Er aithingi.is hættulegt lýðræðinu? Kristján Logason skrifar 21. maí 2026 09:01 Gervigreindin er yndisleg um leið og hún er hundleiðinleg og getur verið stórhættuleg. Að henda því fram að það sé gott fyrir lýðræðið að láta spjallmenni ræða lög og alþingi er í besta falli villandi og í versta falli hrein og klár lýgi. Þrjú sjálfstæð gervigreindarkerfi, sem spurð voru sömu spurninganna um þennan vettvang, komust að sömu niðurstöðu: þjónn undir stjórn stjórnmálaflokks getur ekki verið hlutlægur, sama hvernig hann er kynntur. Hlutlægni krefst sjálfstæðis. Sjálfstæði krefst gagnsærrar stjórnunar, sjálfstæðrar endurskoðunar á kerfisuppsetningu og skýrrar opinberrar upplýsingagjafar um hverjir stjórna breytum hvers kyns gervigreindar sem beitt er í lýðræðislegu samhengi. Ekkert þessara skilyrða á við um aithingi.is í dag Gervigreindarkerfi rökræða ekki sjálfstætt. Þau hegða sér eins og fyrir þau er lagt og eru mótuð af þeim sem smíða þau og þeim sem stjórna uppsetningu þeirra. Það sem gæti litið út sem hönnunargalli er í reynd grunnurinn að uppbyggingu þessara kerfa. Gervigreindin er ekkert annað en forrit, forrit sem getur hjálpað til við skipulag, hugsun, forritun og í sumum tilfellum gert ýmislegt töluvert hraðar en mannskepnan. Gervigreindin gerir þó aðeins það sem henni er sagt út frá því sem hún hefur verið mötuð á. "This isn’t a hypothetical risk anymore. It’s a propaganda infrastructure with a neutral-looking interface." - ChatGpt Á þessum forsendum vekur nýleg opnun aithingi.is upp margar spurningar sem krefjast nánari skoðunar. Vefur, rekinn af stjórnmálamönnum, þar sem spjallmenni eru kynnt sem verkfæri fyrir borgaralega umræðu um löggjöf og þingleg málefni getur í besta falli talist hættuleg aðför að lýðræðinu og í versta falli talist stórhættulegur allri lýðræðislegri umræðu. Hættan felst ekki í því að slíkt kerfi muni gefa frá sér beinar flokksbundnar yfirlýsingar. Alvarlegra áhyggjuefni er kerfisbundið innræti. Með kerfisbundnu innræti mætti þannig stilla spjallmenni af, svo að þau horfi á öll mál út frá fjárhagslegum sjónarmiðum frekar en félagslegum og búa þannig til ákveðnar stefnumótandi forsendur fyrir spjallmennin þannig að þau beiti með og móti "reglunni" á ójafnan hátt án þess þó að setja fram beinar pólitískar skoðanir. Í samskiptum við fólk og undir framsetningu "rökræðna" myndast því lýðræðishalli í því sem sett er fram sem umræðugrundvöllur um pólitík, alþingi og lög. Í litlu þjóðfélagi eins og Íslandi með einungis 380.00 hræður hefur slíkur vettvangur sem þannig mótar skilning, þó ekki nema hluta fólks og þingmanna, á stefnumálum óhóflega mikinn þunga. Þrátt fyrir allt virðist frekar mikið traust Íslendinga til stofnana, sem gerir allt verra og áhættuna meiri, því fólk er ólíklegra til að líta slíkt vefsvæði gagnrýnum augum þar sem það kynnir sig sem óháð allri pólitískri umræðu. Þingmann með þekktar pólitískar skoðanir er auðvelt fyrir fólk að vega og meta og gera sér skoðun á. Þegar gervigreind sem hljómar sem yfirvald, er róleg og hlutlæg að því er virðist, en hallar kerfisbundið til einnar hliðar, er mun erfiðara fyrir fólk að vega og meta sannleika þess sem er settur fram. Fólk treystir nú þegar á tölvur og kerfi og því sem frá slíkum kerfum kemur sem hlutlægum staðreyndum. Þetta traust er hættulegt og það er auðvelt að rjúfa með villandi framsetningu. Villandi framsetning um hlutlægni er því mun hættulegri en bein pólitísk framsettning. A democracy can survive citizens using AI to understand politics; it may not survive politicians using AI to simulate citizens. -Gemini Lýðræðið þrífst á samræðum ólíkra hópa og tilraun þeirra til að komast að sameiginlegri niðurstöðu. Gervigreindin getur sett fram milljónir áhrifavaldandi skoðana á hverjum einasta degi og með því mótað umræðuna að höfði þess sem hefur forritað hana. Þetta syndaflóð "skoðanagreina" er hættulegt allri lýðræðislegri umræðu. Þegar slíkar skoðanagreinar eru settar fram sem gagnleg umræða um komandi lög er ekki bara lýðræðið í hættu heldur löggjafaþingið allt og hættan á því að falið einræði verði til. Mér er ekki til efs að gervigreindin getur verið gagnleg við að yfirfara lög, bera þau saman við önnur lög sjá hvar pottur er brotinn og betrumbæta lagalegar þýðingar og staðfærslur frá lögum sem við tökum upp í tengslum við EES. Gervigreindin getur fundið villur og bent á hnökra en gervigreindin má aldrei fá að stjórna umræðunni og fá þann heiður að fyrra alþingismenn ábyrgð með því að benda á ráðleggingar frá gervigreind, sem þar að auki var fyrirfram forrituð til að fá fram ákveðna niðurstöðu. Gervigreindin getur aldrei orðið forsenda lýðræðis né lýðræðislegrar umræðu og ákvarðana. Stjórnmálamenn takmarkast af tíma og minni en gervigreindarþjónn ekki. Ef spjallmenni er falið að fá tiltekin lög samþykkt getur það greint atkvæðagreiðslur og opinberar yfirlýsingar hvers einasta þingmanns og kjósanda í rauntíma. Séu niðurstöður slíkrar greiningar lagðar fram í greinarskrifum, óbeint undir yfirskyni "gagnlegrar" umræðu, erum við komin á hættulegan stað og lýðræðið komið að falli, fái fólk trú á slíkum vefsvæðum sem óháðum og ópólitískum og taki því sem þar er skrifað sem órjúfanlegum sannleika. The illusion of neutrality is more dangerous than open bias. -Claude Mér er það til efs að meginþorri íslensku þjóðarinnar vilji að þingmaðurinn Áslaug Arna stjórni allri umræðu um lagasetningu alþingis og hafi það á sinni hendi hvaða lög eru samþykkt og hvaða lög ekki. Það er því alger nauðsyn að fólk átti sig á því að sú "umræða" sem fer fram á aithingi.is og þær "greinar" sem þar koma fram eru algerlega háðar því hvað þeim karakterum sem þar hafa verið skapaðir hefur verið sagt að segja og skrifa. Það sem þarna kemur fram er á engan hátt óháð umræða heldur vísvitandi tilraun til lævísrar stjórnunar á umræðunni og þar með aðför að lýðræðinu og lýðræðislegri umræðu og ákvörðunartöku. Þessi grein er skrifuð með aðstoð gervigreinda tólana ChatGpt, Gemini og Claude Höfundur er ljósmyndari, leiðsögumaður og áhugamaður um gervigreind og lýðræði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen Skoðun Skoðun Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson skrifar Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Meðferð ríkisvaldsins á máli lífslokalæknisins Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar