Guardiola hætti með Manchester City eftir tímabilið Aron Guðmundsson skrifar 18. maí 2026 20:15 Guardiola með enska bikarinn eftir sigur gegn Chelsea um síðastliðna helgi Vísir/Getty Breski miðillinn Daily Mail heldur því fullum fetum fram í kvöld að Pep Guardiola muni yfirgefa Manchester City eftir yfirstandandi tímabil. Styrktaraðilum Manchester City hafi verið greint frá fyrirætlunum Spánverjans.
Um aðalfrétt Daily Mail er að ræða í kvöld þar sem segir að greint verði frá því á sunnudaginn eftir síðasta leik Manchester City á tímabilinu að Guardiola muni láta af störfum. Styrktaraðilar félagsins hafi verið upplýstir um ákvörðun Guardiola sökum viðskiptalegra ástæðna en Spánverjinn heufr verið knattspyrnustjóri Manchester City síðan árið 2016. Manchester City tryggði sér enska bikarmeistaratitilinn í fótbolta um síðastliðna helgi og á enn möguleika á Englandsmeistaratitlinum með tvo leiki eftir af tímabilinu. Guardiola hafði fyrir komuna til Manchester City gert frábæra hluti með lið Bayern Munchen og Barcelona. Hjá Manchester City hefur hann unnið allt sem hægt er að vinna. Sex sinnum ensku úrvalsdeildina, þrisvar sinnum enska bikarinn og einu sinni Meistaradeild Evrópu og listi afrekanna ekki tæmandi. Tíminn verður að leiða það í ljós hvort að heimildir Daily Mail standist en eftir að frétt miðilsins birtist í kvöld hafa fleiri breskir miðlar, þar á meðal BBC og The Athletic, tekið í sama streng. Talið er að aðeins einn þjálfari sé á óskalista Manchester City sem arftaki Guardiola. Það er fyrrverandi knattspyrnustjóri Chelsea, Enzo Maresca.
Manchester City Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Íslenski boltinn Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Fleiri fréttir Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Sjá meira