Nú er tækifærið - vinnum saman að betri grunnskóla Hólmfríður Arna Þórisdóttir skrifar 19. maí 2026 16:03 Að afloknum sveitarstjórnarkosningum er ástæða til að óska öllu nýkjörnu sveitarstjórnarfólki til hamingju með árangurinn og sitt nýja hlutverk sem fylgir mikil ábyrgð. Hún er meðal annars sú að stýra málefnum grunnskóla í sinni heimabyggð, mikilvægt hlutverk sem þarf að taka af alvöru. Nú, þegar ferskir vindar blása um sveitarstjórnir landsins, er tækifæri til endurmats og endurskoðunar á grunnskólum landsins og veita þeim hlutverk í nýjum málefnasamningum sveitarstjórna. Umræða um grunnskóla var ekki fyrirferðarmikil í nýliðnum kosningum. Grunnskólinn er þó stærsta verkefni sveitarfélaganna og að margra mati það mikilvægasta. Málaflokkurinn snertir flest öll heimili á einhvern hátt og hvers vegna er umræðan þá ekki meiri? Ekki bara rétt fyrir kosningar heldur almennt. Málefni grunnskóla rata helst í fjölmiðla þegar fréttir koma af slælegri frammistöðu nemenda í prófum eða erfið mál koma upp í skólasamfélaginu og oft á tíðum er umræðan grunn og einkennist af upphrópunum. Víða í löndunum í kringum okkur sem við viljum bera okkur saman við er umræða um menntun síkvik, fagleg og lifandi. Það er tímabært að ræða um skólakerfið á uppbyggilegan og lausnamiðaðan hátt . Þá er ítrekað nefnt að skólakerfið sé dýrt í rekstri en árangurinn fari ekki eftir krónunum sem fara í reksturinn. Sjálfsagt eru margar skýringar á kostnaðinum við að reka grunnskólana og ein þeirra er fámenni í skólum víða um land þar sem kostnaður per nemanda er hár. Svo má spyrja spurninga eins og hvað er árangur? Er árangur eingöngu einkunnir á blaði? Eða er það eitthvað annað sem erfiðara er að mæla svo sem líðan og þroski nemandanna? Grunnskólinn er ekki eyland,. Að honum koma fjölmargir aðilar, starfsfólk, nemendur, sérfræðingar og auðvitað nemendurnir sjálfir og þeirra bakland. Grunnskólinn er samfélagslegt verkefni sem allir hagaðilar þurfa að vinna saman að. Í grunnskólanum sækja nemendur sér menntun en þótt menntunarþátturinn sé mikilvægur þá eru aðrir hlutir sem skipta einnig miklu máli. Nefna má félagsmótun, læra að taka tillit til annara nemenda, sýna umburðarlyndi og þroskast fyrir framtíðina. Skólinn er samfélag sem hefur tekið miklum breytingum síðustu ár á miklum hraða og stjórnvöld þurfa að vera tilbúin að taka undir með skólunum og styðja þá á allan hugsanlegan hátt. Þar er hlutverk sveitarstjórna gríðarlega stórt. Tökum höndum saman sem samfélag og sameinumst um mikilvægi grunnskólans, nemendur eiga það skilið. Höfundur er kennari í Skarðshlíðarskóla í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Að afloknum sveitarstjórnarkosningum er ástæða til að óska öllu nýkjörnu sveitarstjórnarfólki til hamingju með árangurinn og sitt nýja hlutverk sem fylgir mikil ábyrgð. Hún er meðal annars sú að stýra málefnum grunnskóla í sinni heimabyggð, mikilvægt hlutverk sem þarf að taka af alvöru. Nú, þegar ferskir vindar blása um sveitarstjórnir landsins, er tækifæri til endurmats og endurskoðunar á grunnskólum landsins og veita þeim hlutverk í nýjum málefnasamningum sveitarstjórna. Umræða um grunnskóla var ekki fyrirferðarmikil í nýliðnum kosningum. Grunnskólinn er þó stærsta verkefni sveitarfélaganna og að margra mati það mikilvægasta. Málaflokkurinn snertir flest öll heimili á einhvern hátt og hvers vegna er umræðan þá ekki meiri? Ekki bara rétt fyrir kosningar heldur almennt. Málefni grunnskóla rata helst í fjölmiðla þegar fréttir koma af slælegri frammistöðu nemenda í prófum eða erfið mál koma upp í skólasamfélaginu og oft á tíðum er umræðan grunn og einkennist af upphrópunum. Víða í löndunum í kringum okkur sem við viljum bera okkur saman við er umræða um menntun síkvik, fagleg og lifandi. Það er tímabært að ræða um skólakerfið á uppbyggilegan og lausnamiðaðan hátt . Þá er ítrekað nefnt að skólakerfið sé dýrt í rekstri en árangurinn fari ekki eftir krónunum sem fara í reksturinn. Sjálfsagt eru margar skýringar á kostnaðinum við að reka grunnskólana og ein þeirra er fámenni í skólum víða um land þar sem kostnaður per nemanda er hár. Svo má spyrja spurninga eins og hvað er árangur? Er árangur eingöngu einkunnir á blaði? Eða er það eitthvað annað sem erfiðara er að mæla svo sem líðan og þroski nemandanna? Grunnskólinn er ekki eyland,. Að honum koma fjölmargir aðilar, starfsfólk, nemendur, sérfræðingar og auðvitað nemendurnir sjálfir og þeirra bakland. Grunnskólinn er samfélagslegt verkefni sem allir hagaðilar þurfa að vinna saman að. Í grunnskólanum sækja nemendur sér menntun en þótt menntunarþátturinn sé mikilvægur þá eru aðrir hlutir sem skipta einnig miklu máli. Nefna má félagsmótun, læra að taka tillit til annara nemenda, sýna umburðarlyndi og þroskast fyrir framtíðina. Skólinn er samfélag sem hefur tekið miklum breytingum síðustu ár á miklum hraða og stjórnvöld þurfa að vera tilbúin að taka undir með skólunum og styðja þá á allan hugsanlegan hátt. Þar er hlutverk sveitarstjórna gríðarlega stórt. Tökum höndum saman sem samfélag og sameinumst um mikilvægi grunnskólans, nemendur eiga það skilið. Höfundur er kennari í Skarðshlíðarskóla í Hafnarfirði.
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar