Arsenal í skrúðgöngu daginn eftir úrslitaleikinn Sindri Sverrisson skrifar 20. maí 2026 14:47 Arsenal-menn fögnuðu vel í nótt en voru þó aðeins með mynd af verðlaunagripnum eftirsótta sem þeir fá loks í hendurnar á sunnudaginn. Getty/Stuart MacFarlane Arsenal-menn munu fagna Englandsmeistaratitli sínum og sýna stuðningsmönnum bikarinn í skrúðgöngu sunnudaginn 31. maí, í Islington-hverfinu í Norður-London.
Mögulega munu Arsenal-menn hafa tvöfalda ástæðu til að fagna þennan dag því auk þess að hafa nú tryggt sér Englandsmeistaratitilinn, í fyrsta sinn í 22 ár, þá spilar Arsenal við PSG í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu laugardaginn 30. maí, daginn fyrir skrúðgönguna. Norski ríkismiðillinn NRK bendir á að það verði því í nógu að snúast hjá mönnum eins og fyrirliðanum Martin Ödegaard sem spilar úrslitaleikinn í Búdapest á laugardegi, fagnar titli eða titlum í skrúðgöngunni á sunnudegi, kemur til móts við norska landsliðshópinn í Osló á mánudegi og heldur af stað til Bandaríkjanna á HM á þriðjudegi. Ödegaard sleppir þó vináttulandsleik Noregs við Svíþjóð á Ullevaal-leikvanginum í Osló mánudaginn 1. júní en það varð ljóst um leið og Arsenal komst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Næsta mál á dagskrá hjá Ödegaard og félögum í Arsenal, sem fögnuðu saman í gærkvöld og langt fram á nótt eftir að titillinn var í höfn, er hins vegar leikurinn við Crystal Palace í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar næsta sunnudag. Leikið verður á Selhurst Park og að leik loknum munu Arsenal-menn fá bikarinn í hendurnar.
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Íslenski boltinn Lyfti tvö hundruð kílóum tíu sinnum í röð Sport Jón Daði hættur í fótbolta: „Á endanum stend ég eftir með ekkert nema þakklæti“ Fótbolti Sjóðheit Ída Marín kveður FH Íslenski boltinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Enski boltinn Bjarni varð eftir í Svíþjóð og er á förum frá Val Fótbolti Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu Íslenski boltinn Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Enski boltinn Þingkonan hlaut EM-brons eftir mikla spennu Sport Skipti tennisskónum út fyrir takkaskó og skoraði tvö í fyrsta leik Fótbolti Fleiri fréttir Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Víti í blálokin kom í veg fyrir að mark Andra væri sigurmark Sancho neitar liðum á Englandi og vill fara erlendis Jeff Bezos kaupir hlut í Liverpool Ætla ekki að bjóða í Enzo Fernández í dag Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Á leið til Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár hjá City Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United Sjá meira