STEM menntun þarf langtímasýn Huld Hafliðadóttir skrifar 27. maí 2026 09:00 Skilaboðin frá Evrópu eru skýr: STEM menntun þarf að færast úr stökum skammtímaverkefnum yfir í heildstæða langtímauppbyggingu. Ný skýrsla Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Promoting STEM Education in Schools, dregur fram að STEM menntun í Evrópu glímir enn við kerfislegar hindranir: brotakennda stjórnsýslu, kennaraskort, stífar námskrár, ójafnt aðgengi að innviðum, vannýtt tækifæri í óformlegu námi og veikt mat á árangri. Hún bendir jafnframt á leiðina fram á við: heildstæðar STEM stefnur, öflugri stuðning við kennara, þverfaglegt og verkefnamiðað nám, betri innviði og langtímasamstarf milli skóla, háskóla, atvinnulífs, samfélagsaðila og stjórnvalda. Í litlu og dreifðu menntakerfi eins og okkar verður þörfin enn skýrari. Ef öll börn og ungmenni eiga að fá raunveruleg tækifæri til að kynnast vísindum, tækni, verkfræði, stærðfræði og skapandi lausnaleit, þurfum við meira en stök verkefni, átaksverkefni eða áhuga fárra einstaklinga. Ef börn á landsbyggðinni fá færri tækifæri til verklegs, skapandi og tæknitengds náms en börn í stærri þéttbýliskjörnum er það ekki aðeins menntamál, það er byggðamál. Ef stelpur sjá sig síður fyrir sér í tækni, verkfræði eða vísindum er það ekki aðeins einstaklingsbundið val, það er menningarmál. Ef kennara skortir tíma, stuðning, búnað eða tengslanet til að samþætta STEM á skapandi og þverfaglegan hátt er það ekki áhugaleysi, það er kerfisvandi. Við þurfum heildstæða STEM-stefnu fyrir Ísland, mótaða þvert á ráðuneyti, skólastig, sveitarfélög, rannsóknir, atvinnulíf og samfélag, með skýra langtímasýn að leiðarljósi.STEM menntun snýst ekki aðeins um störf framtíðarinnar. Hún snýst um forvitni, gagnrýna hugsun, lausnaleit, nýsköpun og sjálfbærni - og um trú ungs fólks á eigin getu til að skilja og móta heiminn. Hún snýst líka um lýðræði, þátttöku og jöfn tækifæri. Næsta mikilvæga skref fyrir Ísland er skýr samhæfing og markvisst samstarf. Víða erlendis hefur vistkerfisnálgun í STEM menntun (STEM Learning Ecosystems) reynst áhrifarík leið til að færa STEM menntun úr einangruðum verkefnum yfir í markvisst samstarf um langtímauppbyggingu. Sú nálgun er þó ekki óþekkt hér á landi; hún hefur þegar verið innleidd í íslensku samhengi með samfélagslegum STEM námvistkerfum á Húsavík og í Borgarbyggð. Spurningin er ekki hvort STEM skipti máli, heldur hvort Ísland ætli að byggja upp þá stefnu, samhæfingu og innviði sem þarf til að öll börn og ungmenni fái raunveruleg tækifæri til að taka þátt í framtíðinni. Höfundur er meðstofnandi STEM Íslands, forstöðukona STEM Húsavíkur og hefur unnið að uppbyggingu samfélagslegra STEM námvistkerfa á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar