27 milljónir á mann (14.500 milljarðar) Tryggvi Hjaltason skrifar 19. maí 2026 15:02 Árangur barna í grunnskóla ræður miklu um þau tækifæri sem þau fá síðar á lífsleiðinni. PISA er alþjóðleg mæling á færni 15 ára nemenda sem er notuð til samanburðar á skólakerfum. Prófið metur hvort börn við lok skólaskyldu hafi öðlast þá þekkingu og færni sem þau þurfa til að taka virkan þátt í samfélaginu og takast á við ný verkefni og aðstæður. Því er það alvarlegt mál fyrir framtíð landsins að íslensk börn hafa tapað verulegri grunnhæfni á rúmum áratug. Þetta er ekki aðeins skólamál, heldur lífskjaramál. Þegar heil kynslóð stendur veikar að vígi hefur það áhrif á framleiðni, tekjur og getu samfélagsins til að standa undir góðum lífskjörum og öflugu velferðarkerfi. Nýleg úttekt Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) á Íslandi rennir stoðum undir þetta. Þar er metið að lækkun á meðalárangri íslenskra barna í PISA geti dregið úr heildarframleiðni landsins um rúmlega 5% til lengri tíma. Andvari farsældarhraðall hefur kafað dýpra ofan í íslensku gögnin. Að vinna upp PISA-fallið frá 2012 gæti skilað um 27 milljónum króna á mann í aukinni landsframleiðslu yfir starfsævi þeirra sem útskrifast úr grunnskóla á Íslandi. Það samsvarar um 5,4% af landsframleiðslu á mann yfir tímabilið sem greiningin nær til. Hvað hefur gerst? Fallið frá 2012 Frá árinu 2012 hafa PISA-stig íslenskra nemenda lækkað verulega í öllum þremur greinum sem prófið mælir: stærðfræði, lesskilningi og náttúrufræði. Fallið er mest í lesskilningi, þar sem Ísland hefur lækkað um 47 stig. Í stærðfræði hefur lækkunin verið 34 stig og í náttúrufræði 31 stig. Gjarnan er horft til þessara greina þegar rætt er um „grunnhæfni” nemenda. Þetta eru ekki smávægilegar sveiflur milli mælinga, heldur veruleg lækkun á áratug, en síðasta mæling var 2022. Til að setja stærðargráðuna í samhengi notar OECD um 20 PISA-stig sem gróft viðmið um meðal framfarir 15 ára nemenda yfir eitt skólaár. Það er ekki nákvæm umbreyting yfir í skólaár, en hjálpar til við að skilja hvað fall upp á 31–47 stig þýðir. Við höfum tapað verulegri grunnhæfni í öllum lykilgreinum PISA, sem nemur nærri tveimur töpuðum árum á nemenda. Hvernig stöndum við í samanburði við OECD og Norðurlönd? Mynd 1 sýnir hvernig Ísland hefur færst frá eigin fyrri stöðu síðan 2012. Mynd 2 sýnir hins vegar hvar við stöndum núna miðað við Norðurlönd og önnur OECD ríki. Ísland stendur framarlega í alþjóðlegum samanburði í lífskjörum, tekjum, heilsu og velferð. Þess vegna er sláandi að í PISA erum við nú talsvert undir meðaltali OECD í öllum þremur greinum. Í stærðfræði vantar 13 stig upp á OECD-meðaltalið, en bilið er mun stærra í lesskilningi og náttúrufræði, þar sem 40 og 38 stig vantar upp á. Bilið við hin Norðurlöndin er enn stærra. Þar vantar Ísland 22 stig í stærðfræði, 50 stig í lesskilningi og 47 stig í náttúrufræði. Sérstaklega blasir við að lesskilningur og náttúrufræði eru veikustu greinarnar í samanburðinum. Af hverju skiptir þetta máli? Frá grunnhæfni til lífskjara Grunnhæfni barna í dag hefur áhrif á getu þeirra til að fóta sig í frekara námi, störfum og samfélagi síðar á lífsleiðinni. Börn sem standa verr að vígi í lestri, stærðfræði og náttúrufræði eru að jafnaði verr undirbúin fyrir ný verkefni, tæknibreytingar og þátttöku á vinnumarkaði. Þegar þetta gerist hjá heilum árgöngum verða áhrifin ekki aðeins persónuleg. Þau verða samfélagsleg. Veikari grunnhæfni getur með tímanum dregið úr framleiðni, tekjum, nýsköpun og skattstofnum. Þar með veikist líka geta samfélagsins til að standa undir góðum lífskjörum og öflugu velferðarkerfi. Greining okkar byggir á alþjóðlegum rannsóknum sem tengja grunnhæfni nemenda við framleiðni og hagvöxt til lengri tíma. Nánari gögn, forsendur og útreikningar eru birt í greiningunni á vef Andvara. Við metum hvað það gæti þýtt ef Ísland ynni aftur upp PISA-lækkunina frá 2012. Niðurstaðan er að slíkur viðsnúningur gæti skilað um 27 milljónum króna á mann í aukinni landsframleiðslu yfir starfsævina. Miðað við mannfjöldaspá Hagstofunnar yfir tímabilið jafngildir það um 14.500 milljörðum króna fyrir þjóðarbúið í heild. Ef þeirri stærð er jafnað út yfir 60 ár samsvarar hún um 242 milljörðum króna á ári. Í raun kemur ábatinn þó ekki jafnt fram ár frá ári, heldur byggist hann upp smám saman yfir langt tímabil. Til að setja stærðargráðuna í samhengi voru útgjöld hins opinbera til menntamála í heildina alls um 298 milljarðar króna árið 2024 og heildaráætlun um byggingu nýs Landspítala er um 211 milljarðar króna. Þetta langtímamat nær aðeins til þess hluta ábatans sem birtist í meiri landsframleiðslu á mann, ekki alls samfélagslegs ávinnings af betri grunnhæfni. Betri grunnhæfni getur líka skipt máli fyrir sjálfstraust barna, námsframvindu, þörf fyrir stuðning og þátttöku í samfélaginu. Stærðargráðan sýnir því hversu mikið er í húfi. PISA-fallið er ekki bara mæling á skólastarfi. Það er framtíðarreikningur sem lendir á börnunum okkar ef við snúum þróuninni ekki við. Ekki bara meiri peningar, heldur betri árangur Viðbrögð við stöðunni mega ekki bara vera að verja þarf meiri fjármunum til skólamála. Ísland ver nú þegar miklu til menntamála í alþjóðlegum samanburði, þó víða megi gera betur. Frá árinu 2012 hefur rekstrarkostnaður á hvern grunnskólanemanda hækkað verulega, á meðan PISA-niðurstöður hafa versnað. Það bendir til þess að vandinn snúist ekki aðeins um fjárhæðir, heldur um hvernig fjármunirnir nýtast. Þetta er því ekki fyrst og fremst spurning um hvort við viljum fjárfesta í börnum. Það viljum við auðvitað gera. Hvort um fjárfestingu eða útgjöld er að ræða ræðst af því hvernig við tryggjum að fjárfesting í börnum skili raunverulegum árangri. Ef við sem þjóð ætlum að snúa þróuninni við þurfum við skýrari markmið, betri gögn, markvissari inngrip og meiri aga í eftirfylgni. Við þurfum að vita fyrr hvar börn eru að dragast aftur úr, bregðast hraðar við og læra kerfisbundið hvað virkar. Betri grunnhæfni verður ekki til með almennum vilja einum saman. Hún verður til með skýrri forgangsröðun, mælanlegum markmiðum og vinnubrögðum sem setja árangur barna í fyrsta sæti. Vísbendingar eru uppi um að vaxandi fjöldi barna á Íslandi glími við málþroska- og tungumálavanda. Fjöldi erlendra og innlendra rannsókna hefur komist að þeirri niðurstöðu að ein besta fjárfesting sem hægt er að gera í skólagöngu barns er að tryggja því kröftugar undirstöður tungumálsins snemma, því ella standa framför, vellíðan og árangur á brauðfótum. Hversu vel grípum við börn í þessari grundvallaráskorun? Fjöldi fræðimanna hefur bent á undanfarin misseri að þar sé brotalöm á. Þúsundir barna eru á biðlistum vegna málörðugleika, kennarar kvarta undan skertum málskilningi nemenda á öllum skólastigum og flaggað hefur verið skorti á viðeigandi lesefni svo eitthvað sé nefnt. Skilvirkt kerfi mælir getu, fylgir tímanlega eftir með viðeigandi stuðning og endurmælir. Sveitarfélög, skólar og kennarar þurfa stuðning hér. Við eigum ekki að sætta okkur við þetta Íslensk börn hafa tapað verulegri grunnhæfni frá 2012. Það er ekki aðeins skólamál, heldur lífskjaramál. Ef við vinnum tapið ekki til baka verður framtíðargeta þjóðarinnar til að standa undir góðum lífskjörum og öflugu samfélagi veikari. Góðu fréttirnar eru að þetta er ekki óumflýjanleg þróun. Ísland hefur áður náð betri árangri og getur gert það aftur. En þá þurfum við að hætta að líta á PISA-fallið sem óþægilega frétt sem birtist á nokkurra ára fresti. Við þurfum að líta á það sem skýra viðvörun um að grunnstoðir framtíðarlífskjara séu að veikjast. Við eigum ekki að sætta okkur við þessar niðurstöður. Við eigum að snúa þeim við. Fjárfestum skilvirkt í framtíð barna okkar. Tryggvi Hjaltason, framkvæmdastjóri Andvara. Andvari er farsældarhraðall sem hefur það markmið að auka velferð og farsæld Íslands til framtíðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Tryggvi Hjaltason Mest lesið Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun Hvað sér unga fólkið sem ég sé ekki? Gunnar Salvarsson Skoðun Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. Skoðun Hlutdrægni RÚV í ESB umræðunni Birgir Finnsson Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Það borgar sig að skoða kostina Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Hvað sér unga fólkið sem ég sé ekki? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Hlutdrægni RÚV í ESB umræðunni Birgir Finnsson skrifar Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. skrifar Skoðun Það er alltaf til byssa. Vertu blómið! Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir skrifar Skoðun Tennur og tryggingar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti skrifar Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug skrifar Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Verum góð við hvort annað Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Umburðarlyndið sem geltir Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Vönduð hönnun er ábyrg uppbygging Björg Torfadóttir skrifar Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson skrifar Skoðun Aukin gjaldtaka vinnur gegn dreifingu ferðamanna Sara Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Svíkjum ekki gerða samninga Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Danir ætla að verja Grænland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Já eða nei? Kosningar 29. ágúst 2026 Grétar H. Óskarsson skrifar Skoðun Þegar innviðaskuldin gjaldfellir samfélagssáttmálann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Ekki sjá eftir atkvæðinu þínu! Arnar Steinn Þórarinsson skrifar Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar Sjá meira
Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun
Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar
Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar
Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun