Erlent

Hafa þurft að draga veru­lega úr olíuframleiðslu vegna á­rása

Samúel Karl Ólason skrifar
Skjáskot úr myndbandi sem ríkisstjóri Moskvu-héraðs birti á samfélagsmiðlum á dögunum. Úkraínumenn gerðu nýverið umfangsmikla árás á héraðið.
Skjáskot úr myndbandi sem ríkisstjóri Moskvu-héraðs birti á samfélagsmiðlum á dögunum. Úkraínumenn gerðu nýverið umfangsmikla árás á héraðið. AP/Andrei Vorobyev

Rússar hafa neyðst til draga úr framleiðslu eða jafnvel stöðva hana alveg í mörgum af helstu olíuvinnslum ríkisins. Það er vegna ítrekaðra drónaárása Úkraínumanna á olíuinnviði eins og vinnslur, dælustöðvar og geymslutanka en vegna þeirra hafa Rússar bannað alfarið útflutning á unnu eldsneyti í það minnsta út júlí.

Ein af stærstu olíuvinnslum Rússlands, í Kirishi, hefur verið lokuð frá 5. maí. Árásir hafa verið gerðar á olíuvinnslur víðsvegar um Rússland.

Vólódímír Selenskí hefur lýst þessum árásum sem skilvirkustu refsiaðgerðunum gegn Rússlandi, þar sem þær eru sagðar koma verulega niður á tekjum ríkisins. Bretar tilkynntu í dag að þeir ætluðu að fresta nýjum refsiaðgerðum gegn Rússlandi vegna hækkandi olíuverðs.

Sala á olíu, olíuafurðum og jarðgasi er langstærsta tekjulind rússneska ríkisins.

Samkvæmt greiningu Reuters hafa Rússar stöðvað eða dregið úr framleiðslu í vinnslustöðvum sem vinna um 83 milljón tonn af bensíni, dísil og öðrum olíuafurðum á ári. Þegar kemur að bensíni er um að ræða þriðjung allrar framleiðslunnar í Rússlandi en fjórðung af dísilframleiðslu.

Auk þess að koma niður á olíuframleiðslu og þar af leiðandi tekjum rússneska ríkisins hafa árásirnar einnig leitt til náttúruspjalla.

Blaðamenn New York Times ræddu til að mynda við íbúa í bænum Tuapse, við strendur Svartahafs, en í þessum mánuði og þeim síðasta hafa Úkraínumenn að minnsta kosti fjórum sinnum ráðist á olíuvinnslu þar.

Einn íbúi líkti andrúmsloftinu í bænum við það að standa við hlið útblástursrörs bíls og sagðist hættur að klæðast hvítum fötum þar sem sót og olíudropar sæjust á þeim vegna elda sem hafa kviknað í olíuvinnslunni vegna árásanna.

Mikið magn af olíu hefur einnig lekið út í Svartahafið.

Embættismenn í Rússlandi hafa ekki viljað veita upplýsingar um umfang náttúruspjallanna að öðru leyti en að segja að búið sé að búið sé að fjarlægja mikið af jarðvegi og sandi frá strandlengjunni við Tuapse.

Íbúi sagði NYT að skaðinn væri mun meiri en yfirvöld vildu viðurkenna.

Langur aðdragandi að umfangsmeiri árásum

Umfang drónaárása Úkraínumanna í Rússlandi virðist hafa aukist töluvert á undanförnum vikum og mánuðum. Sérfræðingar segja það hafa átt sér nokkuð langan aðdraganda.

Úkraínumenn hafa bæði lagt mikla áherslu á að bæta framleiðslu á langdrægum sjálfsprengidróna og það að elta sérstaklega uppi rússnesk loftvarnarkerfi á undanförnum árum. Þannig eru þeir taldir hafa gert göt á loftvörnum Rússa.

Rússneskir herbloggarar sögðu frá því undir kvöld að nokkuð umfangsmikil drónaárás væri að eiga sér stað.

Rússar hafa einnig gert mjög umfangsmiklar árásir í Úkraínu og virðist sem umfang þeirra hafi einnig aukist. Þetta hefur gerst á sama tíma og verulega hefur hægt á framsókn Rússa á víglínunni í Úkraínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×