Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 22. maí 2026 20:32 Orri Björnsson og Valdimar Víðisson eru oddvitar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Vísir/Vilhelm Valdimar Víðisson oddviti Framsóknar í Hafnarfirði segir ólíka túlkun á handabandi snurðan á þræði meirihlutaviðræðna. Hann telur þó alla vinna af heilindum og vonast til að Framsókn komist aftur að borðinu.
Valdimar fór yfir þá stöðu sem uppi er komin í meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði í kvöldfréttum Sýnar. Líkt og fram hefur komið sleit Sjálfstæðisflokkur meirihlutaviðræðum við Framsókn í gær vegna meints trúnaðarbrests. Þá sagði oddviti Samfylkingar að hún útilokaði samstarf við Framsókn og oddviti Viðreisnar að það hugnaðist henni ekki lengur. Þær sögðu Valdimar Víðisson oddvita Framsóknar hafa leikið tveimur skjöldum og átt í viðræðum við Samfylkingu og Viðreisn á sama tíma og Sjálfstæðisflokk. Oddvitar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar hittust á óformlegum fundi í morgun og ræddu mögulegt meirihlutasamstarf. „Þetta er dapurt og ekki góð staða að vera í. Hins vegar er ég sannfærður um það að þessir dagar síðustu hafa verið unnir af heilindum af okkar hálfu,“ segir Valdimar. Handaband eða handsal Orri Björnsson oddviti Sjálfstæðismanna hefur látið það í veðri vaka að eftir fund á mánudagskvöldið síðasta hefði hann og Valdimar tekist í hendur og þar með handsalað formlegar meirihlutaviðræður. Að sögn Valdimars má rekja þráteflið sem blasir nú við til túlkunar á gildi þessa handabands. „Þessi fundur á mánudagskvöldið sat illa í okkur Framsóknarflokki. Í hádeginu á þriðjudaginn hringi ég í Orra og segi honum að ég tejli að við getum ekki farið inn í formlegar meirihlutaviðræður á þessu stigi. Við þyrftum að melta hlutina og skoða þetta betur. Ég lét vita í hádeginu daginn eftir að það sem við ræddum kvöldið áður hefði legið þungt á okkur,“ segir Valdimar og heldur áfram: „Síðan á ég samtöl svo yfir daginn, eins og komið hefur fram, við fulltrúa Viðreisnar og Samfylkingar. Það er í raun þannig að þegar við erum í samtölum að menn geta túlkað það á mismunandi vegu. Það er ekki endilega röng túlkun hjá einum né neinum. Þegar hlutirnir eru að gerast svona hratt getur orðið til misskilningur og ég get alveg tekið á mig að við hefðum getað verið skýrari í vissum samtölum.“ „Ég átti svo mjög gott og einlægt samtal við Orra Björnsson seint á þriðjudagskvöldi þar sem við gengum frá þessu öllu sem á undan hafði gengið. Daginn er ákveðið í baklandinu mínu að óska eftir því við Sjálfstæðisflokkinn að ganga til formlegra meirihlutaviðræðna á því stigi og það var svo tilkynnt.“ Vill aftur að borðinu Valdimar vildi ekki leysa frá skjóðunni um það hvað það var sem sat í Framsóknarmönnum eftir fund mánudagsins en segist vonast til að útkljá þetta sem fyrst. „Ég vona svo sannarlega að okkur beri gæfa til þess fyrir Hafnfirðinga alla að klára þetta mál sem fyrst. Við vonumst auðvitað til þess að komast aftur að borðinu. Ég vona svo sannarlega að þetta skili því að ákallið eftir Framsókn í meirihluta í hafnarfirði nái fram að ganga.“
Hafnarfjörður Sveitarstjórnarkosningar 2026 Framsóknarflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Viðreisn Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fleiri fréttir Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Sjá meira