Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Agnar Már Másson skrifar 23. maí 2026 15:13 Rubio segir það gæti dregið til tíðinda „síðar í dag, á morgun, eða eftir nokkra daga.“ Vísir/EPA Dregið gæti til tíðinda í friðarviðræðum Bandaríkjamanna og Írans á næstu klukkustundum eða næstu dögum, að sögn utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Pakistanskir milligöngumenn segja að árangur hafi náðst í samræðum sínum við Írana í dag.
Al Jazeera greinir frá því að pakistanski marskálkurinn Asim Munir kveðist hafa átt „mjög árangursríkar viðræður“ við leiðtoga Íran í Teheran, sem hafi leitt til „hvetjandi framfara í átt að endanlegu samkomulagi“ um frið á milli Írans og Bandaríkjanna. Miðillinn hefur þetta upp úr tilkynningu frá pakistanska hernum en Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði við Reuters í dag að nokkur árangur hefði náðst með milligöngu Pakistana og bætti við að „það væru líkur á því, hvort sem það verður síðar í dag, á morgun, eða eftir nokkra daga, að við höfum eitthvað til að segja frá.“ Esmail Baghaei, talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, bætti þó við í samtali við Reuters: „Þróunin í þessari viku hefur verið í átt að minni ágreiningi, en enn eru mál sem þarf að ræða með milligöngu sáttasemjara. Við verðum að bíða og sjá hvernig staðan þróast á næstu þremur eða fjórum dögum.“ Síðustu vikur hefur lítill árangur náðst í samningaviðræðum um að binda enda á stríðið frá því að vopnahlé náðist í byrjun apríl. Bandaríkin halda áfram hafnarbanni á íranskar hafnir á meðan Íran hefur lokað Hormússundi frá upphafi átakanna í lok febrúar. Stjórnvöld í Íran og Óman hafa nú rætt saman um að taka upp kerfi þar sem rukkað yrði fyrir skipaumferð um Hormússundið.
Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Ísrael Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira