„Einsdæmi um réttindamissi“ Halldór Gunnarsson skrifar 20. maí 2026 15:01 Réttindagæslu fyrir fatlað fólk var hleypt af stokkunum hér á landi fyrir réttum 15 árum. Markmið hennar var að styðja fólk sem fötlunar sinnar vegna átti erfitt með að fylgja eftir rétti sínum, ef á honum var brotið. Árið 2013 voru stöðugildi réttindagæslumanna 5 og skráð mál 398. Jókst fjöldinn jafnt og þétt og árið 2020 voru málin orðin 1.308 og stöðugildum fjölgaði eitthvað til að mæta aukinni þörf. Ráðuneytisstjóri félagsmálaráðuneytisins lét gera skýrslu um störf réttindagæslunnar árið 2023 og þar kom fram að þörf fyrir stöðugildi miðað við umfang væri 12,5. Aldrei náðu stöðugildin því marki og voru þau aðeins 7 skömmu áður réttindagæslan færðist yfir til Mannréttindastofnunar Íslands þegar hún tók til starfa fyrir um einu ári síðan. Réttindagæslan var í upphafi sett undir ráðuneyti félagsmála. Ljóst var frá byrjun að í því fælust ýmsar þversagnir því ýmis þjónusta og málefni sem sneri að fötluðu fólki heyrði undir það ráðuneyti. Þótti það þó skásti kosturinn þar til annað og betra byðist. Snemma var horft til þess að Mannréttindastofnun sem sett yrði á stofn til að standa við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands, tæki réttindagæslu fyrir fatlað fólk að sér. Síðustu ár réttindagæslunnar hjá ráðuneytinu voru að mínu mati tími niðurlægingar og skilningsleysis sem verður ekki farið út í hér. Menn biðu þetta ástand af sér þar sem langþráð Mannréttindastofnun var í sjónmáli. Það gerðist síðan fyrir ári, eins og fyrr sagði. Mannréttindastofnun orðin að veruleika og tekin við réttindagæslu fyrir fatlað fólk. Einhver hefði haldið að það tæki ekki langan tíma að setja allt á fullt í réttindagæslunni; til voru vinnuskýrslur og bókunarkerfi sem gátu í snarhasti sýnt fram á þörf fyrir mannskap, verklagsreglur voru til og hvaðeina. Þetta var lítið nýtt. Í dag eru þrír starfsmenn starfandi sem eyrnamerktir eru fötluðu fólki og sá fjórði væntanlegur. Allt afbragðs fólk. Við breytingar á réttindagæslulögum var umsjón með tilteknum verkefnum færð til sýslumanns og má ætla að þar liggi eitt stöðugildi. Hér munar 7,5 stöðugildum frá þeirri þörf sem metin var árið 2023. Í fyrra kerfinu voru fjórir réttindagæslumenn á Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi, Austurlandi, Suðurlandi og Reykjanesi. Landsbyggðin hefur verið svipt þessari mikilvægu þjónustu – í bili. Vonandi kemur þetta þó allt saman. En… hver á að bera ábyrgð á að tryggja að svo verði og hver á að fylgjast með því að farið sé eftir núverandi lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk, eða lögum um réttindavernd fatlaðs fólks, verði fyrirliggjandi frumvarp að þeim lögum samþykkt? Stutta svarið er að það má enginn gera það, nema þá einna helst stofnunin sjálf. Félags- og húsnæðismálaráðuneytið sem á samkvæmt lögunum að bera endanlega ábyrgð á framkvæmd þeirra sömu laga, má bara ekki koma nálægt því, vegna stjórnsýslulegrar stöðuMannréttindastofnunar. Mannréttindastofnun heyrir undir Alþingi og framkvæmdavaldið má ekki skipta sér af því vegna hinnar gullnu reglu um þrískiptingu valdsins. Umboðsmaður Alþingis má ekki heldur hafa skoðun á stofnun sem heyrir einnig undir Alþingi. Þetta kemur fram í svari félag- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn Sigmundar Ernis Rúnarssonar á Alþingi nú fyrr í vor. Mannréttindastofnun getur því með ófullnægjandi hætti framkvæmt þessi lög sem framkvæmdavaldið ber ábyrgð á varðandi réttindaverndina, án þess að það hafi nokkrar afleiðingar fyrir stofnunina. Stofnunin er þegar að veita sumum fötluðum einstaklingum, sem ná í gegn með sín réttindamál, annan og minni stuðning en réttindagæslan taldi sér skylt að gera áður. Íslendingar búa almennt við það að geta farið greiðar kostnaðarlitlar kæru- og kvörtunarleiðir með sín mál innan stjórnkerfisins, þegar allt um þrýtur svo sem til ráðuneyta, úrskurðarnefnda af ýmsum toga og umboðsmanns Alþingis. Fólk sem telur að Mannréttindastofnun fari ekki að lögum í réttindagæslu fyrir fatlað fólk, getur ekki leitað réttar síns, eins og við á um aðra opinbera þjónustu ríkis og sveitarfélaga. Mögulegt er að leita til dómstóla, sem er afar tímafrek og mjög torsótt leið fyrir langflest fatlað fólk. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur birti grein um þetta mál í Morgunblaðinu undir yfirskriftinni „Er réttindagæsla fyrir fatlað fólk á villigötum?“ og sagði þar m.a. „Með skipulagi málaflokksins virðast stjórnsýslulög ekki gilda í samskiptum Mannréttindastofnunar og fatlaðs fólks. Sé svo, er það mjög ámælisvert og einsdæmi um réttindamissi almennings – þess hóps sem síst skyldi.“ Hvernig þetta komst athugasemdalaust í gegnum lögfræðingaher ráðuneytis og Alþingis er ofar öllum skilningi. En hverjum er ekki drull ...? Höfundur er fyrrverandi formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar, formaður ráðherraskipaðs hóps um fyrirkomulag réttindagæslu og sérfræðingur hjá félagsmálaráðuneyti á sviði réttindagæslu fyrir fatlað fólk. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar