„Er pláss fyrir sjálfstæða sjónvarpsmiðla á Íslandi?“ Hólmgeir Baldursson skrifar 20. maí 2026 21:16 Að kaupa efnisréttindi er lykilatriði í rekstri sjónvarpsmiðla og stærri sjónvarpsstöðvar þurfa að horfa til fjölmargra þátta í vali á efni. Fréttaefni, barnaefni, spjallþættir, heimildarmyndir, sjónvarpsþættir, íþróttir og kvikmyndir þurfa allt að vera til staðar til að mæta fjölbreyttum þörfum áhorfenda. Skjár 1 er hins vegar sérhæfð kvikmyndastöð og miðlar eingöngu kvikmyndum sem einfaldar dagskrárstefnu stöðvarinnar og gerir áhorfendum skýrara hvað þeir fá þegar þeir velja stöðina. Það er þó langt frá því að nægja að semja einfaldlega um efnisréttindi. Dreifiumhverfi sjónvarps hefur breyst gríðarlega á undanförnum árum og þar sem áður var helst talað um „Pay TV“ eða „Free TV“ hafa nú bæst við fjölmargir nýir efnisgluggar og dreifileiðir í gegnum OTT, FAST, AVOD, SVOD og aðrar stafrænar streymislausnir. Fyrir lítið markaðssvæði eins og Ísland getur því verið bæði flókið og kostnaðarsamt að semja um sýningarrétt á alþjóðlegu kvikmyndaefni enda hefur verð á efnisrétti hækkað verulega samhliða vexti alþjóðlegra streymisveitna. Skjár 1 vinnur því með samstarfsaðilum í öðrum löndum við kaup á efnisréttindum þar sem samið er til lengri tíma um valda titla og kvikmyndapakka. Í flestum tilfellum er um að ræða svokallaðan „non-exclusive“ sýningarrétt þar sem efnisrétthafar vilja eðlilega halda öðrum efnisgluggum opnum fyrir stærri alþjóðlegar streymisveitur á borð við Netflix og sambærilega miðla. Þessi nálgun gerir Skjá 1 kleift að byggja upp stöðugt og fjölbreytt kvikmyndasafn fyrir íslenskan markað á sama tíma og stöðin getur starfað sjálfstætt innan ört breytilegs OTT og Smart TV umhverfis. Klassískar kvikmyndir og svokallaðar „B“ og cult myndir voru lengi vel ekki mikið á hreyfingu á alþjóðlegum sjónvarpsmarkaði þar sem fókus stærri sjónvarpsstöðva og streymisveitna beindist fyrst og fremst að nýjum stórmyndum og dýru frumsýningarefni. Með breyttu neyslumynstri og mikilli sjóræningjastarfsemi þar sem nýjasti „blockbusterinn“ getur verið kominn í dreifingu um allan heim örfáum dögum eftir frumsýningu hefur kostnaðarhlutfall nýrra stórmynda hins vegar orðið sífellt erfiðara fyrir marga miðla. Á sama tíma hefur orðið mjög áhugaverð þróun í áhorfi á klassískt kvikmyndaefni, cult myndir og eldri kvikmyndasöfn þar sem áhorfendur sækja í meira kuraterað og persónulegra kvikmyndaumhverfi fremur en endalausan fjölda nýrra titla. Skjár 1 hefur með langtímasamningum, í mörgum tilfellum allt frá fimm til 10 ára, tryggt stöðinni stöðugt flæði af kvikmyndum til sýninga og byggt upp kvikmyndasafn sem þjónar þessum markaði sérstaklega. Það sem margir hafa ekki áttað sig á er að þessi markaður er í dag að taka mjög stór áhorfsstökk á alþjóðavísu. Á sama tíma má sjá kvikmyndir frá áttunda og níunda áratugnum fara í gegnum umfangsmikla stafræna endurvinnslu og „remasteringu“ til að uppfylla tæknikröfur nútíma sjónvarps og Smart TV umhverfis. Fyrir stöð eins og Skjá 1 felast því mikil tækifæri í því að sameina klassíska kvikmyndaarfleifð og nútímalega OTT dreifingu fyrir nýja kynslóð áhorfenda sem vill aftur upplifa kvikmyndir í hefðbundnu sjónvarpsumhverfi. Því skýtur það nokkuð skökku við að Mennta og menningarráðuneytið, sem auglýst hefur styrki til sjónvarpsmiðla vegna kostnaðar við talsetningar og textun barnaefnis fyrir yngri en 12 ára, hefur nú í tvígang hafnað umsóknum Skjás 1. Helstu rök ráðuneytisins hafa meðal annars verið þau að efnið sé „ekki nýtt“, að það hafi „áður verið frumsýnt“ og jafnframt að Skjár 1 innheimti ekki áskriftargjöld fyrir aðgang að stöðinni. Þessi afstaða vekur nokkra athygli í ljósi þess að stór hluti klassísks barnaefnis og fjölskylduefnis sem sýnt er um allan heim í dag hefur áður verið frumsýndur og farið í gegnum nýja stafræna vinnslu, textun og endurútgáfu fyrir nútímalegt OTT og Smart TV umhverfi. Á sama tíma virðist sem einungis tveir stórir markaðsaðilar hafi hlotið styrki samkvæmt þessu fyrirkomulagi, þ.e. Síminn og Sýn, sem vekur eðlilega upp spurningar um jafnræði og samkeppnislegt hlutleysi gagnvart minni og sjálfstæðum miðlum. Skjár 1 telur mikilvægt að opinber stuðningskerfi á sviði fjölmiðlunar og barnaefnis taki mið af þeirri miklu breytingu sem hefur orðið í sjónvarpsdreifingu undanfarin ár þar sem sjálfstæðir OTT miðlar og Smart TV umhverfi eru farin að gegna sífellt stærra hlutverki í neyslu barna- og fjölskylduefnis. Vegna þessa hefur Skjár 1 nú neyðst til að kynna málið bæði fyrir Umboðsmanni Alþingis og Samkeppniseftirlitinu þar sem farið er fram á að skoðað verði hvort jafnræðis hafi verið gætt við úthlutun styrkja á þessum markaði. „Málið er enn til meðferðar innan stjórnsýslunnar og því taldi Umboðsmaður ekki tímabært að taka það til efnislegrar meðferðar að svo stöddu.“ Sjónvarpsmarkaðurinn er að breytast hraðar en nokkru sinni áður. Áhorfendur eru að færa sig yfir í OTT lausnir, Smart TV umhverfi og sérhæfðari miðla þar sem upplifun, stemning og skýrt identity skipta sífellt meira máli. Á sama tíma standa minni og sjálfstæðir miðlar frammi fyrir þeirri spurningu hvort raunverulegt jafnræði ríki á markaðnum þegar kemur að aðgengi að stuðningskerfum, dreifingu og samkeppni við stóru aðilana. Skjár 1 hefur á tæpum þremur árum sýnt að það er hægt að byggja upp sjálfstæðan OTT sjónvarpsmiðil á Íslandi með áherslu á kvikmyndir, klassískt efni og „lean back“ sjónvarpsupplifun fyrir nýja kynslóð áhorfenda. Spurningin er kannski ekki lengur hvort slíkur miðill geti lifað af. Heldur hvort íslenskt fjölmiðlaumhverfi ætli að leyfa fleiri röddum að taka þátt í framtíð sjónvarps á Íslandi. Höfundur er forráðamaður Skjás 1. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bíó og sjónvarp Mest lesið Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir Skoðun Spyrjið okkur hvað við sjáum á TikTok Lena Amirsdóttir Mulamuhic Skoðun Skoðun Skoðun Hvað varð um tillögurnar? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Spyrjið okkur hvað við sjáum á TikTok Lena Amirsdóttir Mulamuhic skrifar Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvæg niðurstaða fyrir launafólk Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Vextir og vöxtur nýsköpunar Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir skrifar Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson skrifar Skoðun Náttúruverndargjald: Rétt hugmynd, of þröng útfærsla Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Skólamál verða ekki byggð á hentistefnu Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Rétt mönnun í hjúkrun er fjárfesting í öryggi og gæðum Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Bær í vexti - nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Áhrifavaldar já, Gestgjafinn nei Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar venjulegt líf? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Persónulegt níð skilar engum árangri Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Hvað fáum við fyrir reikninginn? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir fiskeldi? Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar Skoðun Treysta Alþingismenn ekki Alþingi? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar Skoðun Þegar vinstrið slær á framtakið Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir í nafni almennings Arnar Sigurðsson skrifar Sjá meira
Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir Skoðun
Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar
Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar
Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar
Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar
Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir Skoðun