfylkingarinnar sakar oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík um rasisma með því að kalla oddvita Vinstrisins „súkkulaðikleinu“. Mörgum þykja þessar ásakanir innihaldslausar enda sé orðræða um súkkulaðikleinur gömul á Íslandi og eigi ekkert skylt við kynþátt.
Össur Skarphéðinsson, sem er einn stofnenda og fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, segir í færslu á Facebook að Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, eigi ekki erindi í stól borgarstjóra Reykjavíkur. Byggir hann það á því að Hildur hafi kallað Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, oddvita Vinstrisins, „súkkulaðikleinu“ í viðtali. Sumum þykir Össur teygja sig heldur langt í ásökunum og segja skammarlegt að saka fólk sem maður sé ósammála í pólitík um rasisma að ósekju. Orð Össurar, hafa hleypt af stað miklum deilum um hugtakið súkkulaðikleinu og rasisma og keppast þjóðþekktir Íslendingar og stjórnmálafólk við að leggja orð í belg á Facebook-síðu hans. Fái að vera súkkulaðikleina í umræðunni Það var í hlaðvarpinu Þjóðmálum sem Hildur lét þau orð falla að vinstri flokkar væru að lofa fólki öllu fögru og leggja fram áætlanir sem ómögulegt væri fyrir þá að standa við. „Einmitt bara Sanna, sem einhvern veginn fær oft að vera algjör súkkulaðikleina í umræðunni, sem boðar hérna stórkostlega uppbyggingu á félagslegu húsnæði með aukinni skuldsetningu Félagsbústaða og ber það saman við einhver fasteignafélög á markaði og ætlar að ljúga því að fólki að það verði einhver hagstæð leiga. Þetta er bara della,“ sagði Hildur. Ummælin úr Þjóðmálum má sjá hér að neðan. Þessi ummæli virðast hafa farið fyrir brjóstið á Össuri sem stakk niður penna. „Ég er kannski viðkvæmari fyrir því en aðrir þegar konur með brúna húð eru uppnefndar „súkkulaðikleinur“. Mér fannst þetta að minnsta kosti síðasta sort hjá Hildi og leyfi mér að efast stórlega um að hún eigi erindi í stól borgarstjóra. I rest my case,“ skrifaði hann á Facebook. Gamalt orðalag um börn í leik Þegar kemur að hugtakinu súkkulaðikleina hefur það lengi verið notað af Íslendingum í samhengi við börn við leik. Súkkulaðikleinur séu börn sem njóti ákveðinnar verndar í leiknum og taki ekki ábyrgð. Í gegnum árin hafa orðin súkkulaði og kleina einnig verið notuð um þetta sama hugtak, en það virðist hafa verið breytilegt eftir árum og bæjarfélögum. Hugtakið hefur þar að auki ekki eingöngu átt við börn. Fullorðið fólk er oft einnig kallað súkkulaðikleina. Meðal annars má vísa til umræðu um þetta hugtak í Facebook-hópnum Skemmtileg íslensk orð frá desember 2022. Þar var hugtakið einnig til umræðu árið 2020 og kom þá fram að orðalagið væri mjög breytilegt eftir aldri fólks og hvaðan það kæmi. Samhengið skipti máli Margir taka undir gagnrýni Össurar, þá frekar fólk á vinstri væng í pólitík, á meðan Sjálfstæðismenn og fleiri koma Hildi til varnar. Meðal þeirra sem taka undir gagnrýnina er Illugi Jökulsson fjölmiðlamaður, sem segist hissa á að Hildur sé ekki spurð út í þessi ummæli. Hann segir að Sigmundi Davíð eða Snorra Mássyni yrði ekki hlíft við svona ummælum. Eiríkur Rögnvaldsson prófessor emeritus í íslensku tekur einnig undir gagnrýni Össurar. Hann segir samhengið skipta máli. Þegar orðið „súkkulaðikleina“ sé notað um konu með dökkan hörundslit sé ekki hægt að túlka það öðruvísi en það vísi til húðlitar. Öðrum þykir Össur teygja sig langt í gagnrýninni. Í einum ummælum er vísað til þess að Hildur hafi kallað Einar Þorsteinsson, oddvita Framsóknarflokksins, súkkulaðikleinu í kappræðum Sýnar, hið rétta er að það var í kappræðum MBL. Sú sem bendir á það segir að Hildur einhvern tímann hafa kallað sig súkkulaðikleinu. Páll Magnússon, fyrrverandi alþingismaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi útvarpsstjóri, segir að í samhenginu sem Hildur hafi látið þessi orð falla þýði súkkulaðikleina að vera „stikkfrí“ og að vera hlíft umfram aðra. Þetta sé alþekkt hugtak og hafi ekkert með húðlit að gera. „Það er skammarlegt að hefja rasistastimpilinn á loft að ófyrirsynju þótt maður sé ósammála einhverjum í pólitík,“ segir Páll. Illugi svarar Páli á þá leið að oft hafi verið talað um Katrínu Jakobsdóttur, fyrrverandi forsætisráðherra, sem gluggaskraut manna. Það hafi honum alltaf þótt skammarlega að orði komast. „Mér finnst líka skammarlegt að saka starfandi stjórnmálamann, sem hefur sannarlega staðið í ströngu, um að vera „stikkfrí“. Það er Hildi reyndar ekki til sóma.“ Rúnar Freyr Gíslason, frambjóðandi á lista Sjálfstæðismanna í Reykjavík lætur einnig að sér kveða í umræðunni við færslu Össurar og segir að hann hljóti að vita betur. Hann vísar einnig til gamallar notkunnar hugtaksins og bendir á að Hildur hafi einnig kallað Einar súkkulaðikleinu. „Þetta er ömurlegt hjá þér Össur, ég trúi varla að þú sért að halda þessu fram. Það trúir enginn því að Hildur sé rasisti, ekki nokkur maður. Úff.“ Inga Auðbjörg Straumland, fyrrverandi formaður Siðmenntar, svarar Rúnari um hæl. „Við vitum öll að súkkulaðikleina merkir stikkfrí. Ekki láta eins og við séum bara illa að okkur í barnaleikjum. Vandamálið er að átta sig ekki á því að félagslegt samhengi skiptir máli þegar þú velur orðin þín. Ég get kallað barnið mitt apakött þegar hann er að klifra í trjánum, en það er ekki í lagi að kalla brúnan bekkjarbróður hans það. Þetta er mér ljóst og mörgum fleirum,“ segir Inga. Öllum geti orðið á að nota orð sem hæfi ekki samhenginu. Það sé tilfellið hjá Hildi. „En í stað þess að biðjast afsökunar, fordæma eigin orð og útskýra merkinguna, en jafnframt viðurkenna að orðin hafi verið vitlaust valin, þá mætir fólkið hennar í kommentakerfið og bakkar orðin upp; snýr út úr og gerir lítið úr atvikinu.“ Orðin séu ekki vandamálið heldur viðbrögðin. Vísaði einnig í deilur innan Sjálfstæðisflokksins Þetta er ekki eina færslan sem Össur hefur skrifað um Hildi á dögunum og greinilegt að flokkur hennar er honum ofarlega í huga. Kosningaspá Vísis spáir Sjálfstæðisflokknum átta borgarfulltrúum á meðan Samfylkingunni hefur fatast flugið og mælist nú með fimm. Össur skrifaði aðra færslu um Hildi á Facebook í gær eftir kappræðurnar á Rúv. Sú færsla fjallaði um það að miklar deilur hafa átt sér stað innan borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins undir stjórn hennar þar sem borgarfulltrúar hefðu verði ósammála og sumir yfirgefið flokkinn.Velti hann vöngum yfir því hvort flokkur sem gæti ekki stjórnað sjálfum sér gæti stjórnað borginni. Bolli Thoroddsen , sem er innanbúðarmaður í Sjálfstæðisflokknum, er meðal þeirra sem hefur svarað færslu Össurar frá því í gær. Rifjar hann upp feril Hildar í stjórnmálum, vinnu og félagsmálum og vísar til þess að undir stjórn hennar hafi fylgi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík aukist til muna. Bolli segir sína heitustu ósk vera meirihluta myndaðan af Sjálfstæðisflokknum, Framsókn og svo Miðflokknum og/eða Viðreisn. „Vil ég nota tækifærið að hvetja Viðreisn til að endurskoða afstöðu sína og útiloka ekki samstarf við Miðflokkinn. Ég hef starfað með Ara Edwald sem er framsýnn og öflugur rekstrarmaður. Þó ég, líkt og margir, telji að Samfylkingin þurfi langt og gott frí í borginni þá vil ég heldur ekki að Hildur útiloki slíkt tveggja flokka samstarf. Öfugt við ýmsa leiðtoga hefur hún einmitt ekki gert það. Sem kemur aftur að mínum útgangspunkti hér, þ.e. hversu víðsýnn og skynsamur leiðtogi Hildur Björnsdóttir er.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Sjálfstæðisflokkurinn Vinstrið Kynþáttafordómar Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Innlent Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Innlent „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Innlent Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Sjá meira