Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Eiður Þór Árnason skrifar 27. maí 2026 18:52 Hildur Björnsdóttir, verðandi borgarstjóri, vísar veginn áfram við hlið Bjargar Magnúsdóttur, verðandi forseta borgarstjórnar, og Einars Þorsteinssonar, verðandi formanns borgarráðs. Vísir/Vilhelm Það dró til tíðinda í morgun þegar fréttamenn voru kallaðir út í Viðey ellefu dögum eftir borgarstjórnarkosningar. Blaðamannafundurinn var boðaður með skömmum fyrirvara og þurfti fjölmiðlafólk að hafa snör handtök líkt og oft áður til að geta miðlað viðburðinum til landsmanna. Þétt var setið í Viðeyjarferjunni á ellefta tímanum og fylgdu svo fleiri borgarfulltrúar í kjölfarið.
Úti í Viðey kynntu oddvitar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins í Reykjavík svo nýtt meirihlutasamstarf sitt og tilkynntu að Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðismanna, tæki við borgarstjórastólnum. Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari var á staðnum og náði meðfylgjandi myndum. Sjá nánar: Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Athygli vakti að Viðey hafi orðið fyrir valinu en staðurinn á sérstakan stað í hjörtum Sjálfstæðismanna. Fyrsta ríkisstjórn Davíðs Oddssonar, þáverandi formanns flokksins, hlaut viðurnefnið Viðeyjarstjórnin en fram að því hafði hann verið borgarstjóri árin 1982 til 1991. Þá hefur Hildur viðrað hugmyndir um íbúðabyggð í Viðey. Sjá einnig: Áherslur meirihlutasáttmálans Hildur Björnsdóttir og Jón Skaftason, eiginmaður hennar, tóku eina sjálfu um borð í Viðeyjarferjunni á þessum merku tímamótum.Vísir/Vilhelm Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar í Reykjavík og verðandi formaður borgarráðs, tekur sporið við Viðeyjarstofu.Vísir/Vilhelm Oddvitarnir með Skarfabakka í baksýn.Vísir/Vilhelm Hildur og Kjartan Þorbjörnsson ljósmyndari, einnig þekktur sem Golli. Vísir/Vilhelm Hildur tekur til máls fyrir framan borgarfulltrúa og hluta varaborgarfulltrúa nýja meirihlutans í Reykjavík. Vísir/Vilhelm Einar byrjar sem formaður borgarráðs en skiptir síðar við Björgu og verður forseti borgarstjórnar.Vísir/Vilhelm Hildur ásamt Jóni Skaftasyni eiginmanni sínum. Vísir/Vilhelm Hildur Björnsdóttir verður 24. borgarstjóri Reykjavíkur.Vísir/Vilhelm Vísir/Vilhelm Fjölskyldumynd í lokin.Vísir/Vilhelm Vísir/Vilhelm Vísir/Vilhelm Vísir/Vilhelm Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, Róbert Ragnarsson borgarfulltrúi flokksins, og varaborgarfulltrúarnir Þorvaldur Davíð Kristjánsson og Margrét Rós Sigurjónsdóttir féllust í faðma.Vísir/Vilhelm
Reykjavík Sjálfstæðisflokkurinn Viðreisn Framsóknarflokkurinn Borgarstjórn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Viðey Tengdar fréttir Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Oddvitar nýs meirihluta í Reykjavík hafa þegar átt samtal við Daða Má Kristófersson fjármálaráðherra um samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Þeir segja ætlunina ekki að tefja framkvæmdir heldur þurfi að endurskoða tillögur um veggjöld og flýta Miklubrautargöngum. 27. maí 2026 13:59 Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Hildur Björnsdóttir verðandi borgarstjóri segist hafa gert atlögu að því að mynda fjögurra flokka meirihluta með Miðflokki. Það hafi ekki gengið eftir og segist hún telja meirihluta Viðreisnar og Framsóknar líklegri til að skapa sátt heldur en meirihluta með Miðflokki. Hún segir boð til Ara Edwalds um að taka við stjórnarformennsku í Orkuveitu Reykjavíkur enga friðþægingu. 27. maí 2026 12:14 Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Í hádegisfréttum segjum við frá því hvernig nýr meirihluti í Reykjavík var myndaður ný fyrir hádegið. 27. maí 2026 11:31 Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Samkvæmt samstarfssáttmála Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar ætla flokkarnir að svara ákalli borgarbúa eftir breytingum í Reykjavík. 27. maí 2026 11:09 Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Sjá meira
Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Oddvitar nýs meirihluta í Reykjavík hafa þegar átt samtal við Daða Má Kristófersson fjármálaráðherra um samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Þeir segja ætlunina ekki að tefja framkvæmdir heldur þurfi að endurskoða tillögur um veggjöld og flýta Miklubrautargöngum. 27. maí 2026 13:59
Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Hildur Björnsdóttir verðandi borgarstjóri segist hafa gert atlögu að því að mynda fjögurra flokka meirihluta með Miðflokki. Það hafi ekki gengið eftir og segist hún telja meirihluta Viðreisnar og Framsóknar líklegri til að skapa sátt heldur en meirihluta með Miðflokki. Hún segir boð til Ara Edwalds um að taka við stjórnarformennsku í Orkuveitu Reykjavíkur enga friðþægingu. 27. maí 2026 12:14
Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Í hádegisfréttum segjum við frá því hvernig nýr meirihluti í Reykjavík var myndaður ný fyrir hádegið. 27. maí 2026 11:31
Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Samkvæmt samstarfssáttmála Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar ætla flokkarnir að svara ákalli borgarbúa eftir breytingum í Reykjavík. 27. maí 2026 11:09